Heima er bezt


Heima er bezt - 01.03.1987, Side 16

Heima er bezt - 01.03.1987, Side 16
Yfirlœknirinn: „Þér þarfnist um fram allt að fá þann frið og þá ró, sem þér njótið ekki heima, frú Hansen. “ Tveir gamaldags enskir læknar sátu saman við borð og ræddust við. Svo segir annar dálítið meinfýsinn: „Ég var að frétta að herra Jones, sem þú stundaðir við lifrarsjúkdómi, sé dauður úr hjartabilun. Þegar ég stunda mann við lifrar- sjúkdómi, þá deyr hann einnig úr lifrarsjúkdómi.“ Einn glæsilegasti kvikmyndaleikari Þjóðverja hafði fengið heiftarlega verki í kviðarhol. Kvalastillandi lyf reyndust gagnslaus. Leikarinn leitaði þá til frægs skurðlæknis. Hinn mikilúðugi prófessor gaumgæfði glæsilegan klæðnað komumanns, stífpressaðar buxurnar, tískuhálsbindið og spegilgljáandi támjóa skóna. Að svo búnu rannsakaði hann sjúklinginn hátt og lágt og kvað upp úrskurð sinn: „Allt er tipp topp, bæði að innan- og utanverðu. Það eina sem amar að yður er að botnlanginn í yður situr skakkt.“ Á öldinni sem leið praktiseraði í Berlín læknir sem hét Emst Ludwig Heim. Hann var virtur mjög og eftirsóttur. Dag einn var hann kallaður til greifynju. Dr. Heim var einstakt ljúfmenni og þegar hann kom inn til frúarinnar sagði hann þýðlega: „Nú, mín kæra, hvað er það svo sem amar að yður?“ Móðguð vegna þessa umbúðaleysis sagði frúin hvassyrt: „Herra læknir, ég er greifynja." Dr. Heim svaraði elskulegur að vanda: „Já mín kæra, en við því hef ég engin lyf og get þess vegna ekki hjálpað yður.“ Yfirgaf svo höllina. Dr. Heim var vínhneygður. Dag einn er hann sat yfir flösku á vertshúsi kom maður æðandi inn. Sá var smávax- inn, lét dagsdaglega lítið yfir sér og bjó við konuríki, en í þetta sinn hrópaði hann skipandi: „Komið umsvifalaust. herra doktor, konan mín er að deyja.“ „Þér leyfið vonandi að ég ljúki fyrst við flöskuna mína,“ svaraði læknirinn. Komumaður tók það ekki í mál, heldur tók utan um lækninn og hljóp með hann til dyra. „Dokið við, dokið,“ æpti þá dr. Heim: „Ég hefni mín grimmilega á yður, ég lækna konuna yðar!“ Þegar Jóhannes Heimbeck var kandidat á IX. deild Ullevál sjúkrahússins bentu rannsóknir, sem hann og Scheel yfirlæknir gerðu á hjúkrunarnemum, til þess að þeir hefðu smitast af berklum í starfi. Þeir félagar höfðu þá unnið að rannsóknum á BCG-bólusetningu, og varð Heimbeck heimsfrægur fyrir berklarannsóknir sínar. Hann sótti svo um forstöðumannsstarf við berklahæli. Lungna- læknar mótmæltu þá vegna þess að Heimbeck var ekki „ftisilog", þ.e. berklasérfræðingur. Þá varð Heimbeck að orði: „Þetta er álíka vitlaust og það væri að neita Vorum Herra um að tala í kirkju á þeirri forsendu að hann væri ekki cand. theol.“ Það er kunnara en frá þurfi að segja að keisarar og biskupar geta orðið veikir rétt eins og annað fólk. Hvorki blátt blóð né purpurakápa eru nein vörn gegn sjúkdómum, ja, ekki einu sinni gegn svo hversdagslegum uppákomum sem kvefi og fótsveppi. En þeim mun frségari og áhrifa- meiri sem þær persónur eru, sem kenna sér meins, þeim mun afdrifaríkari geta afleiðingarnar orðið. Það hendir af og til að mjög svo lítilfjörlegur sjúkdómur verður þeirrar upphefðar aðnjótandi að verða konungleg písl. Og önnur sjúkdómstilfelli geta haft bein áhrif á gang mannkynssög- unnar. Hver veit nema Napóleon hafi þjáðst bæði af svefnleysi og höfuðverk samfara tannpínu nóttina fyrir orrustuna við Waterloo. Að ekki sé talað um Ólaf helga nóttina fyrir Stiklastaðabardaga. Hann leið örugglega af brjóstsviða og vindgangi, með stórum fretum, og naut þar í engu heilagleika síns. Og úr því að tign hinna fornu forkólfa í heimi læknis- fræðinnar slagaði í eigin og annarra augum hátt uppí Vorn Herra má nærri geta að tign ýmissa frægðarmanna í hópi sjúklinga hafi ekki verið minni. Það átti sinn þátt í að gera sjúkdóma þeirra svo forvitnilega að dugað hefur í heil sagnfræðirit. En hvað með þagnarskylduna — þarf ekki að halda hana í heiðri? Nei, hún skiptir engu máli hér. Svo fremi sjúklingur standi nógu hátt í þjóðfélagsstiganum, er allri tillitssemi varpað fyrir róða. Þá er þetta sagan, og sem slík almenningseign. Hver sem þess óskar á þess kost að sökkva sér niður í sjúkdómssögu frægra persóna. Það var ekki löngu eftir lát Churchills að líflæknir ha'ns sendi frá sér gilda bók, troðfulla af líkamsveilum og heilsufarsatriðum þessa fræga stjórnmálamanns. Krufningsskýrslur Edward Griegs og Ole Bull hafa verið gefnar út fyrir löngu. Fleiri nöfn af handahófi: Nákvæm úttekt á sálrænum sérkennum Charles Darwin og Florence Nightingale hefur fyrir löngu verið gerð, og hálskrabbamein Friðriks Vilhjálms Þýska- landskeisara fyllir heilan doðrant, sem skrifaður var af enskum líflækni hans sem vörn fyrir rangar og réttar sjúk- dómsgreiningar gegn árásum öfundsjúkra, þýskra kollega. Byrjum á sælum Marteini Luther. Svo litríkur persónu- leiki komst ekki hjá rannsókn síðari tíma, einnig að því er 88 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.