Heima er bezt


Heima er bezt - 01.03.1987, Page 22

Heima er bezt - 01.03.1987, Page 22
w^- W -T- ^EMSr' t>ú móðir vor aldna, þú eldborna sveit, þar æskudraums r>aut ég í blómanna reit, ég minnist þín gjarnan á gleðinnar stund þá gleymi ég hörmum og sérhverri und. Því hvergi er svo fagurt um láð eða lág og lognþokan dvelst ei við bláfjöllin há. Hún vogar ei þangað því himinblær hreinn við hnjúkana vakir og ekki er hann seinn. Þú geymir í skauti þér allt sem ég ann og unaðssemd hvergi ég jafnmikla fann. Þótt hverfi mér vinir og vonir og hrós þá verður þú jafnan mín gleði og ljós. Og gangi ég aleinn við hnjúkafjöll há þar heiðmjöllin glóir við loftvegu blá, þá lyftir sér andinn frá hégóma hátt þá hverfur mér allt það, sem lágt er og smátt. Og sitji ég ströndu, þar fuglanna fjöld í friðsælli gleði sér leikur um kvöld, þá vaknar í hjartanu himinblíð þrá og hörmunum sviftir hún brjóstunum frá. Og gangi ég með Laxá, er leitar að sjá, vorn lífsóð hún kveður, og minnir oss á að lífið er starfsemi og starfsemi er líf og styrkurinn þroskast við baráttu og kíf. Vér finnum hve ólgar í æðunum blóð og út þarf að brjótast hin hamslausa glóð. Við þurfum að reynast við þrautir og stríð og þreyja til sigurs í mannskæðri hríð. Og lygi og heimsku á hólm skorum vér, en hart verður stríðið, því liðsmunur er. En hver sem að æðrast skal útlægur gjör að athlægi verður hans hraklega för.

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.