Heima er bezt


Heima er bezt - 01.03.1987, Qupperneq 23

Heima er bezt - 01.03.1987, Qupperneq 23
ARNFRÍÐUR SIGURGEIRSDÓTTIR á Skútustöðum: Að vetumóttum (Erindi flutt á slœgjufundi) í kvöld minnist ég Mývatnssveitar, um leið og ég kveð sumarið og þakka því liðna hamingjudaga. Þó að það færði okkur stundum hret og kulda, andaði hálfu oftar frá því sólskini og sunn- anblæ. Aldrei hefur mér virzt sveitin mín fegurri en í faðmi þess, hvort sem geislar morgunsólar féllu á vötn hennar, bláfjöll og grænan gróður, eða kvöldsólin sló gullnum bjarma á láð og lög. „Blessuð sértu, sveitin mín.“ Sú bæn stígur upp frá hjörtum allra til hinnar glæsilegu móður, sem á ást okkar og aðdáun. Skartklæði hafa henni verið gjörð fyrr og síðar, bæði af börnum hennar, gestum og gangandi. Aldrei hef ég þó gerzt svo djörf að bæta þar við einu spori, en þakklát er ég þeim, sem hafa glæst hana í bundnu máli og óbundnu, og annast vildi ég mega um allt það, sem má auka sæmd hennar og halda minn- ingu hennar í heiðri. Fáir munu þeir, sem að koma úr austri eða vestri, og staðnæmzt hafa, þar sem fyrst sér yfir Mývatnssveit, hvort heldur er í Námaskarði eða á Brattaási, að þeir kenni ekki fagnaðar við fegurð hennar, og þá eigi síður ferðamaður sá, sem reikar árdegis um bakka Laxár og lítur hvítfyssandi öldur hennar glitra í sólarljósinu, eða hinn, er berst yfir spegilslétt vatnið á hljóðu vorkvöldi, þræðir víkur þess og voga milli blómskrýddra hólma og hávaxinna dranga, en hverfur svo að lokum milli blárra fjalla í leit að kirkju meistarans mikla og finnur þar hvíld og frið. Eins og að líkindum lætur, hefir mörgum þessum mönnum orðið ljóð á munni á slíkum stundum, og munu nokkur nöfn hér nefnd, því til sönn- unnar. Einar Benediktsson kveður um Slútnes, Sigurður Vilhjálmsson minnist Laxár, Stórugjár og Reykja- hlíðar, Jakobína Johnson Dimmu- borga, Indriði á Fjalli og Guðmundur á Sandi tala hlýlega til byggðarinnar, þegar þeir fara þar um, og ýmsir fleiri. Mun þetta allt varðveitast enn um langan tíma. Öðru máli gegnir um stökurnar, sem þó munu hafa legið mönnum lausari á tungu fyrr á árum en kvæðin. Segi vísurnar ekki til sín sjálfar, gleymist oft tilefni þeirra og upphaf- leg mynd, og jafnvel stundum höf- undarnir sjálfir. Meðal fyrstu vísna, sem ég kunni, voru tvær vísur, sem mér var sagt að væru um Mývatnssveit, og tildrög þeirra þessi: Það var á einu hausti, að haldin var veizla nokkur að Ytri-Nes- löndum. Var eitt af því, sem haft var þar til skemmtunar, að menn ortu vísur hver í kapp við annan og kváðu við raust. Höfðu þeir frændurnir, Gamalíel Halldórsson og Illugi Ein- arsson, gjört sína vísuna hvor. Vísu Gamalíels heyrði ég fyrst fullorðin og lærði ekki, en vísa Illuga, sem ég kunni í bernsku, er svona: Sumri hallar, hausta fer, heyri snjallir ýtar, hafa fjallahnjúkarnir húfur mjallahvítar. Þóttu vísur þessar vel kveðnar þá. Helga Sigmundsdóttir, heimasæta í Vindbelg, var þarna ein meðal boðs- gesta. Þótti henni halla á kvenfólkið við kveðskapinn. Leitaði hún þá lið- sinnis Kristínar Andrésdóttur á Hofs- stöðum. Hafði Kristín oft verið á hagyrðingaþingi með öðrum Mý- vetningum og ætíð þótt hlutgeng. Við þetta tækifæri kvað hún: Fýkur mjöllin feiknastinn, fegurð völlinn rænir. Hylja fjöllin sóma sinn, silungshöllin skænir. Þessa vísu lærði ég barnið um leið og vísu Illuga. Helga Sigmundsdóttir var talin gáfuð kona og gagnmerk. Hún varð þriðja kona Helga Ásmundssonar bónda á Skútustöðum. Sagði hún sögu þessa syni þeirra, Hjálmari, föð- ur séra Helga á Grenjaðarstað, en hann fóstursyni sínum og frænda, Hjálmari bónda í Vagnbrekku, en Hjálmar mér. Er þetta samhljóða frá- sögn ömmu minnar, sem var dóttir Kristínar, stjúpdóttur Helgu. Heyrði ég i æsku engan efa sannindi sögu þessarar. Undraðist ég því mjög, þegar ég á fullorðinsárum sá þess getið í tímariti, að einmitt þessar tvær vísur, sem ég hef tilgreint, væru ortar á Austur- landi, og löngu síðar sá ég því sama haldið fram í „Heimskringlu“. Telja Austlendingar þeir, sem að þessu standa, máli sínu til sönnunnar, að vísur þessar hafi verið til í skrifaðri bók i eigu þeirra, sem þeir telja, að hafi kveðið þær. Þetta álít ég þó litla sönnun, því að um þessar mundir og síðar var algengt, að menn, sem gátu, skrifuðu í bækur kvæði og vísur eftir ýmsa höfunda, þekkta og óþekkta, eins þeir, sem aldrei höfðu vísu ort. Gætu vísur þessar hafa borizt til Austurlands með Halldóri Jónssyni hreppstjóra á Arnarvatni, sem um þessar mundir fluttist þangað, en hann var hagyrðingur sjálfur og hefir sennilega verið einn meðal þeirra, sem ortu á Neslöndum. Að lokum vil ég geta þess, að vísuna „Sumri hallar, hausta fer“, hefi ég séð Heima er bezt 95

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.