Heima er bezt


Heima er bezt - 01.03.1987, Page 24

Heima er bezt - 01.03.1987, Page 24
í Tímariti Þjóðræknisfélags íslend- inga í Vesturheimi, í vísnaflokki eftir Guðrúnu Þórðardóttur frá Vals- hamri. Hafa mun ég þó fyrir satt fyrst um sinn, að frásögn Helgu sé réttust. Næst tel ég vísu Látra-Bjargar: Mývatnssveit ég vænsta veit vera á Norður-láði; fólkið gott, það fær þann vott, að flestum góðvild tjáði. Nokkrir hafa þó síðustu orð vís- unnar þannig: „að fullt sé það af háði“, og hyggja, að svo hafi hún verið kveðin, en ég tel hiklaust vísuna rétt- ari, eins og ég hafði hana fyrr. Látra-Björg var fátæk kona, sem fór milli sveita og þakkaði vel góðan greiða, en Mývetningar höfðu þá bæði vilja og mátt til að seðja svanga. Vísan virðist mér, eins og margir hafa hana nú, líkust fati, sem upphaflega var einlitt, en síðar spillt og sett í stykki af öðru efni, að vísu haglega gjört, en ber þó ávallt annan lit. Mý- vetningar hugðu, að Jakob Pétursson á Breiðumýri hefði af stríðni breytt vísuorðunum. Séra Helgi Benediktsson var prest- ur í Mývatnsþingum nokkur ár. Undi hann þar vel hag sínum, þrátt fyrir rýrar tekjur og harðæri. Var hann virtur og elskaður af sóknarbörnum sínum og talinn kraftaskáld. Trúðu menn því, að hann hefði verndað 111- uga skáld Helgason fyrir ásókn Skottu og læknað sálsýki hans, á meðan þeir voru nágrannar. Jón prestur Þor- steinsson á Húsavík átti ættingja og arfs von í Mývatnssveit. Hann fékk séra Helga til að hafa brauðaskipti við sig. Er mælt, að séra Helgi harmaði það alla ævi og kvæði eitt sinn, er hann sá á sveitina: Mývatnssveit er mér að sjá magnleg sorgarspenna, ógrátandi ég aldrei má augum til hennar renna. Jón Sigurðsson á Rifkelsstöðum í Eyjafirði, Sigmundssonar í Vindbelg, var kvæntur frændkonu sinni, Stein- vöru Helgadóttur frá Skútustöðum. Eitt haust fóru þau að finna ættfólk sitt við Mývatn. Staðnæmdust þau á Brattaási á austurleið og lituðust um. Þá kvað Jón: Mývatnsfjöllin sýna sig, sveipuð hvítum skrúða. Veit ég gleður þetta þig, þornaristin prúða. Hjón þessi unnust vel í fyrstu, en brátt kólnaði ástin, og leitaði Steinvör þá til æskustöðvanna með sonu þeirra báða. Urðu þau öll skammlíf þar og mun nú sjaldnast minnzt, nema þá er vísuna ber á góma. Jón Hinriksson, síðast bóndi á Helluvaði, ólst upp seinni hluta bernsku sinnar í Mývatnssveit og átti þar heimili síðan, að undanskildum þremur árum, sem hann bjó á Hólum í Eyjafirði. Þaðan leitaði hann til baka sökum óyndis þeirra hjóna og bjó eftir það við sízt betri skilyrði en hann hafði frá horfið. í Eyjafirði orti hann ljóðabréf til vinar síns við Mývatm. í því eru þessar vísur: Þú á bala bláskóga byggð þér valið hefir, en ég í dal við dampana og drungasali ófagra. Mér er hulin — magnast þrá — Mývatnssveitin góða. Sorgarkul mig sækir á, sízt fæ dulið veiki þá. Baldvin Stefánsson, Gamalíelsson- ar frá Haganesi, gjörði þessa vísu: Elur söng og fæðuföng, frostaspöng nam hopa. Laxá ströng sín stikar göng, stanz er á öngum dropa. Bróðir Baldvins, Stefán bóndi í Ytri-Neslöndum, og frændi þeirra, Árni Jónsson prófastur, voru staddir á Flatskalla, sem er hæð milli Reykja- hlíðar og Grímsstaða, og gjörðu þá þessa vísu: Fagurt er á Flatskalla fyrir norðan sveitina, horfa yfir hólmana, hraun og báða Flóana. Séra Árni var Mývetningur að ætt og uppruna og sóknarprestur þeirra um aldarfjórðung og unni sveit sinni sem bezt má verða. Á efri árum hans var honum veitt Hólmaprestakall í Reyðarfirði, og fluttist hann þangað. í Námaskarði á austurleið sneri hann hesti sínum við og kvað: Logn er nú og ládeyða, ljómi’ yfir þér, sveitin mín, farðu vel, þú fallega, faðmi drottinn börnin þín. Séra Árni lifði skamma stund á Hólmum. Hvilir hann meðal ættingja og vina í Skútustaðakirkjugarði, að eigin vild og sóknarbarna sinna þar. Fæst af því hefir geymzt, sem um Mývatnssveit hefir verið sagt í óbundnu máli. Minnin, sem henni hafa verið flutt, voru flest mælt af munni fram og hafa gleymzt. En í fljótu bragði eru mér í huga þrír menn, sem hafa minnzt hennar svo, að ei mun gleymast. Stephan G. Stephansson skáld getur þess í Jökul- göngum, þegar hann er staddur í Námaskarði, og Mývatnssveit liggur fyrir fótum hans í sínu fegursta sum- arskrúða, en flokkur syngjandi karla og kvenna kemur fagnandi móti hon- um. Þá er sem tunga hans losni úr læðingi, og hann lýsir því, sem hið glögga gestsauga sér, fegurð sveitar- innar og ást íbúanna á henni. Sigfús á Sandi ritar um Þorgils gjallanda í Helgafelli. í sambandi við hann fer hann fögrum orðum og lof- samlegum um sveit þá, sem þeir unnu báðir hugástum. Sigfús er sonur hjónanna Bjarnar bónda á Grana- stöðum, Magnússonar, prests á Grenjaðarstað, og Hólmfríðar Pét- ursdóttur frá Reykjahlíð, Jónssonar prests, Þorsteinssonar. Mun hann hafa verið um fermingaraldur, er hann fluttist til Mývatns með móður sinni og systkinum, eftir fráfall föður síns. Sigfús kysi ég til að fylgja verkum Þorgils úr hlaði. Hvorki mundi hann skorta hagleg orð né sannleiksást, ekki heldur vera vant hlýleika til Mý- vatnssveitar eða barna hennar. Veit ég þó, að fleiri muni eiga kosti þessa en hann. Jón Stefánsson á Litluströnd, öðru nafni Þorgils gjallandi, unni sveit 96 Heima er bezl

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.