Heima er bezt


Heima er bezt - 01.03.1987, Side 26

Heima er bezt - 01.03.1987, Side 26
✓ Ur skrínu Theodórs Gunnlaugssonar frá Bjarmalandi - II Slysið við Dettifoss Detlifoss séður að austan. í bókinni Jökulsárgljúfur, bls. 11, er með fáum orðum sagt frá því, þegar danskur tannlæknir, að nafni Ole Braa, hrapaði fram af háu bjarginu austan við Jökulsá, örstutt norðan við Dettifoss. Hér verður nánar sagt frá þeim at- burði, því svo einstakur er hann. Til glöggvunar skal þó fyrst tekið fram, að við fossinn var þá margt fólk á ferð. Strax, eftir að slysið vildi til, var liði skipt. Nokkrir léttvígustu mennirnir hlupu norður bjargbrúnina, til að leita að niðurgöngu, aðrir tóku bíla og óku eins hratt og auðið var, upp í Hólssel, til að ná símasambandi við Kópasker, þar sem héraðslæknirinn var búsettur. Það náðist strax samband við hann og sagðist hann skyldi koma að slys- staðnum, eins fljótt og verða mætti. Leiðin frá Dettifossi að Hólsseli, var þá allt önnur en nú (1976). Hún var bæði krókótt og mjög seinfarin. Frá Dettifossi þurfti fyrst'að aka norður á Austurlandsveginn, sem þá var lagður norðan við Rauðhólana og lá miklu austar, yfir Hólssand. Frá honum var ruddur vegur, rétt austan við Rauð- hólana, að Dettifossi. í Hólsseli var þá einnig fenginn kunnugur maður, sem þekkti leiðina til að komast að mann- inum. Þar var einnig fengin hurð, til að bera hann á, ásamt böndum. Næstu daga eftir slysið, birtist við- tal við lækninn á Kópaskeri, Jón Árnason frá Garði í Mývatnssveit. Það fer hér á eftir: „Laugardaginn 10. júlí (1937) kom skemmtiferðafólkið, sem hér er á ferð á vegum Ferðafélags íslands, að Dettifossi, og dvaldist þar nokkra stund. Um hádegisbilið fór flest af fólkinu, en talsverður hópur varð þó eftir við fossinn. Þar á meðal var danski tannlæknirinn Ole Braa. Var hann á ferli uppi á gilbarminum, að austanverðu við fossinn, og er þar þverhníptur hamar undir, en þá tekur við snarbrött malarbrekka, með möl og mosagróðri. Talið er, að Braa hafi farið fram á gilbarminn, til að taka myndir af fossinum. Hrapaði hann þá skyndilega niður, um 50 m fall, (eins og stóð i blaðinu) og stöðvaðist ekki fyrr en rétt ofan við ána. Miklum erfiðleikum var bundið, fyrir samferðafólkið, að komast niður að ánni, þar sem hann lá. Varð það að fara niður brattar og hættulegar skriður, áður en það komst að hinum slasaða manni. Voru þá liðnar tvær til þrjár klukkustundir frá því að slysið vildi til. Mjög erfiðlega gekk að koma hin- um slasaða manni upp úr gilinu, því þarna má heita nálega ófært. Á mjög löngum tíma og með miklum erfiðis- munum, tókst þó að koma honum upp úr gljúfrinu og var hann fluttur að Skinnastað í Öxarfirði, þar sem hann liggur nú. Þegar komið var með hann að Skinnastað, voru liðnar 12 til 13 stundir frá því hann hrapaði. Braa er mikið slasaður, en þó ekki lífshættulega. Þykir það sérstök heppni, að hann skyldi ekki bíða bana þegar við fallið.“ Hér lýkur frásögn Jóns læknis. Örugga heimild um það hvernig slysið vildi til, tel ég, sem þetta rita, einnig rétt að geymist. Hún er eftir sjónarvotta, er staddir voru vestan við ána, beint á móti slysstaðnum. Einn þeirra var Þórarinn Jóhannesson, þá bóndi í Krossdal í Kelduhverfi. Hann var þar á ferð, ásamt tveimur stúlkum, 98 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.