Heima er bezt


Heima er bezt - 01.03.1987, Blaðsíða 27

Heima er bezt - 01.03.1987, Blaðsíða 27
sem hann var að fylgja að Dettifossi. Þau horfðu á fólkið, þar sem það var á stjái, til og frá og einnig eftir bjarg- brúninni, norðan við fossinn. Tóku þau þá eftir manni, sem nam staðar við stóran stein, fremst á brúninni. Allt í einu er hann kominn upp á steininn, stendur þar og snýr sér að fossinum. Þau sáu glöggt, að hann hafði eitthvað í höndunum, og töldu víst, að hann væri að taka myndir. Leit Þórarinn af honum nokkur augnablik. Heyrir hann þá skyndilega og óvænt, að báðar stúlkurnar reka upp sársaukafull angistaróp: „Hann hrapaði, hann hrapaði.“ Samstundis sá Þórarinn steininn, á leið sinni niður í gljúfrið, og manninn á eftir, með alla arma útrétta, eins og hann svifi niður með bjarginu. Hann kom fyrst niður í snarbratta og að því er virtist smá- gerða malarurð, sem virtist blaut af úðanum og eitthvað mosavaxin efst, neðan við standbjargið, sem þarna mun vera um þrjátíu metra hátt. Svo rann hann niður urðina, þar til hann nam staðar. Steinninn var talsvert á undan honum, skall í urðina og hóf sig svo aftur á loft, og hvarf í ána. Eftir nokkur augnablik virtist allt fólkið hafa skynjað, hvað komið hafði fyrir. Margir hlupu að bjargbrúninni, til og frá, og sumir þeirra hafa — án efa — séð manninn í urðinni neðan við, því eftir nokkur augnablik hlupu nokkrir norður eftir bjargbrúninni, án efa í þeim ásetningi að reyna að komast niður að ánni. Fyrst lá maðurinn hreyfingarlaus nokkra stund, en fór þá að baða út höndum. Við þær hreyfingar mjak- aðist hann niður skriðuna og nálgaðist ána, þar til hann hætti að hreyfa sig.“ Hér lauk frásögn Þórarins. Tveim til þrem klukkustundum eftir að maðurinn hrapaði, komu fyrstu félagar hans að honum þar sem hann lá, nokkrum metrum ofan við ána. Þeir höfðu komist nógu langt norður björgin, þar sem fyrst er hægt að fara niður að ánni, skammt sunnan við Hafragilsfossinn. Eftir það er engin veruleg torfæra suður að Detti- fossi, nema stórgrýttar urðir, eftir að kemur syðst í Fossundirlendið. Þær verða ávallt varasamar, og skal öllum ráðlagt að fara þá leið sem næst Deltifoss. Myndin er tekin niðri í gljúfrinu. björgunum, ofan við, en ekki með- fram ánni, og er þá miðað við sumar- mánuðina. Þegar gengið hafði verið frá Braa, eftir beztu getu, á hurðinni, sem komið var með úr Hólsseli, þar sem Jón læknir sagði fyrir verkum og að- stoðaði eftir mætti, var lagt af stað með hann. Hurðin var borin af fjórum mönnum til skiptis, því allir lögðu þar lið eftir mætti. Jón læknir sagði mér, að það hefði verið afar slæmt að fara út yfir stórgrýttu urðirnar norðan við fossinn, þar til komið var út í undir- lendið: Sjálfur þekkti ég leiðina og samsinnti það fúslega, enda bætti ég við, að margir mundu telja það kraftaverk að komast það með slíkan farangur og þeir gerðu. Sjálfur var Jón læknir vanur erfiðleikum og af- burða ferðamaður. Svo margar ferð- irnar fór hann einn frá Kópaskeri, eftir að hann varð þar læknir og lenti þá oft í verstu veðrum á löngum leið- um, eins og til Raufarhafnar og upp á Hólsfjöll. Og enn man ég glöggt, þeg- ar hann sagði mér frá þessari ferð sinni eftir slasaða manninum við Dettifoss, haustið eftir að slysið vildi til, hve hann dáðist að einum félaga sínum, frá því fyrst var búið um Braa á hurðinni, og þar til hann var borinn inn í bæinn á Skinnastað. Það var hjúkrunarkona, sem þar var með í för, og hafði komið með þeim fyrstu að Braa, þar sem hann lá. Jón dáðist að handtökum hennar og nákvæmni við að ganga frá manninum, með honum, á hurðinni og þar til hann var borinn að fylgjast með honum, eftir að lagt var af stað, því segja mátti, að hún hefði alltaf verið öðru hvoru megin við hurðina, yfir allar urðirnar, þar sem laus og liðugur maður hafði nóg með að finna fótum sínum forráð. „Það mátti ætla, að hún hefði aldrei gert annað, frá því hún fór að ganga, en klifra í hömrum,“ sagði Jón læknir. Hann taldi það líka hreina mildi, að enginn skyldi slasast á því ferðalagi, þar sem oft losnaði um steina í urð- inni, undan fótum burðarmanna. Heimaerbezt 99

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.