Heima er bezt


Heima er bezt - 01.03.1987, Síða 33

Heima er bezt - 01.03.1987, Síða 33
Sólin var að byrja að roða efstu fjallatindana. Morgun- roðinn sló fölum bjarma á hlíðina, og fyrstu ærnar voru að rísa upp, þegar Steini fór fram hjá nátthaganum. Hann var að verða seinn að ná heim að Hvammi áður en fólkið risi úr rekkju. Hann hafði dvalist hjá Sillu í selinu alla nóttina. Ástaratlot hans voru heit og ör. Hún fann þau enn eins og brennandi loga leika um sig, barmur hennar opinn batt saman örlög þeirra. Ávöxtur þeirrar ástar, er hún hafði heitið honum nóttina góðu í selinu forðum, var nú hennar lífsfylling er hún fann í syninum, sem hún hafði borið undir belti og séð klæðast mynd föðursins. í sælli móðurgleði lifði Silla sína ástardrauma, þrátt fyrir köpuryrði og síendurteknar sögur Steina, sem hann flutti heim með sér hvaðanæva frá ferðum sínum, um að hún væri sér ótrú. Þá vissi hún vel að það var illmælgi vondra manna, sem hann í trúgirni sinni festi traust á, en hún mat hann enn og umbar og fyrirgaf þó hann legði á hana hendur. Hvað sem hugarórum leið, þá var hitt víst, að ástúð hennar, umburðarlyndi og orð verkuðu eins og eldur í beinum Steina, er logaði og brann, svo aðeins gat verið stundarbið, að skaði hlytist af. □ Það bar nokkuð jafnsnemma við, dag nokkurn í Hvammi, að konur komu heim frá kvíum, og Þorbjörn kom með tvo hesta í taumi heim götuna. Vakti það nokkurra furðu, er hann aðspurður lét orð liggja að því, að hann hyggði á ferðalag einhvern næstu daga suður á land. Þyrfti því að járna hesta og sitthvað fleira, vegna undirbúnings ferðarinnar, sem var ráðgert að mundi taka 2-3 vikur. Þennan dag var byrjað að bera ljá í gras, víða var orðin allgóð spretta og hafði Steini tekið sér orf í hönd seinni hluta dagsins og farið út á hring til sláttar. Þorbjörn staðnæmdist með hestana fyrir framan skemmudyrnar og kallaði til Steina ef hann vildi koma og hjálpa sér. Steini tók seint undir og ekki fyrr en mjalta- konur höfðu staðnæmst hjá Þorbirni og tekið upp létt hjal við hann um ferðalag hans, svo og útreiðartúr næsta sunnudag. Sendu þær Steina tóninn, þar sem hann kom lötrandi heim varpann, í gáskafullri glettni veittust þær að honum og skoruðu á hann að koma með á ballið á laugar- dagskvöldið í Tungu. Þorbjörn, sögðu þær, ætlar að lána okkur hesta. „Það á að stofna þar stúku,“ sögðu þær, „og á eftir á að vera tombóla og dans, og þá má enginn vera fullur.“ Þorbjörn tók góðlátlega undir málskraf þeirra við Steina og gaf með kímni eitt og eitt orð í. En Steini var fúll og viðskotaillur og kastaði til þeirra ókvæðisorðum um leið og hann labbaði á burt frá þeim. Konur fóru síðan með málnytuna til bæjar, þar sem hver fór að sýsla við sitt starf. Nokkra spurningu vakti þó meðal þeirra, hið fyrirhugaða ferðalag húsbóndans, sem þær heyrðu hann tala um og hvaða erindagjörðum hann mundi vera í. Það var þess vegna sem Guðfinna vinnukonan, sem kom þangað í vor, fylgdist með Sillu út að læk, er hún fór að þvo mjaltaföturnar, ef ske kynni að Silla vissi um fyrirætlan Þorbjörns. En hún hafði naumast hafið máls á því, þegar Steini var þar kominn og krafðist þess að hún segði sér allt um það. En Silla sagði sér ókunnugt um það og ekki vita meira um það en hann. Við það varð Steini æfur mjög, og bar það á konu sína, að víst mundi hún vita betur. Það væri þó gamla sagan, hún þættist aldrei vita neitt, en gengi hér um ljúgandi við sig og skríðandi í kringum Þorbjörn. Eftir allharða orðasennu á milli þeirra, þá þreif Steini í ein mjólkurfötuna og grýtti henni í konu sína um leið og hann tók á rás með formælingum og stóryrðum heim að bænum. Þorbjörn var kominn út fyrir tún með hestana og hefti þá þar, þegar uppistandið við lækinn átti sér stað. Er hann ætlaði heim á leið, þá mætti hann smalanum er var þar að eltast við nokkrar geldkindur er sóttu á að komast saman við kvíaærnar, sem hann var með á leið í kvöldgerðið. Við þetta sneri Þorbjörn við til aðstoðar smaladrengnum enda var Strútur gamli glaður við, er hann sá hjálpina, og réði sér ekki fyrir kæti, og fékk nú að fara skyndiför með sauð- léttan kindahópinn langt upp í brúnir. Leið þannig kvöldið að fátt bar við, utan venju enda hugði hver að sínu verki. Er Silla kom síðla kvölds upp á pallskörina, veitti hún því strax athygli, að barnið hafði verið fært til eftir að hún fór út til mjalta í kvíunum. Hún hafði beðið Jóhann gamla húsmann að gefa því auga, meðan hún væri utan húss. Það hafði verið sofandi og vært er hún fór frá því. Brá hún því skjótt við til athugunar með barnið. Sá hún þá um leið og hún tekur ofan af því sængina, að barnið er dáið. í örvæntingu þeirri sem þegar greip hana, hljóðaði hún upp og féll síðan í grát. Allir nærstaddir urðu felmtri slegnir því grátur Sillu var svo sár. En er þeir urðu vísari, hvað um væri að vera, var strax farið og kallað á Steina, sem kom þegar inn. En er honum var sagt hvað við hafði borið, var sem honum brygði, en var þó stilltur fremur venju, sagði aðeins: „Veit Þorbjörn þetta?“ Þuríður húsfreyja sem hafði lagt sig, inn í herbergi sínu, meðan mjaltir stóðu yfir kom nú og sá hvar Silla sat útgrátin með barnið sitt dáið í kjöltu sinni, hrópandi: „Barnið mitt er dáið, barnið mitt....“ Gaf Þuríður Steina bendingu um að taka barnið úr kjöltu móðurinnar, en sjálf vafði hún Sillu í arma sína og leiddi hana inn til sín til að sefa grát hennar. Var nú sent strax til Þorbjörns, þar sem hann var úti við, og honum tjáð hvað orðið væri. Varð hann hljóður við og allfár og mjög brugðið. Fékkst hann ekki til að ganga til bæjar, heldur fann sér sitthvað til dundurs lengi vel. Er líða tók á kvöldið, lagði hann leið sína út fyrir tún, og kom ekki til bæjar fyrr en mjög var liðið nætur. Og Þuríður hafði sent vinnumann til að leita hans, þvi nú óttaðist hún um mann sinn. Brátt bárust út tíðindin frá Hvammi og þóttu í mörgu fréttnæm, enda hafði náunginn sitt hvað til málanna að leggja, þótt öðrum þætti ekkert markvert og ekki til stór- tíðinda teljast, þótt ungbarn hrykki upp af. Samt fór svo, að farið var að velta vöngum um tildrög þess og orsök, enda ekki með ólíkindum talið, eftir þeim fréttum, sem borist höfðu frá Hvammsheimilinu undanfarið. Nokkuð hafði tafist fyrir Þorbirni að leggja af stað í Heima er bezt 105

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.