Heima er bezt


Heima er bezt - 01.05.1996, Blaðsíða 5

Heima er bezt - 01.05.1996, Blaðsíða 5
Rætt við Margréti Sigbjörnsdóttur, skólastjóra á Hallormsstað Margrét Sigríður Sigbjörnsdóttir er borinn og barnfæddur Skriðdælingur, þriggja barna móðir og oddviti í Vallahreppi. Hún er skólastjóri Hús- stjórnarskólans á Hallormsstað og tekur á móti mér á skrifstofu sinni þar á hlýju kvöldi á miðri góu. Það er líf og fjör í skólanum. Frammi í Höllinni eru nemendur að ræða saman og ekki alltaf sammála eins og gengur, einhverjir eru að spila á píanó og fást við ýmis verkefni. Síminn glymur látlaust, það eru gjarnan karlkyns vinir námsmeyja, sem þurfa nauðsynlega að ná athygli þeirra stutta stund; skipuleggja næstu helgi eða aðra samverustund á næstu dögum. Margréti líð- ur vel í þessu Iíflega umhverfí með ungu fólki. Heima er bezt 161

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.