Heima er bezt - 01.05.1996, Blaðsíða 29
Hálft tólfta þúsund króna
var mikil skuld árið 1928, ef
miðað er við það verð, sem
bændur fengu þá fyrir afurð-
ir sínar. Þeim óx það þó ekki
meira í augum en svo að þeir
reyndu að fá viðbótarlán til
þess að einangra kirkjuna, en
fengu ekki. Hún var því vígð
óeinangruð með timburgólfi.
Það reyndist svo æði dýrt
því segja má, að frá vígslu-
degi til ársins 1966 hafi stór
hluti af orku sóknarnefndar-
innar og aflafé kirkjunnar
farið í baráttu við slagaða
veggi og fúið timbur.
Öll hugsanleg tæki voru
reynd við upphituna, en allt
kom fyrir ekki. Árið 1940
varð að skipta um gólf kirkj-
unnar vegna fúa.
Það gefur því auga leið, að
miklar skuldir og hár við-
haldskostnaður ollu því að
fjárhagurinn var heldur bágborinn.
Ur því rættist þó árið 1944, þegar
þeir Þóroddur Jónsson og Marteinn
Einarsson, kaupmenn í Reykjavík en
ættaðir úr Hjallasókninni, gáfu ijár-
hæð, sem nægði til þess að greiða all-
ar skuldir kirkjunnar og mála hana.
Nú var fjárhagsstaðan auðvitað öll
önnur, en baráttan við slagann og fú-
ann hélt áfram.
Árið 1954 mun þó hafa verið eitt-
hvert smáhlé á þessari styrjöld því þá
var rafmagn leitt í kirkjuna og á jóla-
dag það ár var í fyrsta sinn messað í
henni raflýstri.
En þetta var aðeins stund milli
stríða því að 1959 og 60 fer enn fram
heilmikil viðgerð á kirkjunni. Fyrra
árið var gert við fúa í gólfinu og
meiri og minni (aðallega meiri) við-
gerðir fóru fram innanhúss, en
seinna árið var þakið málað og dytt-
að að ýmsu að utanverðu.
Allt var þetta þó unnið fyrir gýg.
Kuldinn utan og hitinn innan við
óeinangraða veggina skópu þær að-
stæður, að inni fúnaði allt, sem fúnað
gat.
Á safnaðarfundi 2. janúar 1966 var
Predikunarstóll, smíðaður 1897.
samþykkt að fara skyldu fram gagn-
gerar endurbætur á kirkjunni. Haft
var samband við biskupsstofu og að
hennar ráði gerði Finnur Árnason til-
lögur um hvað gera skyldi og hvern-
ig að því staðið, en þeir Jón Guð-
mundsson, trésmiður, og Guðjón
Pálsson, rafvirki, báðir úr Hvera-
gerði, önnuðust framkvæmdir.
Með þessari aðgerð fékk kirkju-
skipið það útlit, sem það hefir í dag.
Mér hefir ekki tekist að finna neitt
skriflegt um þessar framkvæmdir, en
Jón Guðmundson kom í Hjallakirkju
2.5. 1995 og er það sem hér fer á eft-
ir tekið úr samtali við hann.
Byrjað var á því að nánast moka
öllu gólfinu út því það var grautfúið,
bæði borð og bitar. Rauðamöl var
sett í grunninn og tveggjatommu
plast sett á milli gólfbitanna.
Veggirnir voru einangraðir á sama
hátt en loftið með glerull.
Kórgafl fékk núverandi útlit, þó
altari og grátur væri óbreytt. Smíðuð
var ný útihurð en sú innri er frá
1928. Bekkimir voru smíðaðir
á verkstæði Jóns eftir teikning-
um, sem Halldór Jónsson arki-
tekt í Reykjavík gaf kirkjunni,
en þær höfðu áður verið notað-
ar í kirkjunni að Bæ í Borgar-
firði.
Séra Sigurður Pálsson, vígslu-
biskup á Selfossi, endurvígði
kirkjuna að þessari viðgerð lok-
inni, en mér hefir ekki enn tek-
ist að finna hvenær það var
gert.
Hinn 14. október 1985 var
haldinn sóknarnefndarfundur
þar sem fyrir lá að hitaveitu-
inntakið, sem sett var í kirkjuna
í júní 1980, væri nær ónýtt og
þarfnaðist gagngerðra breyt-
inga.
Samþykkt var að byggja sitt
húsið hvorum megin við
forkirkju og skyldi skrúðhús
vera að sunnanverðu, en hita-
veituinntak og snyrting að
norðan.
Þeir Sigurður Gíslason og Ragnar
Emilsson hjá húsameistara ríkisins
sáu um alla hönnunarvinnu í sam-
bandi við þetta verk.
Samtímis þessum viðbyggingum
var skipt um jám á þaki kirkjunnar
og hún máluð bæði að utan og innan.
Þessum framkvæmdum öllum var
lokið fyrir 60 ára afmæli hennar en
upp á það var haldið með hátíðar-
messu hinn 27.11.1988.
III. Prestssetur
í bókinni Merkir Islendingar (Nýr
fl. I) er grein um Skafta Þóroddsson,
lögsögumann. Hann er talinn fæddur
að Hjalla 960-70, hafa alist þar upp
og tekið við búi og goðorði eftir föð-
ur sinn, sem mun hafa látist 1002
eða 3.
Þóroddur var talinn vel lögfróður
maður og hefir Skafti sennilega
numið lög af honum og frænda sín-
um, Grími Svertingssyni lögsögu-
manni á Mosfelli, en það mun hafa
verið eftir tillögu hans að Skafti tók
Heima er bezt 185