Heima er bezt


Heima er bezt - 01.05.1996, Blaðsíða 8

Heima er bezt - 01.05.1996, Blaðsíða 8
skólanámi en ég gætti bús og bams og vann fyrir okkur. Fyrstu árin vann ég í eldhúsinu á Landsspítalanum og var þar í ýmsum störfum, bæði við matargerð og eins vann ég sem tengiliður milli eldhúss og deilda. Ég ræddi við sjúk- linga, ráðlagði þeim um mataræði og kom óskum þeirra á framfæri í eldhúsinu. Þetta var að mörgu leyti erfitt starf, þó aðallega andlega og erfiðast af öllu fannst mér að fara á barnadeildina. En þetta var jafnframt þroskandi og kenndi manni að vera ekki að óskapast út af smámunum. Til útlanda Haustið 1979 ákváðum við að skella okkur til Dan- merkur. Sigfús hafði þá lokið BA-prófi í íslensku og þýsku en mig langaði að bæta við mig og átti næsta leik. Við fórum til Árósa í Danmörku, þar sem ég fór í fram- haldsnám í næringarfræði í háskólanum. Sigfús fékk svo- kallaðan gestapassa inn í háskólann og fór að læra leik- húsfræði. Við vorum rúmt ár í Danmörku og ég sé ekki eftir þeim tíma. Þetta var skemmtilegt og eftir á að hyggja hefðum við gjaman viljað vera lengur. Aftur heim Það sem m.a. kallaði okkur heim var að mér bauðst starf á göngudeild Landsspítalans. Ég hafði aðeins verið þar við afleysingar, sem matvæla- leiðbeinandi fyrir sykursjúka, og það starf var laust þarna á haustdögum. Ég hafði áhuga fyrir þessu starfi svo ég tímdi ekki að sleppa því og við drifum okkur heim. Ég starfaði í 4 ár á göngudeild fyrir sykursjúka með Þóri Helgasyni lækni og hans starfsliði. Þetta var lítil deild en afskaplega skemmtilegur og góður vinnuandi. Þarna vann ég hálfan daginn, hitti sykursjúkt fólk og leiðbeindi því í sambandi við mataræði. Á þessum Reykjavíkurárum var Sigfús við kennslu og nam uppeldis- og kennslufræði í Háskóla Islands. Árið 1981 eignuðumst við okkar annað barn, Snorra Grétar og tíminn leið eins og hjá flestum á þessum aldri, við nám og starf. Við fórum í byggingarsamvinnufélag í Kópavogi í þeim tilgangi að eignast þak yfir höfuðið. Við vorum sem sagt í þessu hefðbundna brasi ungs fólks, of mikilli vinnu, að koma þaki yfir höfúðið, á framabraut og að eignast börn. Á þessum tíma, upp úr 1980, var mjög erfitt að eignast nokkuð. Það var ekkert samræmi í launum og Fjölskyldumynd frá Hallormsstað, Margrét og Sigfús með börnin þrjú. Brúðkaupsmynd af Margréti og Sigfúsi. Margrét og Sigfús í Danmörku 1980. k 164 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.