Heima er bezt


Heima er bezt - 01.05.1996, Blaðsíða 24

Heima er bezt - 01.05.1996, Blaðsíða 24
efni en fólk flest, hann Siggi litli í Bíldsey. Faðir hans kom honum því til náms hjá séra Gísla Ólafssyni að Stað á Reykjanesi. Hjá séra Gísla var hann hluta úr tveimur vetrum og komst m.a. töluvert niður í dönsku og reikningi. Kennari hans, séra Gísli, er mikill vexti og hagmæltur nokkuð, og hann hefur mætur á Sigga litla. Sigurður ber mikla virð- ingu fyrir lærdómi kennara síns. En hann öfundar hann mest af að drekka brennivín, að mega ilma af þessum guðadrykk eins og hann. En fyrr en varir er skólalærdómi Sigurðar lokið. Séra Gísli bregður búi og Siggi litli snýr aftur heim. Hann á enga leið til frekara náms. En hann hefur mannast mikið hjá prest- inum á Stað. En víst er um það, að dvöl hans á Stað hafði ekki gert hann vinnusamari. Hann er öllum stundum úti, á eintali við náttúruna, og órói kynþroskans hríslast um líkama hans. Hann er barmafullur af ást, ekki til neinnar konu, heldur til alls, sem lifandi er og dautt í náttúrunnar ríki: Hér ég dali, heiðar, fjöll, himininn og Ijósin þar, grösin valin, gróin öll, get mér séð til ununar. Hvað ég er þá ástagjarn alla skapta hluti við, leik ég mér sem lítið barn, loftið, jörð og sjó tilbið. Vegna fátæktar var menntavegur- inn Sigurði lokuð leið. En hann var laghentur að eðlisfari, og því var það ráð tekið að láta hann læra einhverja iðn. Til þess þurfti hann að fara til Kaupmannahafnar. Bogi Benedikts- son, frændi hans í Stykkishólmi, auðugur verslunarstjóri, styrkti hann til fararinnar. II Sigurður fer utan síðsumars árið 1814, 16 ára að aldri, með haustskipi frá Stykkishólmi. Samtímaheimild úr Breiðafirði gefur honum þann vitnis- * burð, að hann sé „hortugur, eðlisvit- ur og ókærinn.“ Maður með slíku upplagi er engin sveitarprýði við Brciðafjörð. Hann stendur á þilfar- inu, farangurinn hefur hann í litlum poka, þar sem geymd er sæng hans og koddi, breiðfirskur æðardúnn, mjúkur og hlýr. Við hann verður gott að sofa í köldu þakherbergi í Kaup- mannahöfn. Það er liðið á kvöld, sól- in að ganga til hvílu í vestri, fjöllin eru að hverfa, Breiðaljarðareyjar sokknar í sæ. Þá verður honum að orði þessi frábæra staka: Sunna háa höfin á hvítum stráir dreglum. Veröld má sinn vænleik sjá í vatna bláum speglum. Eftir 7 vikna útivist í hafi kemst skipið loks til Kaupmannahafnar. Hann er með riðu í höfði, hið fasta land, sem hann hefur undir fótum, gengur í öldum, því að hann hefur drukkið rommtoddí með skipherra í 7 vikur samfleytt. Hann hefur bætt alin við lífsreynslu sína; vín er ekki aðeins gleði. I dreggjum þess leynist harmurinn, lífsleiðinn. Honum er hjálpað á vinnustaðinn, samkvæmt bréfi Boga kaupmanns. Og innan skamms er Sigurður farinn að raða stöfum innan í járngjörð. Hann er orðinn beykir í kóngsins Kaupmannahöfn. Næstu 4 ár dvelur Sigurður í Kaupmannahöfn meðal ókunnugra, með erlenda tungu í eyrum. Hann er mjög sagnafár um þessa löngu dvöl sína þar, er hann lærði til beykis. Menn vita þó, að hann undi sér þar aldrei vel og var drykkfelldur kvennamaður. Það eitt er víst, að hann tók aldrei sveinspróf í iðn sinni. En hvað sem því hefur valdið, kom hann aftur heim til Islands tvítugur að aldri. Ýmislegt hefur hann að sjálfsögðu lært í Danmörku, m.a. málið svo vel, að hann gat ort á því máli, ef svo bar undir. Verslunarskipið, sem flytur hann aftur heim til föðurlandsins, kemur út í Isaljörð vorið 1818 og gerist hann þar strax beykir. Hann er þar fram á haust og verður strax kunnur um allan Isafjörð fyrir vísur sínar, rímur og víndrykkju. Næstu 4 árin er hann svo raunar alltaf á flækingi hér og þar, örsnauð- ur drykkjumaður. Þegar rukkarar komu eitt sinn til hans á þessum árum, hreytir skáldið frá sér þessari stöku: Eg er snauður, enginn auður, er í hendi minni, nœrri dauður, drottins sauður, í djöfuls vesœldinni. Snemma árs 1882 er Sigurður kominn til Reykjavíkur og fær þar brátt vinnu sem beykir. Batnar þá hagur hans í bili. En eftir tveggja ára dvöl í Reykjavík, hinni miklu Babýlon drykkjuskaparins, var hver skildingur uppurinn og lánstraustinu lokið. Þá hafði hann ráðið sig til kaupmanns í Vestmannaeyjum. Hann kvaddi Reykjavík með vísu, sem ekki er prenthæf. Og nú sigldi hann á vit nýrra örlaga. Um þau vissi hann ekki, en hann hafði gert sér fulla grein fyrir að hann væri sjálfur happa sinna og glappa smiður. Sigurður Breiðfjörð var 26 ára, er hann flutti til Vestmannaeyja. Hann dvelur þar óslitið í 4 ár, eða fram á haust 1828. Svo sem vænta mátti varð Sigurður mikill fagnaðarauki í samkvæmislífi og ástalífi Vest- mannaeyinga. Hann yrkir mikið, og hann leggst þar með tveim konum og á börn með báðum á sama árinu. Hann giftist þar nokkru síðar konu, sem átt hafði 2 börn sitt með hvorum manninum, og er um það mikil saga. Hann skildi fljótt við konuna án lög- skilnaðar, og svo sækir að honum sama ókyrrð og flökkulíf og fyrr. Haustið 1828 fer hann frá Vest- mannaeyjum vestur á land til frænda síns, sr. Jóhanns á Helgafelli, og er þar um veturinn. Næsta ár er hann þar eða flækist milli kunningja. Sumarið 1830 fær hann þá hugmynd að fara til Kaupmannahafnar og lesa lögfræði, sem þá var leyft án stúd- 180 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.