Heima er bezt


Heima er bezt - 01.05.1996, Blaðsíða 19

Heima er bezt - 01.05.1996, Blaðsíða 19
undir þunnum brekánum á beddum, sem klambrað hafði verið saman til þeirra nota. Reynt var að blanda saman þjóð- ernum, þannig að hverjum íslenskum stúdent var ætlað að hafa ofan af fyr- ir tveim til þrem útlendum, þá daga sem þeir dveldust hér á landi. Var það danskur piltur, Erik Bratting, og norsk stúlka, Gudrun Monsen, sem mér voru fengin til handleiðslu. Ekki sköpuðust nein varanleg vináttu- tengsl milli mín og þessara stúdenta, sem ég átti að mata á fróðleik um land og þjóð og reyna að sjá um að leiddist ekki úr hófi fram, og er ekki mitt að dæma hvort það tókst. Norska stúlkan var lítil og lagleg og ljúf í viðmóti, en nokkuð fannst mér gæta herraþjóðargorgeirs hjá piltinum. Til að mynda fysti blaða- ljósmyndara einn að taka mynd af Guðrúnu, sem skrýdd var fallegum norskum þjóðbúningi, og hafði stillt sér upp á stein í því skyni, og sannar- lega hefði hún sómt sér vel á ein- hverri kápusíðunni í sínu rauða og hvíta skarti, með stúdentshúfu á höfði og hinn fagra og tilkomumikla fjallahring að baksviði. En sá danski brást hinn versti við og linnti ekki látum fyrr en myndasmiðurinn sá sitt óvænna eftir nokkurt karp og hvarf á braut. Stúlkan hafði þar engan at- kvæðis- eða tillögurétt, þótt ekki leyndi sér gleði hennar yfir þeirri at- hygli, sem hún vakti og vonbrigði yfir málalyktum. Fyrri dag hátíðarinnar, 26. júní, setti Tryggvi Þórhallsson, þáverandi forsætisráðherra, hana með ræðu, en síðan steig Kristján konungur í ræðu- stól til að setja Alþingi, og flutti setningarformálann á íslensku, sem þó var naumast skiljanleg í fram- burði konungs og komu víst ein- hverjum í hug skopstælingar ágætra leikara okkar á málfari sumra Dana, búsettra hér á landi, sem voru að burðast við að tala íslensku. Síðari dag hátíðahaldanna skyldi okkur stúdentum hlotnast sú upphefð að hávelborinn jöfur heiðraði okkur með heimsókn í tjaldbúð okkar og handabandi. Gekk nú framfyrir skjöldu fyrirliði hins danska stúd- entaliðs, kallaði saman lýðinn í því skyni að kenna tilhlýðilega fram- komu við hið konunglegu handa- band. Var öllum hópnum raðað upp eins og síðar yrði þegar stóra stundin rynni upp, og rækilega brýnt fyrir mönnum hvernig þeir skyldu bera sig að. Aðferðin var sú, að þegar konungur stæði andspænis hverjum og einum, skyldi sá þrífa af sér húf- una með hægri hendi, flytja hana sem skjótast yfir í þá vinstri, halda húfunni að brjósti sér, hneigja sig og rétta konungi höndina. Þessi aðferð átti að sjálfsögðu við um piltana, ekki minnist ég hvernig stúlkurnar skyldu bera sig að, en auðvitað hafa þær haldið höfuðfötunum á kollin- um, sennilega hnébeygt og rétt fram höndina. Eftir myndum að dæma hefur þetta víst eitthvað ruglast og piltarnir staðið berhöfðaðir meðan sjóli þokaðist hjá. Nú rann upp hin stóra stund, kon- ungur birtist ásamt föruneyti sínu og gekk á röðina. Vék hann nokkrum orðum að sumum stúdentanna, m.a. þeim sem stóð mér á vinstri hönd, og man ég ekki betur en sá hafi verið Jóhann Skaftason, síðar sýslumaður. Einhverra hluta vegna hafði Jóhann vafið trefli um háls sér, enda svalt í veðri, og virtist það hafa orðið kon- ungi tilefni til nokkurrar undrunar, því hann spurði: „Er De forkolet, Mand?“ Hinn ungi og upprennandi konunglegi embættismaður varð svolítið flaum- ósa við, enda vill tiðum verða fátt um svör þegar stórt er spurt. Að kvöldi þessa dags neyttu stúd- entar ljúffengs kvöldverðar í skála þeim hinum mikla, sem reistur hafði verið við Valhöll, og var aðalréttur- inn soðið heilagfiski í kaperssósu, við ræðuhöld og hressilegan söng undir borðum. Bar þar ein rödd langt af öllum öðrum, hár og kristalstær tenór Einars Kristjánssonar, sem átti eftir að bera hróður sinnar þjóðar um lönd og álfur á litríkum frægðarferli sem virtur og dáður óperusöngvari. Þeim þætti stúdentamótsins, sem haldinn var á Þingvöllum lauk með hópgöngu undir fánum til Lögbergs, þar sem Thor Thors flutti kveðju frá norrænum stúdentum, og var síðan haldið til Reykjavíkur. Þá um kvöldið voru haldnir dans- leikir á Hótel Borg og Hótel íslandi, en daginn eftir gengið um bæinn, söfn skoðuð og annað þvílíkt. Þegar ég ásamt skjólstæðingum mínum, gekk upp Hverfisgötuna á leiðinni að Safnahúsinu, hafði safnast saman nokkur þyrping fólks á horninu við Ingólfsstræti, utan um bíl, sem þar stóð. Þarna hafði orðið einhvers kon- ar umferðaróhapp og ætlaði ég að ganga nær og forvitnast um hvort slys hefðu orðið á fólki. Þetta líkaði ekki danskinum, því hann greip í handlegg minn og bað mig láta af ótímabærri forvitni. Ekki man ég nú hvað þama hafði borið við á þessum tíma, kannski hefur það verið minni háttar árekstur, og sennilega um hann getið í blöðum, því slíkir atburðir þóttu fréttnæmir á þessum timum fárra ökutækja og tilbreytingalítils mannlifs. Eftir að hafa skoðað söfnin og rölt síðan um bæinn fram eftir degi, var gert hlé, sem m.a. var notað til stuttr- ar heimsóknar um borð í Hellig Olav, þar sem m.a. var leikinn þjóðsöngur íslands, þó með nokkuð öðrum blæ og minni fjálgleika en tíðkaðist í hefðbundnum, íslenskum flutningi. Mótinu lauk svo með miklum mann- fagnaði að Hótel Borg. Upp úr mið- nætti stigu svo hinir erlendu stúdentar á skipsfjöl og létu í haf. Svo sem að líkum lætur er margt úr minni liðið nú hálfum sjöunda áratug eftir atburði þá, sem hér er lít- illega drepið á. En þau myndbrot, sem upp úr standa, geyma enn angan löngu horfinna æskudaga. Ljósmyndir: Svavar Hjaltested. Birtar með góð- fúslegu leyfifrú Láru Hjaltested. Heima er bezt 175

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.