Æskan

Volume

Æskan - 01.01.1955, Page 18

Æskan - 01.01.1955, Page 18
ÆSKAN Gáfaéi han inn. Haninn rigsaði aftur og fram í hænsnagarðinum. Hann reigði sig svo af monti, að hver önnur skepna hefði farið úr liálsliðunum, því að liann hélt, að hann væri langgáfaðasti fugl i öllum heiminum. Þá har þar að ofurlítinn grátittiing, og hann settist á netið yfir hænsnagarðinum. — Ilvaðan kemur þú? spurði haninn. — Ég kem frá stóra skóginum, sagði grátittling- urinn. Ég kom hingað af því, að ég hef heyrt, að þú sért gáfaðasti fugl i viðri veröld. — Já, ég er það áreiðanlega, svaraði haninn. Ætlarðu kannski að spyrja mig um eitthvað? sagði haninn og baðaði vængjunum. — Já, eiginlega datt mér það nú í hug, sagði grátittlingurinn. — Spyrðu mig hvers sem þú vilt, sagði haninn. Ekki skal standa á mér að svara. — Geturðu sagt mér, hvað langt er héðan á heimsenda? sagði grátiltlingurinn. — O, ætli það ekki. Það er ægilega langt. Sérðu stóra fjallið þarna? Það er á heimsenda. — Hahaha, hló grátittlingur. Ég hef flogið mildu, miklu lengra, og samt komst ég ekki á lieimsenda. Þú ert líklega ekki eins gáfaður og af er látið. En allir geta gengið á vatninu þar, og hjól eru á öllum bátum, svo að það er sama, hvort þeir fara um sjó eða land. Eins eru öll liús á hjólum, svo að það er liægt að ferðast langa leið liggjandi i rúminu sínu. Það er nóg að segja að kvöldinu: 1 nótt langar mig að fara til Kína. Húsið heyrir það, og þegar þú vaknar, ertu kominn til Kína, og hvítklæddir þjónar bera þér kúfaða skál af soðnum hrís- grjónum og mata þig með tréteinum. I bíóunum eru sýndar aðeins kúrekamyndir, og hver, sem fer í bíó, fær tíu krónur fyrir það hjá bíóstjóranum. Allir mega góla eins og þeir vilja, og gólið er tekið á plötur, og sá, sem gólar hæst, fær gólplötu í verðlaun, og hún er svo spiluð yfir honum á hverju kvöldi á meðan hann er að sofna. 1 Letingjalandi safna menn peningum til þess að veggfóðra með þeim stofurnar sínar. Og það er ekki svo erfitt þar að safna peningum, þvi að þú færð alltaf tvöfalt til baka, ef þú skiptir seðli. Brúðurnar í því landi eru látnar læra að lesa, svo að telpurnar, sem eiga þær, þurfi þess ekki. Og kettirnir þar kunna að mjálma á öllum heims- ins tungumálum. Kaggi. 16 þá er annað, sem ég þarf að spyrja þig um. — Hver ætii að sé fegursti fugl i heimi? — Ég fer nú líklega nærri um það, því að það er ég sjálfur, sagði haninn. Grátittlingurinn hló aftur. — Þú ert nú meiri monthaninn. Ég hef séð mildu fegurri fugla en þig. Þú ættir að sjá páfuglinn, karl minn. Það yrði nú ekki mikið úr þér við liliðina á honum, og eins er um svaninn. Hann ber líka langt af þér. — Ég ætla bara að láta þig vita, að ég þoli ekki svona skítseiði eins og þú ert að móðga mig, sagði haninn. — Hve hátt geturðu flogið? spurði grátittlingur. — Ég hef nú öðru þarfara að sinna en að vera að flaksast um loftið í einliverju reiðileysi. En nú svara ég ekki fleiri spurningum og reyndu að hypja þig burt. En grátittlingur sat rólegur. — Ertu að bíða eftir því, að ég reki þig í burt? spurði haninn. — Gerðu það ef þú getur, sagði grátitlingur. En haninn gat það ekki, hvernig sem liann brölti og baksaði með vængjunum. — Þarna sé ég eitthvað hátt uppi, sagði grátitt- lingur og liallaði undir flatt og horfði upp í loftið. — Ég sé ekkert, sagði haninn. — Þá sérðu illa, garmurinn, og þú ættir að fá þér gleraugu, sagði grátittlingur. — Hvað segirðu? spurði haninn. — Það er örn að sveima þarna uppi. Hann er beint hérna uppi yfir núna. Haninn varð ofsaliræddur og gaf liænunum hættumerki. — Af hverju ertu að þessu? spurði grátittlingur. Þú ættir að vita, að örninn kemst ekki í gegnum netið yfir ykkur. Það sé ég nú, þó að ég sé ekki annað en grátittlingur. — Þetta er lildega rétt hjá þér, sagði hanninn. Ég lief ekki haft tíma til að hugsa út í það. Hann stökk óðara upp á kassa og gól i ósköpum: Gaggala- gó—ó! Það þýddi, að hættan væri liðin lijá. En grátittlingur sat á netinu og hreyfði sig hvergi. — Af liverju hypjarðu þig ekki í burt? sagði haninn og kamburinn á honum var eldrauður. Skilurðu elcki, að áheyrnartíminn er liðinn? — Það er naumast að þú notar viðhafnarorð, sagði grátittlingur. — Heldurðu, að kóngurinn í hænsnaríkinu tali eitthvert skrílmál? Nú er ég huinn að hlýða á þitt erindi, og nú býst ég við fleiri áheyrnargestum. — Á liverjum áttu von? spurði grátittlingur. — Ja, það veit ég ekki. Það getur vel verið

x

Æskan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.