Æskan

Árgangur

Æskan - 01.05.1960, Blaðsíða 9

Æskan - 01.05.1960, Blaðsíða 9
ÆSKAN hœttur Hinn heimsfrægi Walt Disney, höf- undur Mickey Mouse, Andrésar And- ar, Plútós og fjölmargra annarra vin- sælla teiknimynda og ævintýra, hefur nú lagt þau öll til hliðar og hætt að framleiða þau. Ástæðan er sú, að það er of dýrt. Seinasta rnyndin, sem Disney framleiðir, er ævintýrið um Þyrnirósu. Walt Disney er sonur bygginga- meistara í Chicago, sem var af írskum ættum. Hann er fæddur 5. desember 1901. Disney á það sammerkt með mörgum frægustu mönnum Banda- ríkjanna, að hann byrjaði starfsferil sinn sem blaðasöludrengur. Hann byrjaði það starf 9 ára gamall. En erfitt gæti það þótt nú á dögum, að þurfa að fara á fætur klukkan fjögur á hverjum morgni, eins og hann var vanur að gera, til þess að bera út blöð fram til klukkan 6, en þá varð hann að flýta sér heim, til þess að fá sér morg- unmat, og þjóta í skólann. Frá blautu barnsbeini var það mesta yndi hans og ánægja að teikna, þó að það yrði ekki fyrr en seinna á ævinni, sem teikningin varð atvinna hans. Á þessu ári eru liðin 33 ár síðan Disney sendi frá sér fyrstu teikni- myndina, en það var mynd um Mickey Mouse. Fyrsta langa teikni- kvikmynd hans var „Mjallhvít og dvergarnir sjö“, en alls mun hann hafa sent frá sér á milli 40 og 50 langar kvikmyndir. Mikki að koma af veiðum. Mismæli. Kennari nokkur við sænskan rikisskóla, 48 ára gamall, hafði mjög lág laun, svo að hann gat varla lifað af þeim. Hann átti konu og 7 börn, en hafði aðeins 800 kr. i árslaun. Þetta var á þeim timum, þegar Karl fimmti var konungur i Sví])jóð. Hvað eftir annað reyndi kennarinn að sækja um betri stöðu, en allt reyndist það árangurslaust. Vinir hans réðu honum nú til þess að tala við konunginn og biðja hann um hjálp. Hann fór að ráðum þeirra, og einn góðan veðurdag kom að því, að liann skyldi ganga fram fyrir konung. Hann var ákaflega taugaóstyrkur og feiminn, er hann gerði sér ljóst, að hann átti eftir stutta stund að standa frammi fyrir sjálfum konung- inum. „Um hvað ætlar þú að spyrja?“ sagði konungurinn. „Yðar hátign. Ég er 800 ára gamall, en hef aðeins 48 krónur í árslaun." „Hvað ertu að segja, maður?“ spurðí konungurinn. „Nei, ég bið yður að fyrirgefa mér, ég hef 800 krónur í laun og er 7 ára gamall.“ „Hvað er að heyra þetta,“ sagði kon- ungur. „Ó, ég bið yður um náð og miskunn, yðar hátign, ég á við það, að ég er 48 ára gamall, lief 7 krónur í laun og á 800 börn.“ „800 börn?“ „Ó, ó, yðar náð, ég veit ekki hvað ég á að segja." „800 börn,“ endurtók konungurinn hlæj- andi og lagði höndina á öxl kennarans. „Slikur maður verðskuldar að fá betri stöðu, ég skal hugsa til þín, og vertu sæll.“ Vesalings kennarinn varð nú enn rugl- aðri við þessi orð konungs, og gekk í leiðslu út úr liöllinni. En eftir mánuð hafði konungur efnt lof- orð sitt. að fara að bjarga einhverju af því, sem þarna var á floti, en Spilett kom þeirn til þess að nema staðar. „Þið gleymið föntunum sex, sem komust í land,“ sagði hann. Þeim varð nú öllum litið til Miskunnarár. En ekkert sást þar til ræningjanna. Þeir höfðu að líkindum flúið lengra inn á eyjuna, þegar þeir heyrðu sprenginguna og sáu skipið farast. „Við skulum láta þá eiga sig fyrst um sinn,“ sagði Cyrus Smith, „því að þótt þeir séu vopnaðir, erum við þó jafnmargir þeim.“ Þeim Pencroff og Ayrton tókst að bjarga flestu því, Sem þarna var á floti, og þeir töldu að gæti komið þeim að gagni, en hinir drógu á land. Meðal þess, sem þeir náðu, var nokkuð af lifandi alifuglum, er sjóræningjarn- ir höfðu ætlað að hafa sér til matar. Pencroff gerði sér vonir um, að ef til vill mætti gera við skipið, og þá myndu þeir geta komizt á því til byggðra landa. Og þótt þeir félagar kynnu vel við sig á eynni,. langaði þá þó alltaf heim. Meðal þess, er flaut þarna í sjónum, urðu þeir Pen- croff og Ayrton varir við fimm eða sex lík, og þekkti Ayrton, að eitt þeirra var Bob Harvey, foringi ræningj- anna. Þegar fór að fjara, bárust líkin, og það af brakinu,, sem þeir félagar liöfðu ekki hirt, til hafs. Framliald. 97

x

Æskan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.