Æskan - 01.05.1960, Blaðsíða 24
ÆSKAN
í dýra^arðinttin.
I'egar við mamma vorum úti í Kaup-
mannaliöfn, fórum við i Dýragarðinn. I>ar
var nú margt skrýtið að sjá. Við sáum
birai, ljón, tígrisdýr og apa. Mér þótti
mjög gaman að horfa á apana. Ég vildi
hc-lzt ekki fara þaðan. Þeir voru svo lið-
ugir, að þeir fóru hara kollhnís í loftinu,
og svo liöfðu þeir líka rólur til að leika sér
í. Ég sá líka fjöldann allan af fuglategund-
um. Páfagaukarnir voru ákaflega fallegir,
enda voru margir menn að mynda og
teikna þá.
Eiturslöngurnar voru aftur á móti ekki
eins fallegar, og ég var bara hálf hrædd
við, að þær kæmu út úr búrunum. Og svo
leðurhlökurnar, sem héngu á fótunum og
steinsváfu.
Við sáum lika margar fisktegundir, gull-
fiska og marga fleiri, sem við þekktum
ekki. Það voru líka kindur þarna. Þær eru
allt öðruvísi en olikar kindur. Þær eru
með svo löng horn og eins og þau séu
snúin. Þarna voru liirtir, sem voru svo fal-
Icgir. Svo var þarna skjaldbaka, sem var
eins og steinn. Hún var þá húin að draga
hausinn og fæturna inn í skelina. Og enn-
fremur sá ég asna, giraffa, krókódíla, fila
og margt fleira.
Bergljót Rafnsdóttir.
VERÐLAUNAÞRAUT ÆSKUNNAR
Hver þekkír borgímar?
Fyrstu verðlaun: Flugfar til Kaup-
mannahafnar fram og aftur með
Viscount-skrúfuþotu Flugfélags ís-
land.
• Ónnur og þriðju verðlaun: Flugferð-
ir til Akureyrar og Vestmannaeyja.
SJÖUNDI ÁFANGI.
Nú heimsækja Helga og Jón nnnað
stærsta land Evrópu að flatarmáli og
liið finunta í röðhini að ihúatölu. Stærð
þess er 550.000 ferkílómetrar að flatar-
máli, og íbúar um 40 milljónir. Landið
liggur hér um bil að liálfu leyti að sjó
og að hálfu leyti að öðrum löndum. Að
landslagi til skiptist landið i tvo nokk-
urn veginn jafnstóra hluta, norður- og
vesturlilutinn er láglendur, suður- og
austurhlutinn hálendur. Iðnaður er mik-
ill og mestu járnnámur Evrópu eru i
landinu. Við heimsækjum höfuðborgina.
íbúatalan er um 4 milljónir. Borgin cr
miðstöð vísinda og lista, og þar er einn
frægasti og elzti háskóli í hcimi. Ferða-
nvannastraumur er meiri til borgariun-
Mynd 10. - Hvað heitir þessi höfuðborg?
ar en til nokkurrar annarrar liöfuðborg-
ar, enda er þar margt að sjá.
Um þessi glæsilegu verðlaunaboð geta
allir lesendur ÆSKUNNAR undir 15 ára
aldri keppt.
Ekki verður tekið á móti neinum
ráðningum fyrr en að loknu ferðalaginu.
— Þjónn! Er þetta kálfasteik eða svína-
steik, scm þér hafið gefið mér?
— Finnið þér það ekki á bragðinu?
— Nei!
— Þá má yður standa á sama hvort er.
★
— Hvar er diskurinn þinn, Nonni?
— Ég er að orna honurn, pabbi.
112