Æskan

Árgangur

Æskan - 01.10.1962, Blaðsíða 2

Æskan - 01.10.1962, Blaðsíða 2
Tóbakið er nautnalyf, sem að ýmsu leyti hefur svipuð áhrif og áfengi. Það er sameiginlegt öllum öðrum nautnalyfjum i ])vf að það vekur þægilega til- finningu um þrótt og velliðan, þegar þcss er lióflega neytt. Mikilvægasti munurinn á áfengi annars vegar og tóbaki hins vegar er sá, að tóbakið vekur þcssa þægindatilfinningu, án þess að menn missi vald yfir sjálfum sér eða dómgreind sinni. Þsssi munur stafar af þvi, að tóbakið er nautnalyf af annarri tegund en áfengið. Nikotinið, sem er það efni tóbaksins, er þessum áhrifum veldur, er að að vísu deyfilyf á þann hátt, að það hefur lamandi eitur- verkanir á taugakerfið. En sá er munur þess og áfengis og annarra skyldra deyfilyfja, að það hefur ekki áhrif á heilann, nema meðan menn cru óvanir að neyta þess, eða þess er neytt í óvenjulcga stóruin stil ellegar þá í sterkum skömmtum. Nikotinið hefur fyrst og fremst áhrif á sjálfvirka tauga- kerfið, örvar það i fyrstu, cn deyfir cr frá líður. Óblandað nikotin er afar sterkt eitur. Þó að ekki sé neytt nema nokkurra milligramma af hreinu nikotini, getur það valdið vanlíðan, og 5—6 scntigramma inntaka get- ur orðið banvæn. í lifandi blöð- um tóbaksjurtarinnar er mis- munandi mikið nikotin, allt upp i 10%, en minnkar við gerjun þeirra og verkun. Við reykingu rýkur nokkur hluti þess burt, nokkru blása menn þegar frá sér með reyknum, svo að aðeins minni liluta þess cr neytt. Mönnum telst svo til, að við reykingu venjulegs vindils, neyti menn 5—10 milligramma af nikotini, cn þó noklcru meira, ef tóbakið er rakt, og einnig ef menn sjúga reykinn langt niður í kok eða lungu (allt að áttfalt meira). Nikotinið safnast sérstaklega fyrir í vindlingastúfum. Skað- leg áhrif tóhaks á börn og ung- linga koma fyrst i Ijós með bráðri eitrun, scm lýsir sér í máttleysi, mikilli munnvatns- myndun, fölu yfirliti, köldum svita, ógleði, uppköstum og jafnvel niðurgangi. En þetta er þó ekki svo mjög að óttast sem cinkcnni þau, er rekja má til langærrar tóbakseitrunar. Sér- staklega er sú tóbakseitrun liáskaleg börnum og ungling- um, því að hún virðist verka á aðalstöðvar taugakerfisins, og þar á meðal þær taugastöðvar, er stjórna líkamlegum vexti og andlegum þroska. Rannsóknir á skólafólki liafa leitt í ljós, að það sem reykir, er þróttminna við námið, hcgðar sér lakar og er læpara til heilsu. Álirif stöðugrar tóbaksneyzlu á fullorðið fólk eru mjög mis- niunandi. Stafar það eflaust af mismunandi mikilli viðkvæmni ýmissa líffæra. Vegna þess að nikotinið verkar fyrst og fremst á sjálfvirku taugastöðv- arnar, cr þess að vænta, að áhrifin komi fyrst i ljós í þeirri starfsemi líkamans, sem stjórn- ast þaðan, t. d. í meltingarólagi eða truflunum á starfi hjartans. Truflanir á starfsemi hjartans geta jafnvel orðið allverulegar, mönnum finnst hjartað slá ó- reglulega og þröngt verði um ])að. Þessi cinkenni, sem eink- um koma fram á gömlum reyk- ingamönnum, líkjast mjög ein- kennum þeiin, er ltoma fram við kölkun í slagæðum lijart- ans, án þess þó að liægt sé að telja það sannað, að tóbaks- neyzla orsaki þann sjúkdóm. Hjá ungum tóbaksneytendum, og einkum hjá vindlingareyk- ingamönnum, koma fram sjúk- dómseinkenni, sem rekja má til taugakerfastöðvanna: leiði, svimi, riða og svefnleysi, en það eru cinkcnni, sem erfitt er að þekkja frá einkennum venju- legrar taugaveiklunar. Einnig er liálsbólga, samfara ógleði og uppköstuin, einkum á morgn- ana, mjög algengur fylgifisltur óhóflegrar tóhaksneyzlu. Sjúk- dómscinkenni vegna varanlegr- ar tóbaksneyslu koma misjafn- lcga fljótt í ljós eftir því liver í hlut á. í því efni kemur hið sama fram og við áfengiscitrun, að mótstöðuaflið er mjög mis- munandi. Höfuðreglan er sú, að það þverr, er menn verða gaml- ir, en annars virðist það geta verið talsverl breytilegt hjá sama manni og stundum cins og öldugangur á þvi, hvað það er mikið. Þó að óhófsncyzla tóhaks sé aðallcga meðal fullorðins fólks, er ýmissa orsaka vegna inest ástæða til að snúa máli sínu til ungu kynslóðarinnar i barátt- unni gcgn eitri þcssu. Þar hafa foreldrar og ltennarar mikið Iilutverk að vinna. Orðsendingar. Sendið Æskunni ljósmýndii'i frásagnir, sögur og allt sem þið haldið að hún birt ykkur til skemmtunai'’ Utanáskrift ritstjórans er' Grimur Engilberts, póstliúlf 601, Reykjavík. Þeim unglingum, sem biðj11 um bréfaviðskipli við jafn- aldra sina í Danmörku Noregi, skal bent á að skrifa lil þessara blaða: Norsk Barneblad, Oslo> Norge. Dansk Familieblad, ByH" mestervej 2, Köbenhavn NV-> Danmark. • Eg hef vinnuna. Drengur nokkur kom inu 1 verzlun og spurði kaupinann' inn hvort liann gæti lánað séi sima. „Sjálfsagt, gerðu svo vcb Jim,“ sagði kaupmaðurinn; Hann gat ekki varizt því a' lieyra livað Jim sagði i símanin „Halló,“ sagði Jim. „Er Það dr. Brown ? .... Heyrið Þ^r doktor, þér þurfið vist ekki a fá yður dreng til að sjá nn1 garðinn yðar i sumar? ... • N11 ’ svo þér hafið dreng til ÞesS' .... Og cr hann sæmilegui Eruð þér ánægðir mcð stör hans? .... Nú, jæja, er b*U® ágætur? .... Eruð þér viss11 um það, doktor? .... Jæja, ])ví svo er. Þakka yður sam fyrir. Verið þér sælir.“ Kaupmaðurinn sagði: þú fékkst ckki vinnuna, J*nl Það var slæmt.“ „Ég lief vinnuna. Ég vai' 0 cins að vita hvernig lionum aði við mig,“ svaraði Jim.

x

Æskan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.