Æskan

Árgangur

Æskan - 01.10.1962, Blaðsíða 10

Æskan - 01.10.1962, Blaðsíða 10
ÆSKAN Eitthvað vaníar. Hvað er Það> sem --------------------- vantar á myndina? Þið getið komizt að því, ef þið dragið línu frá punkti 1 og áfram í réttri töluröð. Þegar mynd- inni er lokið, getið þið litað hana. 1. Hve stórt er Grænland? 2. f hvaða riki voru fyrst gef- in út dagblöð. 3. Hver fann þyngdarlögmál- ið? 4. Getur ugla séð í algeru myrkri? 5. Hvað þýðir orðið Amen? 6. Hvað verpir akurhænan mörgum eggjum? 7. Hver var fyrsti islenzki ráðhcrran n? 8. Hvaða tvær uppfinningar, sem báðar byrja á p, eigum við Kínverjum að þakka? 9. Hvað er ísland mörgum sinnum stærra en Dan- mörk ? 10. Hvað er Maraþonhlaupið langt? Svör er að finna á bls. 211. HEILABROT Ég lief símanúmer, sem er nákvæmlega það sama og hús- núinerið margfaldað með sjálfu sér, sagði A. Það er slæmt Jiví þannig er það einnig hjá mér, sagði B. Þegar þeir fói-u betur að athuga þessar fjórar tölur, þá komust þeir að því að bæði hús- og símanúmer A var það sama og hús- og símanúmer B ef því er snúið við. Hvaða hús- og símanúmer liöfðu A og B? Svör er að finna á bls. 212. uww Nú fór ég að rannsaka peningabudduna og fann þar þrjá spegilfagra skildinga og tvo hálfkrýninga, vafða innan í pappír, sem á var ritað: Til Davíðs með hjart- ans kveðju minni. Ég var ákaflega snortinn af hugulsemi Peggotty og gat ekki að því gert, að ég fór að skæla. Þegar við höfðum ekið spölkorn, spurði ég ökumann- inn, livort hann ætti að aka mér alla leið. ,,Hvert?“ spurði hann. „Til Lundúna!" „Nei, klárinn minn mundi nú steindrepast, áður en hann kæmist hálfa leið þangað.“ „Ætlið þér þá ekki lengra en til Yarmouth?“ „Nei, þar á ég að koma þér í póstvagninn, og hann a að fara með þig til þessa staðar, . . . hvar sem hann nu er.“ Þegar Barkis ökumaður hafði mælt þessi orð, þagði hann langa hríð. Ég tók upp kökurnar og fór að gæða mér á þeim, og þar sem mig langaði að víkja góðu að Barkis, gaf ég hon- um eina. , Hann tók við henni án þess að segja orð og gleyp11 liana í einum munnbita. Svo sat hann dálitla stund hugsi, en síðan spurði hann: „Hefur hún bakað þær?“ „Hver?... Peggotty?" „Já, hún!“ „Já, liún bakar allar kökur hjá okkur og býr til allan mat.“ „Segirðu satt?“ Síðan þagði Barkis lengi, en að lokum sagði hann: „Öngvir kærastar . . . eða hvað?“ „tlvað eigið þér við?“ „Ég á við kærasta... Enginn, sem er með henni?" „Ó, Peggotty,... nei, hún hefur aldrei átt neinn kaer- asta!“ Þá fór Barkis að blístra og sat nú lengi og einblíndi a klárinn. „Jæja,... svo það er hún, sem sér um allan kökubakst- urinn og matartilbúninginn?“ „Já, allt saman," anzaði ég. „Heyrðu, þú skrifar lienni náttúrlega?" „Viltu þá muna að skrifa: Barkis er reiðubúinn . • • Ætlarðu að gera það?“ „Á ég bara að skrifa, að Barkis sé reiðubúmn?" „Já, ekkert annað en þetta: Barkis er reiðubúinn.' Ég stakk upp á því, að hann segði þetta sjálfur við hana, þegar hann kæmi til baka, en þá hristi hann höf- uðið, svo að ég lofaði, að ég skyldi skrifa þetta. Eftir þetta samtal okkar maplti Barkis ekki framar orð frá vörum, og við þokuðumst áfram áleiðis til Yarmouth- Ökumaðurinn stöðvaði vagn sinn við greiðasölustað- 202

x

Æskan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.