Æskan - 01.10.1962, Side 8
um þetta núna, finnst mér, að þessir fimm dagar Irafi
verið eins og heilt ár.
Að kvöldi fimmta dagsins heyrði ég, að nafn mitt var
nefnt fyrir utan dyrnar. Ég flýtti mér upp úr rúminu og
æddi fram að dyrunum með útbreiddan faðminn.
„Ert það þú, Peggotty?"
Mér var ekki anzað, en aftur heyrði ég nafn mitt nefnt.
Ég fálmaði eftir skráargatinu, þangað til ég fann það,
síðan þrýsti ég vörunum að því og hvíslaði:
„Ert það þú, elsku Peggotty mín?“
„Já, það er ég, elsku bezti Davíð minn, en hafðu nú
hægt um þig eins og mús, því, annars heyrir kötturinn
til okkar.“
„Hvernig líður henni mömmu? Er hún mjög reið við
mig?“
„Nei, ekki mjög,“ anzaði Peggotty grátandi.
„Hvað á að gera við mig, Peggotty?"
„Skóli.. . rétt hjá London!“
„Hvenær, Peggotty?“
„Á morgun!"
„Fæ ég ekki að sjá hana mömmu?“
„Jú, á morgun, áður en þú ferð.“
Og síðan fór Peggotty að hvísla ýmsu að mér gegnum
skráargatið, og aldrei mun ég gleyma alúðinni og kær-
leikanum, sem lýstu sér í sundurlausu setningunum, sem
hún sagði. .
„Davíð minn góður. Það er ekki af því, að mér þyki
minna vænt um þig upp á síðkastið, . . . að ég hef ekki
200
ÆSKAN er stærsta og ódýrasta barnablaSið. Flytur fjölbreytt
efni við liæfi barna og miglinga, svo sem skemmtilegar framhalds-
sögur, smásögur, fræðandi greinar og margs konar bætti og þrjar
myndasögur sem eru: Ævintýri Litla og Stóra, Kalli og Palli og
Bjössi bolla. Síðasti árgangur var 244 síður og þar birtust yfir 500
myndir. Allir þeir, sem gerast nýir kaupendur að Æskunni, og
borga yfirstandandi árgang, 55 krónur, fá í kaupbæti HAPPA-
SEÐIL ÆSKUNNAR, en vinningar hans verða 12. — Þeir eru:
1. Flugferð á leiðum Flugfélags íslands liér innanlands. 2. Tíu af
útgáfubókum Æskunnar, eftir eigin vali. 3. Innskotsborð. 4. Tiu
af útgáfubókum Æskunnar, eftir eigin vali. 5. Pennasett, góð teg-
und. 6. Ævintýrið um Albert Schweitzer. 7. Aflraunakerfi Atlas.
8. Eins árs áskrift að Æskunni. 9. Fimm af útgáfubókum Æskunn-
ar, eftir eigin vali. 10. Ævintýrið uin Edison. 11. Fimm af útgáfu-
bókum Æskunnar, eftir eigin vali. 12. Eins árs áskrift að Æskunni.
Ekkert barnaheimili getur verið án ÆSKUNNAR
Ég undirrit......... óska að gerast áskrifandi að Æskunni og
sendi hér með áskriftargjaldið, kr. 55.00.
Nafn: ............................................................
Heimili: .........................................................
Póststöð: ........................................................
verið eins vingjarnleg við þig, .. . en það er sjálfs þm
vegna . .. og vegna hennar móður þinnat ! Heyrirðu, hvað
ég er að segja, Davíð minn? Heyrirðu til mín?“
„Já, Peggotty,... já,“ kjökraði ég.
„Elsku drengurinn minn, ... bezti drengurinn. ... Þu
mátt ekki gleyma mér. Ég mun aldrei gleyma þér, og
ég skal víst vera hjá henni móður þinni ... alltaf, .. • °S
þú verður að skrifa mér, ... og ég ætla að skrifa þér. • ■
„Þakka þér íyrir, elsku Peggotty. ... Já, skrifaðu nu
oft og segðu mér, hvernig henni mömmu líður og hon-
um Ham, bróður þínum, og henni Millu litlu, . . t ölluffl
saman!“
Peggotty lofaði því, og svo kysstum við bæði skráar-
gatið með mikilli blíðu.
Aumingja blessunin hún Peggotty! Að móður minni
einni undanskilinni þótti mér ekki eins vænt um nokkra
manneskju og hana.
Morguninn eftir kom ungfrú Murdstone upp til min
með eitthvað af fötum. Hún skipaði mér að fara í þaU
og sagði, að ég ætti að fara í skóla, sem væri nálægt
London.
Þegar ég var klæddur, fór hún með mig niður í dag-
stofuna, þar sem ég átti að fá morgunverð.
Það var enginn maður í stofunni nema móðir mín, og
undir eins og ég sá hana, hljóp ég til hennar, fleygði mer
í fangið á henni og grátbændi hana um að fyrirgefa ffléi-
„Æ, Davíð. Hvernig gaz.tu fengið af þér að vera svona
vonur við mann, sem ég elska! . . . Ég er fús til að fyrir'