Æskan - 01.02.1972, Qupperneq 16
Ballettskóli
Bolsjoj-leikhússins.
Maja Plísetskaja, Vladimír Vasíléf og Ékaterina Maksim-
ova, Mikhail Lavrovski, Natalja Bessmertnova og Nína
Sorokina — allar stunduðu þessar stjörnur Bolsjoj balletts-
ins nám í listdansi i listdansskóla Bolsjojleikhússins i
Moskvu.
Til skólans, sem brátt heldur upp á tvö hundruð ára
afmæli sitt, bárust 1500 umsóknir um inntöku árið 1970
frá ýmsum borgum og bæjum Sovétríkjanna.
Nemendur eru teknir í skólann tíu ára að aldri eftir
þriggja ára nám í venjulegum barnaskólum, og þrettán ára
— eftir fimm ára nám.
Árlega eru ekki nema 100 piltar og stúlkur tekin inn i
skólann, og er helmingur barnanna úr sambandslýðveld-
unum.
Mörgum tárum er úthellt eftir fyrstu umferð i inntöku-
prófinu. Hún stendur yfir i þrjá daga og starfar inntöku-
nefndin langt fram á kvöld á degi hverjum. Hún á við mjög
erfitt verkefni að glíma: Það þarf að velja stúlkur og pilta.
sem eru vel og fallega vaxin og fullnægja auk þess þeim
kröfum, sem gerðar eru til væntanlegra listdansara.
Önnur umferð inntökuprófsins er læknisskoðun. Börnin
verða að vera við ágæta heilsu — hundrað prósent sem
kallað er — því að annars er varla hægt að búast við, að
þau standist það likamlega álag, sem lagt er á listdansara.
i þriðju umferð eru venjulega ekki eftir nema rétt rúm-
lega 100 krakkar. Og nú þurfa þau að gera það, sem þeim
þykir erfiðast — að dansa frammi fyrir augliti Galínu Úlan-
ovu t. d. eða Maju Plísetskaju. En andrúmsloftið er gott i
salnum og umsækjendur mega dansa hvaða dans, sem
þelm sýnist.
Það er gert ráð fyrir því, að inntökunefndin sé fullkom-
Ein af hinum ungu dansmeyjum.
14
i