Æskan - 01.02.1972, Page 18
HVERS VEGNA ERU STUNDUM
29 DAGAR í FEBRÚAR?
Hvers vegna voru 29 dagar núna i
febrúar? Mörg ykkar hafa eflaust velt
þessu fyrir sér án þess að komast að
neinni niðurstöðu. Jú, það er að vísu
hlaupár [ ár, en hvers vegna er einum
degi fleira í hlaupári en venjulegu ári?
Til þess að finna svar við því verðum
við að fara 2000 ár aftur i tímann. Þá
var Róm aðal-menningarmiðstöð heims-
ins, og þá réði þar ríkjum maður að
nafni Júlíus Cæsar.
46 árum áður en okkar tímatal byrjar
lögleiddi hann hið svonefnda júlianska
tímatal, sem er raunar mjög líkt okkar
timatali.
Að öllum líkindum hefur Cæsar að
nokkru farið eftir tímatali Egypta, þegar
hann gerði þessa breytingu. Egyptar
miðuðu tímatal sitt við svonefnt sólarár,
en hjá Rómverjum var tímatalið þannig,
að árið 46 átti að hafa 455 daga. Eftir
þessa breytingu Cæsars voru 365 dag-
ar í árinu, en fjórða hvert ár var nefnt
hlaupár, og þá bættist einn dagur við
i febrúar, sem þá var siðasti mánuður
ársins.
í einu sólarári eru 365 dagar og tæp-
ir 6 timar. Útreikningur Cæsars var ekki
alveg nákvæmur af þvi að hann reikn-
aði með þvi, að í árinu væru 365 dagar
og nákvæmlega 6 tímar. Hann mis-
reiknaði aðeins um nokkrar minútur, en
það var nóg til þess, að á næstu öldum
komst á misræmi milli gangs sólarinnar
og þágildandi tímatals.
Árið 1582 ákvað Gregor páfi 13. að
sleppa úr 10 dögum til þess að laga
skekkjuna. Næsti dagur á eftir 4. októ-
ber það ár varð þess vegna ekki 5.
heldur 15. október.
Til þess að slík skekkja kæmi ekki
fyrir aftur var ákveðið, að siðasta hlaup-
ár hverrar aldar skyldi ekki vera hlaup-
ár nema ártal aldarinnar væri deilanlegt
með 400. Árið 1600 var þess vegna
hlaupár en ekki árið 1700, árið 1800
var hlaupár en ekki árið 1900. Þetta
timatal er nefnt gregoríanska tímatalið
og hefur verið tekið upp i flestum lönd-
um heims. Síðast var það tekið upp í
Sovétríkjunum árið 1917, en þá var
timatalið þar orðið 13 dögum á eftir
okkar tímatali. Byltingin 7. nóvember er
lika oft nefnd októberbyltingin þarlendis.
Námið i skólanum og dvöl i heimavist hans er ókeypis.
Námstiminn er sex til átta ár. Á þessum tima fá nemendur
almenna undirstöðumenntun um leið og þeir læra listdans
og nema líka leikhússögu, ballettsögu, tónlistarsögu og lista-
sögu. Og mikil rækt er lögð við nám i frönsku, þar sem
öll hugtök hins sígilda dans eru af gamalli hefð á frönsku.
Einnig er kennd leiklist og förðun, og námskeið eru haldin
í fagurfræði.
En aðaláherzlan er lögð á sigildan dans. Með því að lita
við í nokkrum bekkjum er hægt að fylgjast með því,
hvernig nemendur ná smám saman skref fyrir skref valdi
á hinum ýmsu flóknu þáttum danslistarinnar. Æfingar við
slána, á miðju gólfi, fyrstu stökkin, snúningar... Dansinn
verður æ flóknari og kröfur til nemenda stöðugt meiri. Og
i hverjum nýjum bekk eru nýjar greinar danslistarinnar
kenndar: sögudans, karakterdans og dúett.
Kennsluaðferðir ( skólanum mótast af viðleitni til að
varðveita beztu hefðir hins rússneska balletts og hagnýta
að fullu hina auðugu arfleifð, sem beztu kennarar fyrri
tíma hafa látið eftir sig, og svo þjóðdansa. Stöðugt er
verið að fullkomna kennsluaðferðir eins og reyndar allan
hinn klasslska ballett í heild.
Það er verkefni skólans, að tilvonandi listdansarar nái
ekki aðeins fullu valdi á hinni flóknustu danstækni, heldur
geti lika túlkað listrænt hvaða hlutverk sem er á sviðinu.
Verkefnaval Bolsjoj-leikhússins hefur að sjálfsögðu áhrif
á námsskrá skólans — bæði gamlar og nýjar sýningar þess.
Sviðsreynsla hefur mikilvægu hlutverki að gegna við mót-
un hinna ungu listamanna. Frá unga aldri taka börnin þátt
í sýningum Bolsjoj-leikhússins. Og skólinn hefur einnig
sinar eigin sýningar, sem fara fram á sviði Bolsjoj-leikhúss-
ins við góðar undirtektir.
Frá skólanum útskrifast listamenn sérhæfðir í ýmsum
dansgreinum: sigildum dansi, leikdansi og þjóðdönsum. Að
námi loknu eru listamennirnir sendir til leikhúsa í hinum
ýmsu borgum Sovétríkjanna, þar sem þeir eru strax teknir
á fast kaup.
Ballettskólinn fór fyrstu sýningarferð sína til útlanda til
Parísar árið 1968, og sýndi í leikhúsinu á Eliseivöllum, en
þar fór fram fimmta alþjóðadanshátíðin. Nemendur ballett-
skólans sýndu þarna án þess að taka þátt í danskeppninni.
En leikni þeirra var svo mikil, að þvert ofan í allar reglur
voru þau sæmd aðalverðlaunum Parísar, „Grand prix“.
Núgzar Matiasjvili.
APN.