Æskan - 01.02.1972, Page 48
KNATTSPYRNA
o o
íþróttin okkar, knattspyrnan, er vafalaust
vinsælasta iþróttagrein i heimi. Drengir á
öllum aldri þekkja varia betra og skemmti-
legra tómstundagaman, en að leika knatt-
spyrnu með félögum sínum. Þvi miður eru
leiksvæðin víðast alltof fá og lítil, og það
er því mjög aðkallandi verkefni yfirvaida á
hverjum stað að bæta úr þvi.
Stundum getið þið sjálfir jafnað svolitla
flöt, þar sem hægt er að setja upp litil
mörk, en ef þið viljið verða góðir knatt-
spyrnumenn, þá er það ótrúlega þýðingar-
mikið, að þið byrjið mjög snemma að
leika ykkur með knött.
Þið þurfið að kynnast knettinum, hreyf-
ingum hans og duttlungum, hvernig hann
hoppar og skoppar, snýst og veltur, og
hvernig bezt er að hemja hann hverju
sinni.
Þegar þið farið að stunda knattspyrnu
skipulega i knattspyrnufélagi, er það mjög
mikilvægt, að þið lærið knattspyrnuna stig
af stigi, frá þvi einfalda til þess flóknara,
frá þvi auðvelda til hins erfiða.
Því miður vill oft verða misbrestur hér
á, og eruð þið þá að glíma við sömu at-
riðin á sama hátt í ölium flokkum.
Það er að sjálfsögðu hlutverk þjálfaranna
og félagsins að skipuleggja þjálfun flokk-
anna, en fjölmargir drengir hafa enga
þjálfara og alltaf er mikill timi utan fasta
æfingatimans, sem þið notið til að æfa
ykkur.
í þeirri von að geta orðið ykkur og þjálf-
urum ykkar til hjálpar verða því tekin
saman hér i nokkrum línum þau verkefni,
sem æskilegast er, að þið glímið við á
hverju aldursskeiði fyrir sig.
7—9 ÁRA:
Knatttilfinning.
Eins og áður sagði, er það mjög mikil-
vægt, að knattspyrnumenn byrji á unga
aldri að leika sér með knött. Knatttilfinn-
ingin er undirstaða knatttækninnar, og
þessa tilf inningu fyrir knettinum öðlast
maður einungis á mjög löngum tíma.
Drengir á þessum aldri eru fullir af
áhuga á leikjum og keppni, og það er þvi
auðvelt að finna verkefni fyrir þá. Þeir
þurfa helzt að æfa i litlum hópum, hafa
sem flesta knetti, og er þá oft unnt að
nota létta gúmmíknetti. ef fótknettir eru
ekki nægilega margir.
Helztu æfingar eru að kasta, grípa og
spyrna knettinum, ým: knattleikir (þó
ekki skipuleg knattspyrna með fullskip-
uðum liðum), mjög einfaldar knattspyrnu-
æfingar og knattrekstur.
10—12 ÁRA:
Skipulegar knattæfingar.
Á þessum aldri er maður eftirtektarsam-
ur og iðinn og fer að hugsa um það, á
hvern hátt bezt sé að æfa eitt og annað.
Flestir eru metnaðargjarnir og vilja vera
góðir knattspyrnumenn og helzt leika í
framlinu og skora mörk.
Yfirleitt eru drengir á þessum aldri i
mjög góðu jafnvægi likamlega og and-
lega. Þetta er því heppilegasti tíminn fyrir
skipulegar knattæfingar.
Æfingar þurfa að vera fyrst i kyrrstöðu
og síðan i leikformi. Stöðvun knattar,
spyrnur og knattrekstur þarf að æfa vand-
lega og einnig sendingar og einfaldan
samleik.
Gott er að leika saman i litlum hópum,
6—7 í hvoru liði. Um leikaðferðir þarf ekki
að ræða ýtarlega, en þó verður að leggja
éherzlu á mikilvægi samleiks og að dreng-
ir séu ekki allir i hóp, þar sem knötturinn
er hverju sinni, heldur gæti hver leik-
maður að nokkru sinnar stöðu.
Hinn kunni enski knattspyrnuþjálfari.
Walter Winterbotton, krafðist þess af þess-
um aldursflokki, að hann gerði sér grein
fyrir eftirtöidum atriðum: