Æskan - 01.02.1972, Qupperneq 49
Staðurinn er fagur og margt til
skemmtunar.
Rauði kross
Islands
■
i„i : Íu.
* L' *s T ;■* i
f if
Börnin fara i sveitina.
auði kross islands var stofnaður
10. desember 1924 og verður því
50 ára 1974. Forgöngumaður að
stofnun félagsins var Sveinn Björnsson.
sem siðar varð sendiherra islands i Kaup-
aiannahöfn og ríkisstjóri og fyrsti forseti
tslands. Sveinn Björnsson hafði kynnzt
starfsemi Rauða krossins erlendis og mjög
tthfizt af henni. Undirbúningurinn tók að
sjalfsögðu alllangan tima, þvi kröfur gerð-
ar til Rauða kross félaga eru mjög miklai
°9 einnig tii stjórnar þess lands. sem
Rauða kross félag er stofnað i. Fyrst og
lfemst verða Genfarsamþykktirnar um
nannúð á styrjaldartímum að vera stað-
testar og auk þess verður rikisstjórn lands-
lns að viðurkenna félagið sem eina Rauða
kr°ss félagið. sem i landinu megi starfa
°9 að það megi starfa frjálst og óháð öll-
urn afskiptum.
^að er mönnum oft undrunarefni. að
sðildarfélög Rauða krossins eru 115 tals-
lns- Þótt aðildarlönd Sameinuðu þjóðanna
Seu mun fleiri. Þannig stendur á þvi. að
enn hafa mörg landsfélög ekki hlotið við-
urkenningu hjá ríkisstjórnum landanna eða
s,arfsemi þeirra ekki talin gefa rétt til að-
'ldar af hálfu Alþjóða rauða krossins. i
undirbúningi er stofnun Rauða kross fé-
la9a i 10—15 löndum og er þvi fyrirsjáan-
le9 fjölgun innan tiðar.
Siðan gerist sá merkisatburður i sögu
félagsins. að 9. marz 1925 hlýtur félagið
viðurkenningu ríkisstjórnarinnar. Mánuði
síðar eða 9. apríl hlaut félagið viðurkenn-
ingu Alþjóða Rauða krossins og 10. júni
var það tekið inn i Alþjóðasamband Rauða
kross félaga.
Fyrsti formaður félagsins varð svo Sveinn
Björnsson og var hann það til 1926. Gunn-
laugur Claessen. sem verið hafði varafor-
maður. tók þá við formennsku og var for-
maður til 1929 og aftur 1933 til 1936. Gunn-
laugur Claessen yfirlæknir var mjög þekkt-
ur maður, hann var afkastamikill i skrifum
sinum um almenn heilbrigðismál og vel-
ferðarmál. Hann stofnaði timaritið Heilbrigl
líf fyrir Rauða kross íslands og ritstýrði
þvi um allmörg ár. Björgúlfur Olafsson
læknir var kjörinn formaður 1929 og gegndi
formennsku til 1933. er Gunnlaugur tók
aftur við henni. 1938 varð Gunnlaugur
Einarsson læknir formaður og var það til
1942. Þá stóð heimsstyrjöldin siðari yfir
og voru þá mjög mikil verkefni fyrir Rauða
kross Islands. Þá tók Sigurður Sigurðsson
núverandi landlæknir við formannsstarfi og
var formaður til 1947. Þorsteinn Sch. Thor-
steinsson tók við formannsstarfi 1947 og
gegndi þvi til 1961. er dr. Jón Sigurðsson
var kjörinn. Hann gegndi formennsku síð-
an til 1969. er Davið Sch. Thorsteinsson
tók við. Á aðalfundinum 1971 var Björn
Tryggvason kjörinn formaður félagsins.
Á starfstima sinum hefur félagið að
mörgu starfað, sem of langt yrði upp að
telja. Vekja má þó sérstaklega athygli á
þvi mikla starfi, sem á félagið lagðist á
stríðsárunum 1939—45. Ýmsar varáðarráð-
stafanir þurfti þá að gera vegna yfirvof-
andi hernaðaraðgerða og eins og í öllum
löndum er slíkt starf lagt á herðar Rauða
krossins. Þá var komið upp 1000 rúmum.
voðum og sængurfötum, komið upp lyfja-
birgðum, undirbúinn brottflutningur úr
Reykjavík, komið upp bráðabirgðasjúkra-
húsi, hjálparsveitum, blóðsöfnun o. s. frv.
Er þetta einkennandi fyrir Rauða krossinn,
að hann hefur mjög miklu hlutverki að
gegna einmitt á ófriðartímum. Þá leitast
landsfélögin við að starfa sem hlutlausir
aðilar, bæði i eigin nafni og í samvinnu
við eða sem umboðsmenn Alþjóða rauða
krossins. Það er einmitt þess vegna, sem
vel verður að búa um hnúta í upphafi, að
þetta megi takast. Því er viðurkenning
rikisstjórna á Rauða krossinum svo mikil-
væg.
Rauði kross islands á barnaheimili að
Laugarási í Biskupstungum. Þar hefur
Reykjavíkurdeild félagsins rekið sumar-
dvalarstarfsemi mörg undanfarin ár.
^kki að biða eftir knettinum. heldur
að fara á móti honum.
^ Að þekkja einföldustu atriði varðandi
stöður leikmanna.
^ Láta ekki myndast of stórt bil milli
sóknar og varnar i leik.
^eta notað allan völlinn með þvi að
skipta samleiknum frá öðrum kantin-
um yfir á hinn.
^srnarmenn, hver fyrir sig. kunni að
9®ta andstæðings sins.
47