Æskan - 01.02.1972, Page 52
0ii)é r kemur borðlampi, sem er ágætt
viðfangsefni fyrir drengi á aldr-
^ inum 12—16 ára. Helzt þarf að
hafa við höndina hefilbekk, hefil, borsveif,
stingsög, rasp, þjalir og sandpappír. Efnið
í lampann þarf að vera harðviður, t. d.
teak. Stærðin á efninu i lampafótinn er
30x19x5 cm og er þarna átt við lengd,
breidd og þykkt. i plötuna undir lampa-
fótinn þarf 20x12,5x2,5 cm.
Þegar þið hafið sagað niður efni í þessar
tvær plötur, heflað þær og gert hornréttar,
þarf að búa til „skapalón" úr pappa. Á
pappaspjald teiknið þið rúður eða reiti,
sem eru 4 cm á hvern veg, og er þá frek-
ar auðvelt að teikna myndir I og II. Síðan
eru „skapalónin" eða sniðin klippt ná-
kvæmlega út og síðan strikað eftir þeim
á efnið, sem smíða skal úr. Þá er næst að
saga umlinurnar sem nákvæmlegast út.
Bora þarf stórt gat, jafnvel 2—3 i röð i
gegnum handfangið (A), siðan er sting-
sögin notuð og svo síðar raspar og þjalir.
Lampi þessi er sverastur um miðjuna, en
gengur að sér i báða enda, einkum þó
að ofan. Minnir lampinn fullgerður dálítið
á blómavasa. Gatið fyrlr rafmagnssnúruna
þarf að bora ofan frá og svo sem 10 cm
niður, með 9 mm tré- eða járnbor. Síðan
er borað á móti neðan frá, og mætti þá
nota sverarl bor, t. d. 12 mm. Tvær skrúf-
ur með flötum haus ganga upp i gegnum
undirstöðu og dálítið upp i lampann. Hæfi-
leg stærð á þeim er 2"x10, en þetta
tákn, 2", þýðir það, að skrúfan er tvær
tommur eða þumlungar á lengd. Ein
tomma er sama og 21/2 sentimetri. Skrúf-
urnar eru því 5 cm á lengd, en gildleiki
þeirra 10. Ekki eru það þó 10 cm eða mm,
heldur er þetta sérstakt gildleikamál á
skrúfum, skrifað í tölunum 1—12 eða jafn-
vel hærra upp. Bora þarf göt fyrir skrúf-
urnar með hæfilega gildum bor (líklega 6
mm) og snara lítið eitt neðan frá, svo að
skrúfuhausinn sökkvi alveg upp í plötuna
(sjá mynd I).
Áður en þessi tvö stykki, I og II, eru
skrúfuð saman þarf að „forma" þau til
með skafthefli, raspi, þjölum og sand-
pappír, en eins og áður er sagt líkist iamp-
inn dálítið blómavasa, þ. e. a. s. hann er
ávalur og mjókkar upp, svipað og flösku-
háls. í plötunni undir lampanum er borað
fyrir litlum tappa, sem er slökkvari, og er
þetta gat u. þ. b. 31/2 cm frá frambrún
plötunnar (sjá II). Bezt mun þó að kaupa
X
19.0
fyrst rafmagnssnúru með slökkvara og
hafa siðan gatið hæfilega stórt fyrir hann.
Punktalinurnar á myndunum sýna rafleiðsl-
urnar, en helzt þarf lærður rafvirki að ann-
ast lagningu þeirra. Þegar lampinn er full"
gerður, þarf að bera á hann teak-olíu o9
nudda hana vel inn í hann með tusku.
(Mynd og teikningar úr „Dansk skole-
slöjd“ 1960).
Margar lausnir bárust á skák-
dæminu, sem birtist i október-
blaðinu. Þær voru rúmlega
hundrað að tölu, en nokkrar
þeirra reyndust ekki rcttar,
og urðu þær aðeins 7ti, sem
voru réttar. — Lausnarleikur-
inn er: Drottning e6 — b3, og
er svartur |>á óumflýjanlega
mát í öðrum leik. Algengasta
villan var: e4 - eó, en þvi
getur svartur svarað með I)
fti og ekki er hægt að máta
svartan i næsta leik. Onnur al-
geng viila var að láta livítan
færa Defi — c4, en þá kemur
svartur riddari til b5 og getur
því borið fyrir fráskák af peði
með þvi að færa riddarann á
d4. Sumir böfðu ekki atbugað,
að báðar drottningarnar voru
„leppar“ og gátu þvi aðeins
hreyft sig á einni linu.
Úr réttu lausnunum var sið-
an dregið um verðlaunin, sem
voru ferðatafl. Komu )>au i
hlut drengs á Norðfirði, sem
hcitir Jón Július Eliasson, Itrð-
arteig 9, Neskaupstað. Verð-
launataflið var sent til bans 1
pósti fvrir jólin. Skákþátturinn
þakkar öllum þeim, sem scndu
svör, og það var skemmtilegt
að sjá, hve margir lesendur
blaðsins tefla skák og haf#
gaman af að glima við skák-
dæmi. Það cr aldrei að vitu
nema þarna leynist tilvonand'
íslandsmeistari í skák i jiessutn
fjölmenna þátttakendahópi. f'f
til vill kemur nýtt skákdæin'
i marzblaðinu.