Æskan

Árgangur

Æskan - 01.04.1975, Blaðsíða 6

Æskan - 01.04.1975, Blaðsíða 6
„Það vil ég,“ sagði Glúmur, ,,ef ég gæti vel fyrir mér séð.“ Þá taldi Þórarinn upp konur þær, sem voru í Borgarfirði ógiftar, og spurði, ef hann vildi nokkra eiga af þeim — „og mun ég ríða til með þér.“ Hann svaraði: „Enga vil ég þessa eiga.“ „Nefn þú þá að því, er þú vilt eiga,“ segir Þór- arinn. Glúmur svaraði: „Ef þú vilt það vita, þá heitir hún Hallgerður og er dóttir Höskulds í Dölum vestur." „Eigi er nú það, sem mælt er,“ segir Þórarinn, „að þú látir þér annars víti að varnaði. Gift var hún manni, og réð hún þeim bana.“ Grúmur mælti: „Má að hana hendi eigi slík ógifta ( annað sinn, og veit ég víst, að hún ræður eigi mér bana. En ef þú vilt mér nokkra sæmd veita, þá ríð þú til með mér að biðja konunnar." Þórarinn mælti: „Ekki mun mega við gera. Það mun verða fram að koma, sem ætlað er.“ Oft kom Glúmur á um þetta mál við Þórarin. En hann fór lengi undan. En þar kom um síðir, að þeir söfnuðu að sér mönnum og riðu tuttugu saman vest- ur til Dala og komu á Höskuldsstaði og tók Höskuld- ur vel við þeim, og voru þeir þar um nóttina. En snemma um morguninn sendir Höskuldur eftir Hrúti, og kom hann þegar, og var Höskuldur úti fyrir, er hann reið í tún. Höskuldur segir Hrúti, hvað þar var komið manna. „Hvað munu þeir vilja?“ sagði Hrútur. „Engin hafa þeir erindi enn upp borið fyrir mig,“ sagði Höskuldur. „Við þig munu þó erindin," segir Hrútur. „Þeir munu biðja Hallgerðar, eða hversu munt þú svara?" „Hvað þykir þér ráða?“ sagði Höskuldur. „Vel skalt þú svara og segja þó kost og löst á kon- unni,“ segir Hrútur. En í þessu tali þeirra bræðra ganga þeir út, gest- irnir. Höskuldur og Hrútur gengu í móti þeim. Fagn- aði Hrútur vel Þórarni og þeim báðum bræðrum. Síðan gengu þeir allir saman á tal. Og mælti Þórarinn: „Ég er kominn hingað með Glúmi bróður mínum þess erindis að biðia Hallgerð- ar, dóttur þinnar, Höskuldur, til handa Glúmi, bróður mfnum. Skalt þú það vita, að hann er vel mannaður." „Veit ég það," sagði Höskuldur, „að þið eruð mik- ils háttar menn, bræður, en ég vil segja þér ( móti, að ég réð ráði hennar fyrri, og varð oss það að mik- illi ógæfu." Þórarinn svarar: „Ekki munum vér það láta fyrir kaupum standa, því að eigi skal einn eiður alla verða (þ. e. ekki er víst, að öllum fari á sama hátt), og má þetta verða vel, þó að hitt yrði illa, enda spillti Þjóst- ólfur þar mestu um.“ Þá mælti Hrútur: „Gefa. mun ég yður til ráð, ef þér viljið eigi þetta láta fyrir ráðum standa, er áður hefur orðið um hagi Hallgerðar, — að Þjóstólfur fari ekki suður með henni, þó að ráðin takist, og veri þar aldrei þrem nóttum lengur, nema Glúmur lofi, en falli óheilagur fyrir Glúmi, ef hann er lengur, en heimilt á Glúmur að lofa það, en ekki er það mitt ráð. Skal nú og eigi svo fara sem fyrr, að Hallgerði sé eigi sagt. Skal hún vita allan þennan kaupmála og sjá Glúm og ráða sjálf, hvort hún vill eiga hann eða eigi, og megi hún eigi öðrum kenna, þó að eigi verði vel. Skal þetta allt vélalaust vera.“ Þórarinn mælti: „Nú er sem jafnan, að það mun best gegna, að þín ráð sé höfð.“ Þá var sent eftir Hallgerði og kom hún þangað og tvær konur með henni. Hún hafði yfir sér vefjar- möttul bláan og var undir í rauðum skarlatskyrtli og silfurbelti um sig, en hárið tók ofan á bringuna tveim megin, og drap hún undir belti sér. Hún settist niður í milli þeirra, Hrúts og föður síns. Hún kvaddi þá alla góðum orðum og mælti vel og skörulega og spurði tíðinda. Síðan hætti hún að tala. Glúmur mælti: „Um kaup við föður þinn höfum við Þórarinn bróðir minn talað, að ég mundi fá þín, Hallgerður, ef það er þinn vilji sem þeirra. Munt þú nú og segja, er þú ert köiluð skörungur mikill, hvort það er nokkuð nær þínu skapi. En ef þér er enginn hugur á kaupum við oss, þá viljum vér ekki um tala.“ Hallgerður mælti: „Veit ég, að þið eruð mikils hátt- ar menn, bræður, og veit ég, að ég mun nú miklu betur gefin en fyrr. En vita vil ég, hvað þér hafið um talað eða hve mjög þér hafið fram mælt málinu. En svo líst mér á þig, að ég mun þér vel unnandi verða, ef við komum skapi saman.“ Glúmur sagði henni sjálfur alla skildaga og veik hvergi af og spurði þá Höskuld og Hrút, hvort hann hermdi rétt. Höskuldur sagði svo vera. Hallgerður mælti þá: „Svo vel sem þér hefur farið til mln, faðir, um þetta mál og þér, Hrútur, þá vil ég þetta að ykkar ráði gera, og skal þessi kaupmáli vera sem þið hafið stofnað.“ Þá mælti Hrútur: „Það þykir mér ráð, að við Hös- kuldur nefnum votta, en Hallgerður festi sig sjálf, ef lögmanni þykir það rétt.“ „Rétt er það,“ segir Þórarinn. Síðan voru virð fé Hallgerðar, og skyldi Glúmur leggja í móti jafnmikið, og skyldi vera helmingar- félag með þeim. Glúmur fastnaði sér þá Haligerði, og riðu þeir suður heim. En Höskuldur skyldi hafa boð inni. Er nú kyrrt þar til er menn ríða til boðs. Þeir bræður fjölmenna mjög til veislunnar og höfðu valið lið. Þeir riðu vestur til Dala og komu á Höskulds- staði, og var þar fjölmenni mikið fyrir. Skipuðu þeir Höskuldur og Hrútur annan bekk, en brúðgumi ann- an. Hallgerður sat á palli og samdi sér vel. Þjóstólf-

x

Æskan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.