Æskan - 01.04.1975, Qupperneq 6
„Það vil ég,“ sagði Glúmur, ,,ef ég gæti vel fyrir
mér séð.“
Þá taldi Þórarinn upp konur þær, sem voru í
Borgarfirði ógiftar, og spurði, ef hann vildi nokkra
eiga af þeim — „og mun ég ríða til með þér.“
Hann svaraði: „Enga vil ég þessa eiga.“
„Nefn þú þá að því, er þú vilt eiga,“ segir Þór-
arinn.
Glúmur svaraði: „Ef þú vilt það vita, þá heitir hún
Hallgerður og er dóttir Höskulds í Dölum vestur."
„Eigi er nú það, sem mælt er,“ segir Þórarinn,
„að þú látir þér annars víti að varnaði. Gift var hún
manni, og réð hún þeim bana.“
Grúmur mælti: „Má að hana hendi eigi slík ógifta
( annað sinn, og veit ég víst, að hún ræður eigi mér
bana. En ef þú vilt mér nokkra sæmd veita, þá ríð
þú til með mér að biðja konunnar."
Þórarinn mælti: „Ekki mun mega við gera. Það
mun verða fram að koma, sem ætlað er.“
Oft kom Glúmur á um þetta mál við Þórarin. En
hann fór lengi undan. En þar kom um síðir, að þeir
söfnuðu að sér mönnum og riðu tuttugu saman vest-
ur til Dala og komu á Höskuldsstaði og tók Höskuld-
ur vel við þeim, og voru þeir þar um nóttina. En
snemma um morguninn sendir Höskuldur eftir Hrúti,
og kom hann þegar, og var Höskuldur úti fyrir, er
hann reið í tún. Höskuldur segir Hrúti, hvað þar var
komið manna.
„Hvað munu þeir vilja?“ sagði Hrútur.
„Engin hafa þeir erindi enn upp borið fyrir mig,“
sagði Höskuldur.
„Við þig munu þó erindin," segir Hrútur. „Þeir
munu biðja Hallgerðar, eða hversu munt þú svara?"
„Hvað þykir þér ráða?“ sagði Höskuldur.
„Vel skalt þú svara og segja þó kost og löst á kon-
unni,“ segir Hrútur.
En í þessu tali þeirra bræðra ganga þeir út, gest-
irnir. Höskuldur og Hrútur gengu í móti þeim. Fagn-
aði Hrútur vel Þórarni og þeim báðum bræðrum.
Síðan gengu þeir allir saman á tal.
Og mælti Þórarinn: „Ég er kominn hingað með
Glúmi bróður mínum þess erindis að biðia Hallgerð-
ar, dóttur þinnar, Höskuldur, til handa Glúmi, bróður
mfnum. Skalt þú það vita, að hann er vel mannaður."
„Veit ég það," sagði Höskuldur, „að þið eruð mik-
ils háttar menn, bræður, en ég vil segja þér ( móti,
að ég réð ráði hennar fyrri, og varð oss það að mik-
illi ógæfu."
Þórarinn svarar: „Ekki munum vér það láta fyrir
kaupum standa, því að eigi skal einn eiður alla verða
(þ. e. ekki er víst, að öllum fari á sama hátt), og má
þetta verða vel, þó að hitt yrði illa, enda spillti Þjóst-
ólfur þar mestu um.“
Þá mælti Hrútur: „Gefa. mun ég yður til ráð, ef
þér viljið eigi þetta láta fyrir ráðum standa, er áður
hefur orðið um hagi Hallgerðar, — að Þjóstólfur fari
ekki suður með henni, þó að ráðin takist, og veri
þar aldrei þrem nóttum lengur, nema Glúmur lofi,
en falli óheilagur fyrir Glúmi, ef hann er lengur, en
heimilt á Glúmur að lofa það, en ekki er það mitt
ráð. Skal nú og eigi svo fara sem fyrr, að Hallgerði
sé eigi sagt. Skal hún vita allan þennan kaupmála
og sjá Glúm og ráða sjálf, hvort hún vill eiga hann
eða eigi, og megi hún eigi öðrum kenna, þó að eigi
verði vel. Skal þetta allt vélalaust vera.“
Þórarinn mælti: „Nú er sem jafnan, að það mun
best gegna, að þín ráð sé höfð.“
Þá var sent eftir Hallgerði og kom hún þangað og
tvær konur með henni. Hún hafði yfir sér vefjar-
möttul bláan og var undir í rauðum skarlatskyrtli og
silfurbelti um sig, en hárið tók ofan á bringuna tveim
megin, og drap hún undir belti sér. Hún settist niður
í milli þeirra, Hrúts og föður síns. Hún kvaddi þá
alla góðum orðum og mælti vel og skörulega og
spurði tíðinda. Síðan hætti hún að tala.
Glúmur mælti: „Um kaup við föður þinn höfum
við Þórarinn bróðir minn talað, að ég mundi fá þín,
Hallgerður, ef það er þinn vilji sem þeirra. Munt þú
nú og segja, er þú ert köiluð skörungur mikill, hvort
það er nokkuð nær þínu skapi. En ef þér er enginn
hugur á kaupum við oss, þá viljum vér ekki um tala.“
Hallgerður mælti: „Veit ég, að þið eruð mikils hátt-
ar menn, bræður, og veit ég, að ég mun nú miklu
betur gefin en fyrr. En vita vil ég, hvað þér hafið
um talað eða hve mjög þér hafið fram mælt málinu.
En svo líst mér á þig, að ég mun þér vel unnandi
verða, ef við komum skapi saman.“
Glúmur sagði henni sjálfur alla skildaga og veik
hvergi af og spurði þá Höskuld og Hrút, hvort hann
hermdi rétt.
Höskuldur sagði svo vera.
Hallgerður mælti þá: „Svo vel sem þér hefur farið
til mln, faðir, um þetta mál og þér, Hrútur, þá vil ég
þetta að ykkar ráði gera, og skal þessi kaupmáli
vera sem þið hafið stofnað.“
Þá mælti Hrútur: „Það þykir mér ráð, að við Hös-
kuldur nefnum votta, en Hallgerður festi sig sjálf,
ef lögmanni þykir það rétt.“
„Rétt er það,“ segir Þórarinn.
Síðan voru virð fé Hallgerðar, og skyldi Glúmur
leggja í móti jafnmikið, og skyldi vera helmingar-
félag með þeim. Glúmur fastnaði sér þá Haligerði,
og riðu þeir suður heim. En Höskuldur skyldi hafa
boð inni. Er nú kyrrt þar til er menn ríða til boðs.
Þeir bræður fjölmenna mjög til veislunnar og höfðu
valið lið. Þeir riðu vestur til Dala og komu á Höskulds-
staði, og var þar fjölmenni mikið fyrir. Skipuðu þeir
Höskuldur og Hrútur annan bekk, en brúðgumi ann-
an. Hallgerður sat á palli og samdi sér vel. Þjóstólf-