Æskan

Árgangur

Æskan - 01.04.1975, Síða 8

Æskan - 01.04.1975, Síða 8
Sagan af hornim PJetrí* sem fór npp I tnnglíd* inu sinni var drengur, sem hét Pétur. Hann átti heima hjá móður sinni, sem var fátæk ekkja. Af því að þau voru svo fátæk þurfti Pétur að vinna mikið, þó að ekki væri hann nema 12 ára. Hafði hann atvinnu hjá kaupmarini einum rikum. Einu sinni bað kaupmaðurinn hann að fara í langa sendiferð og vera fljótan. Þegar Pétur hafði lokið erindinu og var á heimleið, mætti hann gamalli konu, sem bar svo þungan bagga á bakinu, að hún var alveg að hníga niður af þreytu. Pétur var góður drengur, og bauð hann gömlu konunni að bera baggann með henni. Konan varð fegin og þáði boðið, og héldu þau síðan heim til hennar. Þegar þangað var komið þakkaði konan honum fyrir, fór síðan inn og kom að vörmu spori út aftur með dálítið teppi með einkenni- legum vefnaði. Sagði hún, að hann mætti eiga það fyrir hjálpina. Pétur þakkaði fyrir, braut teppið sam- an og hugsaði með sér að móðir sín gæti notað það fyrir ábreiðu ofan á rúmið sitt. Hélt hann síðan af stað aftur. Ekki hafði hann gengið lengi áður en hann mætti annarri gamalli konu. Þegar hún gekk fram hjá Pétri, varð henni fótaskortur, og datt hún og meiddi sig. Pétur hljóp þá til hennar, hiálpaði henni á fætur og studdi hana heim. Konan fór þá inn og sótti lítinn og kvistóttan lurk, sem hún sagði að hann mætti eiga fyrir hjálpina. Pétri þótti ekki mikið til stafsins koma, en lét þó ekki á því bera, heldur þakkaði kurteislega fyrir. Hugsaði hann með sér að hann gæti gefið mömmu sinni hann í eldinn. Hélt hann slðan áfram, en ekki var hann kominn langt, þegar hann mætti þriðju konunni. Dró hún á eftir sér vagn með þungu hlassi og var auðsjáanlega mjög aðframkomin af þreytu. Pétur bauð henni strax að draga vagninn fyrir hana, og þáði hún það. Var það langur vegur og varð Pétur mjög þreyttur. Loks kom- ust þau alla leið, og þá sagðist konan verða að launa honum hjálpina, og tók upp úr vasa sínum lítinn spegil og gaf honum. Pétur var ekkert gefinn fyrir spegla, þótti slíkt mesti óþarfi og hégómi, en hugs- aði samt með sér að mömmu sinni þætti kannski gaman að honum, hún ætti ekki mikið af slíku glysi. Þakkaði hann því konunni fyrir og hélt af stað. Mundi hann þá eftir því, að hann hafði átt að flýta sér, en nú var hann áreiðanlega búinn að vera allt of lengi. Hljóp hann þá eins og fætur toguðu, uns hann kom heim til húsbónda sfns. Húsbóndinn var þá hinn reiðasti, og rak Pétur úr vistinni, sagðist hann ekki vilia hafa í sinni þjónustu stráka, sem slóruðu svona og svikjust um. Aumingja Pétur vildi ekki fara heim til mömmu sinnar, því að hann vissi að þetta myndi hryggja hana svo mikið. Gekk hann því út í skóg og settist þar á gamlan, fallinn trjástofn, mjög hryggur í huga. En allt í einu heyrði hann hljómfagra rödd fyrir aftan sig, sem sagði: „Vertu ekki hryggur, Pétur, því að þú átt eftir að verða hamingjusamasti maður í landinu." Pétur leit við, og sá þá skínandi fagra álfkonu í hvítum klæðum. Álfkonan sagði: „Þú hefur nú misst atvinnuna vegna þess að þú vildir hjálpa þeim, sem bágt áttu. En nú skaltu vita að allar þessar gömlu konur, sem þú hjálpaðir, var ég og engin önnur. Tók ég á mig þessi gervi til þess að reyna þig. En hlutirnir, sem ég gaf þér, eru ekki eins ómerkilegir og þú hyggur, því að það eru töfragripir. Ef þú slærð einhvern hlut með stafnum og segir um leið: „Hókus, Pókus“, þá verður sá hlutur samstundis að gulli. En ef þú breiðir teppið út, og sest á það og nefnir um leið einhvern stað, flýgur það samstundis með þig til þess staðar. En spegillinn hefur þá náttúru, að í honum getur þú séð, hvað sem þú óskar. Og hafðu nú þetta í laun fyrir hiálpsemi þína og góðvild." Að svo mæltu hvarf álf- konan. ÆVINTÝRI

x

Æskan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.