Æskan

Årgang

Æskan - 01.04.1975, Side 10

Æskan - 01.04.1975, Side 10
Sagan af Svanhvít karlsdóttur íslenzkt æfintýri með myndum Var hún fr.ö og góö stulka, og aö öllu hin efnileg- asta. Móðir hennar unni henni hugástum, en faðir hennar var henni vondur. Eitt sinn lagðist kerling þungt haldin; hún kallaði þá Svanhvíti til sín og mælti við hana: ,,Hér* eftir mun ég ekki lengi lifa hjá þér, og grunar mig, að þú munir ekki eiga upp á há- borðið hjá föður þínum, þegar ég er dáin, og skaltu fara sem fyrst burtu frá honum.“ Hún fékk henni sið- an dúk og belti og mælti ennfremur: „Eigðu þetta, Svanhvít mín. Býst ég við að þú þurfir á hvortvegg;a þessum hlutum að halda. Dúknum fylgir sú náttúra, að í hvert sinn, sem honum er flett sundur, þá eru á honum alls konar krásir. Beltinu fylgir sú náttúra, að sá verður eigi hungraður, sem það hefur utan um sig.“ Síðan kvaddi hún dóttur sína og andaðist skömmu seinna. Eftir dauða kerlingar var karl svo vondur við Svan- hvíti, að henni var ekki viðvært. Nótt eina, þegar karl var sofandi, tók hún dúkinn og beltið og skundaði út í skóg. Ráfaði hún um skóginn, þar til komið var að kvöldi; þá lagðist hún niður undir eik einni og sofnaði. Svanhvít vaknaði við það, að yfir henni stóð Ijót og stór tröllskessa. „Því liggur þú hér, Svanhvít karlsdóttir?" segir skessa. „Þér er eins gott að koma með mér.“ Svanhvít varð dauðhrædd, en skessan tók hana undir hönd sér, skundaði á brott méð hana og var stórstíg mjög. Eftir nokkra stund komu þær að helli einum stórum. „Þetta er nú hellirinn minn,“ segir skessa, „og þarna sérðu dóttur mína,“ og benti Svanhvíti um leið á skessu unga en stórskorna, sem sat þar fyrir í hellinum. Svanhvít var nú um hríð í hellinum hjá skessunum; létu þær hana vera heima á daginn og gera allt sem gera þurfti, en sjálfar voru þær á veiðum frá morgni til kvölds. Lítið og illt fékk Svanhvít að eta hjá skessunum, en það gerði henni ekki neitt, því í hvert sinn, sem hún fletti dúknum góða í sundur, þá var á honum alls konar góðgæti, sem hún borðaði á hverjum degi. Skessunum þótti það undrum sæta, hvað Svanhvít leit vel út, ekki meira en þær létu hana fá að borða. Einn dag sagði eldri skessan við Svanhvíti, að nú skyldi hún koma út í skóg með sér. Þegar þær voru skammt á leið komnar, lagðist skessan niður og þóttist sofna. Svanhvít gekk þá afsíðis, fletti dúkn- um sundur, sem hun hafði með sér, og fór að eta. Allt í einu kemur skessan að henni óvörum, þrífur af henni dúkinn og mælti: „Þetta grunaði mig lengi! Það er eins gott að ég eigi dúk þennan eins og þú.“ Eftir þetta voru skessurnar enn verri við Svanhvíti en áður, og létu hana hafa sama sem ekkert að borða, en það hjálpaði henni, að hún hafði beltið góða spennt um mitti sér. Nú iíður fram að jólum. Jóladagsmorgun segja skessurnar við Svanhvíti: „Við ætlum til kirkju í dag, því að nú er kóngssonurinn kominn heim úr skól- anum, verður þú að hafa mat og annað tilbúið, þegar við komum heim aftur.“ Síðan klæddust skessurnar sínum besta búningi, settu bláa kálfsbelgi á hausinn og fóru af stað til kirkjunnar. Svanhvít flýtir sér nú að því, sem hún þarf að vinna; að því búnu ráfar hún út og kemur að steini nokkrum. Úti fyrir steininum stóð dvergur. Hann Yfir henni stóð stór og Ijót tröllskessa.

x

Æskan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.