Æskan - 01.04.1975, Blaðsíða 20
Verðlaunafei
Kæru lesendur Æskunnar.
Enn einu sinni gefst ykkur kostur á að taka
þátt í spurningasamkeppni og verðlaunin eru
sem fyrr glæsileg og eftirsóknarverð. Að þessu
sinni standa Barnablaðið Æskan og Flugleiðir hf.
að keppninni og verðlaunin verða flugferðir með
flugvélum félaganna, svo og bókaverðlaun.
Tvenn fyrstu verðlaun verða fjögurra daga ferð
til Luxemborgar. Flogið verður með DC-8 þotum
Loftleiða báðar leiðir og meðan dvalið verður í
þessu litla en fagra landi í hjarta Evrópu, verður
margt til gamans gert. Meðal annars farnar ferð-
ir um landið, skoðuð söfn og sögulegir staðir o.
fl. o. fl. Þriðju, fjórðu, fimmtu og sjöttu verðlaun
verða flugferðir innanlands og þá verður flogið
með Friendship skrúfuþotum Flugfélags íslands.
Sjöundu, áttundu, níundu og tíundu verðlaun
verða bækur frá Bókaútgáfu Æskunnar. Þið sjáið
að til mikils er að vinna í þessari samkeppni og
nú er að taka til við verðlaunagetraunina sem
að þessu sinni er fremur létt. Hver veit líka nema
einhvers staðar í þessu blaði leynist svör við
ýmsum spurningum sem fyrir ykkur eru lagðar
i samkeppninni.
Allir lesendur Æskunnar til 15 ára aldurs hafa
rétt til þátttöku og verðlauna. Svör þurfa að
hafa borist til Æskunnar fyrir 1. júní n.k,