Æskan

Árgangur

Æskan - 01.04.1975, Blaðsíða 27

Æskan - 01.04.1975, Blaðsíða 27
wBmaam ''fc.-Z. mm ÓefaS á íslenska þjóðin sauðkindinni líf sitt að iauna að miklu leyti. Hugsum okkur ástandið, þegar skógurinn var þrotinn, birkið búið, sem um iangar aldir hafði logað á arni, Ekki þekktust koi, olía eða hitaveita á þeim dögum, — þurrkað sauðatað og þurrkuð mykja var það eina, sem brennt varð, þar sem ekki náðist í mó eða rekavið. Þessi eldiviður var þó ekki notaður til þess að hita upp húsin. Það veitti ekki af honum öllum til mat- reiðslu. — Hvernig fór fólkið að halda á sér hita? myndi margur spyrja, sem nú þarf ekki annað en skrúfa frá krana, svo að sjóðheitar æðar hitaveitu sendi strauma sína um stofurnar. — Svarið verður, að baðstofurnar hafi verið hlýjár; þykkt torfþak yfir og kýr stundum undir palli. — Þar að auki voru bað- stofurnar litlar en fólkið nriargt, svo að líkamshiti fólks- ins hlýjaði upp húsið. Þrátt fyrir þetta hefur fólkinu oft verið kalt, einkum þegar hafísinn umlukti landið í heljargreipum sínum, svo að lá við að allt frysi í hel. Þess er og að gæta, að ekki urðu baðstofumar hlýjar nema útiloftinu væri varnað sem mest að komast inn. — En hreint loft er skilyrði fyrir því, að manni sé heitt. Bruninn í líkömum okkar, eins og bruninn í ofninum, er samruni tveggja efna, kolefnis og súrefnis. Líkam- inn fær kolefnið úr fæðunni en súrefni úr loftinu. Sannar sögur eru til um það, að svo hafi stundum orðið loftvont í baðstofunum, einkum þegar margt að- komufólk bættist við, að Ijós öll slokknuðu. Ljósmeti var að vísu á lampanum, en súrefni loftsins var af svo skornum skammti, að Ijósið slokknaði. — Töldu menn þetta boða feigð eða ill tíðindi. — Auðvitað m Wfi. ’íf m 25

x

Æskan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.