Æskan

Årgang

Æskan - 01.04.1975, Side 32

Æskan - 01.04.1975, Side 32
að hafði nýlega verið sýnd kvikmynd í þorpinu. Kúrekinn hafði sýnt þar hinar undarlegustu listir með reipi, sem hann sveiflaði yfir sér og undir sér og í kringum sig á hinn skringilegasta hátt. Petta var stórkostlegt og var tekið með dynjandi lófataki. En eins og alltaf var þetta ekki töfrabragð — aðeins lagni. Þú gætir Kka gert þetta með lítilli, ákveðinm hreyfingu á úlnliðnum og með mikilli æfingu gætir þú orðið „meistari" í að spinna. Reipið á að vera ofið bómullarreipi. Á venjulegan kaðal (þriþættan) myndast fljótt lykkjur og hann flæk- ist. Reipið á að vera 6i/2 m að lengd, en fyrir drengi er gott að hafa það styttra. Á annan endann býrð þú til lykkju eða setur járnhólk (auga), sem reipið ligg- ur í. Hinum endanum stingur þú í gegnum lykkjuna og býrð til hring, sem er um metri eða minna í þver- mál (1. mynd). Æfðu þig nú fyrst i að kasta hringnum á jörðina, þannig að þú fáir hann til þess að opna sig vel með hreyfingu í úlnliðnum I öfuga átt við sólarganginn. Mundu, að það er um að gera að vera liðugur í úln- liðnum. Nú reynum við að byrja að spinna — en notaðu nú úlnliðinn, en ekki allan handlegginn. Þegar hringur- inn byrjar að snúast jafnt og þétt, þá er hægt að auka hraðann. Með hraðari og hraðari hreyfingum verður hringurinn stærri og stærri, þar sem þú gefur alltaf meira reipi út frá hægri hendinni. Þú verður auðvitað að halda svo laust á reipinu, að það geti snúist í hendi þér, annars snýst upp á það og það flækist (2. mynd). Næst er „Trúlofunarhringurinn" — láréttur hringur, sem snúið er ( kringum líkamann. Hægri hönd snýr enda reipisins, sem haldið er fyrir ofan höfuðið. Byrj- endur æfa sig fyrst ( að kasta hringnum yfir höfuðið og axlirnar (3. mynd), þannig að hann leggist á jörð- ina án þess að koma við þig. Þegar þér hefur tekist að ná því að leggja reipið rétt í hverju kasti, þá byrj- ar þú að spinna (4. mynd). En nú máttu ekki taka neina kippi. Það er jafn taktur og jafn hraði, en ekki kippir, sem hér koma að gagni. Þegar þú ert orðinn æfður í „Trúlofunarhringnum“. þá reyntr þú „Krlnólinuna". Hringurinn liggur þá í loftinu rétt við jörðina, í um öklahæð. Notaðar eru báðar hendur — og byrjandi óskar þess oft, að hann hefði aðrar tvær í viðbót. Byrjaðu á „Trúlofunar- hringnum“. Þegar endi reipisins fer yfir hægri öxl þina, lætur þú hægri höndina síga og færir endann yfir i vinstri hönd á móts við vinstri mjöðm (5. mynd). Vinstri höndin flytur reipið svo hálfhring í kringum þig og aftur yfir í hægri höndina (6. mynd). Þegar þú hefur þannig farið nokkra hringi, þá get- ur þú annaðhvort stokkið út úr hringnum eða lyft honum, svo að þú fáir aftur „Trúlofunarhringinn'1.- 30

x

Æskan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.