Æskan - 01.04.1975, Page 36
Hann safnar leikföngum og frímerkjum
handa gleymdu börnunum
Gunnar Lundsbæk er danskur garðyrkjumaður, sem
býr í Glostrup í Danmörku. Hann átti mjög erfiða
barnæsku og þess vegna ákvað hann, að þegar hann
væri orðinn fullorðinn skyldr hann gera eitthvað fyrir
munaðarlaus börn, til að gleðja þau og sýna þeim
vináttu. ( Danmörku eru mörg munaðarleysingjahæli,
og á þessum hælum er fjöldi barna, sem eru bók-
staflega gleymd. Þessi börn eiga enga foreldra eða
ættingja, sem hugsa um þau eða heimsækja þau.
Þessum börnum hefur Gunnar Lundsbæk fórnað tíma
sínum og efnum.
Danska heimilisblaðið Familieblad skrifar þetta um
Gunnar:
„Gunnar Lundsbæk er besti vinur barnanna.
Honum þykir vænt um börn og börnin elska hann.
Um hverja helgi ekur hann í litla bílnum til hinna
ýmsu heimila til að færa hinum gleymdu börnum leik-
föng og frímerki."
Gunnar segir: „Ár hvert hef ég gefið um 300.000
notuð frímerki og þúsundir af leikföngum til heimil-
anna til hinna gleymdu barna.“ Hann notar allan frí-
tíma sinn og afgang launa sinna í þessu skyni.
Þetta starf Gunnars vakti mikla athygli í Danmörku,
og börnin voru farin að kalla hann Gunnar frænda,
og hlakkaði alltaf ósköp mikið tií, þegar von var á
honum með frímerkin og leikföngin. En allt byrjaði
þetta starf Gunnars með frímerkjunum, sem hann út-
vegaði og sníkti hvar sem hann kom. Svo komu leik-
föngin. Það hófst með því, að hann fékk bréf frá
barnaheimili í Grænlandi, þar sem spurt var um
hvort hann gæti sent börnunum þar notuð leikföng.
Þá fékk hann öll dönsku dagblöðin til þess að aug-
lýsa eftir leikföngum, sem börn væru hætt .að leika
sér með, og bað fólk að leita nú vel í skápum og
skúffum, hvort ekki væri þar að finna velmeðfarin
leikföng, sem þau vildu gefa. Þetta gekk svo vel, að
fyrir jólin þetta ár gat hann sent 18 kassa og 27 sekki
af leikföngum til Grænlands.
í gegnum árin er Gunnar Lundsbæk orðinn þekkt-
ur víða fyrir starf sitt, og hefur hann komið oft fram
í útvarpi og sjónvarpi. Myndir af honum og starfi
hans hafa verið á forsiðum vikublaðanna bæði í
heimalandi hans og öðrum löndum.
Ef einhver hér á landi hefur áhuga fyrir að senda
honum frímerki, leikföng og ýmislegt smávegis, sem
glatt getur börnin, þá væri það vel þegið, því Gunn-
ar safnar einnig ýmsu öðru, svo sem eldspýtustokk-
um, barnablöðum og smámynt.
Utanáskrift hans er: Gunnar Lundsbæk, „Onkel
Gunnar", Postbox 23, 2600 Glostrup, Danmark.
♦-------------
JÓN MAGNÚSSON:
Lambið mitt litla
lúrir úti í túni.
Gimbillinn minn góði
gullhornum búni.
Kringum okkur greri gras
grænt og frítt að líta.
— Eg tók með honum í tjóðurbandið
til þess að slíta.----
Gimbillinn minn góði
gullhornum búni,
ekki getur hann unað sér
einsamall í túni.
34