Æskan

Ukioqatigiit

Æskan - 01.04.1975, Qupperneq 49

Æskan - 01.04.1975, Qupperneq 49
hafa misst Grámann. — 9. Drengirnir höfðu orðið að henda öllu elgskjötinu til að komast undan úlfunum. Öjarnarkló hafði þó tekist að festa hjarta dýrsins undir skinnstakki sinum, og þvf fórna þau nú á blót- steinum, svo að sólguðinn komi aftur til þeirra með nýtt sumar. Sagan af Gýpu Einu sinni var karl og kerling í koti. Þau áttu dótt- Ur- sem hét Gýpa, og þótti hún matfrek í meira lagi. áttu þau, sem hét Kreppilhyrna. Einu sinni, áður en Gýpa fór að smala, át hún úr askinum sínum og askinn með, karl og kerlingu, kúna Kreppilhyrnu og kotið með. Svo hélt Gýpa af stað. Þegar hún hafði gengið um stund, mætti hún tófu. Gýpa spyr hana að heiti; hún segist heita Refur rennandi. Refur spyr Gýpu að heiti. Hún segir til nafns síns. „Hvað ástu í morgun, Gýpa mín?“ spyr refur. ,,Ég át úr ask- inum mínum og askinn með, karl og kerlingu, kúna Kreppilhyrnu og kotið með, og eins mun ég gera við þig, Refur rennandi!" sagði Gýpa. Og svo gleypti hún refinn. Gýpa gekk nú lengi, lengi, þangað til hún mætti biarndýri. Hún spurði það að heiti. að kvaðst heita Björn betlandi. Björn spurði Gýpu að heiti. Hún sagði sem var. „Hvað ástu í morðun, Gýpa mín?“ spyr björninn. „Ég át úr askinum mínum og askinn með, karl og kerlingu, kúna Kreppilhyrnu og kotið með, Ref rennandi, og eins mun ég gera við þig, Biörn betlandi!" sagði Gýpa, og svo gleypti hún björninn. Skömmu seinna kom Gýpa að sjó og hitti þar menn á skipi. Þeir spurðu hana að heiti. Hún sagði sem var og spurði þá síðan hverjir þeir væru. Þeir sögðu af hið sannasta. „Hvað ástu í morgun, Gýpa mín?“ spurðu þeir. „Ég át úr askinum mínum og askinn með, karl og kerlingu, kúna Kreppilhyrnu og kotið með, Ref rennanda, Björn betlanda, og eins mun ég gera við ykkur,“ sagði Gýpa, og svo gleypti hún bæði mennina og skipið. Nú var Gýpu nóg boð- ið, þvf að skömmu seinna sprakk hún. Og kom kotið og skipið alveg ómelt innan úr henni, en karl og kerling, kýrin Kreppilhyrna, Refur rennandi og Björn betlandi voru lifandi og vel á sig komin. Gýpa var saumuð saman, og lifði hún bæði vel og lengi eftir þetta. 47

x

Æskan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.