Æskan

Ukioqatigiit

Æskan - 01.03.1982, Qupperneq 52

Æskan - 01.03.1982, Qupperneq 52
SAGAN UM KRISTOFER KOLUMRUS 9. Nú var óendanlegt haf á allar hliðar og staðvindur á eftir. Áhöfnin á skipinu trúði því statt og stöðugt að jörðin væri flöt, og að skipin gætu siglt út af henni þegar minnst varði, og það var erfitt að hafa stjórn á mannskapnum. Kólumbus varð að halda tvær skipsbækur, í annarri voru skrifaðar réttar staðarathuganir en hin var handa skipshöfninni og sýndi miklu minni fjarlægóir en rétt var. Oft sáust skýjamyndanir sem líktust landi við sjóndeildarhringinn, en alltaf reyndist það tál. 10. í byrjun október fóru fuglar að sjást. Næstu daga fjölgaði þeim óðum og nú sást líka rekaviður og greinar á floti, sem bentu á að skipin væru að nálgast land. Og 12. október, snemma um morguninn heyrðist varðmaðurinn uppi í reiðanum hrópa: ,,Land framundan!" Takmarki ferðarinnar var loksins náð og sjóleiðin til Indlands var fundin. Hver ósköpin eru að sjá þig, kunningi- Hefurðu orðið fyrir bifreiðarslysi? Nei, en hann Brandur er kominn heim úr brúðkaupsferð. Og það var ég, sem ráð- lagði honum að gifta sig. 11. í dögun morguninn eftir steig Kólumbus á land og lýsti yfir því að þetta land væri spönsk nýlenda. (búarnir sem þarna voru fyrir sýndu þeim enga mótstöðu og innan skamms höfðu þeir gert komumönnum skiljanlegt, að gull fyndist sunnar. Áður en Kólumbus fór úr þessum stað skírði hann hann Salvador. Eftir þriggja daga siglingu fram hjá fjölda af frjósömum eyjum komst leiðangurinn til Kúbu. Þar var numið staðar og leiðangursmenn gerðu þaö sem þeir gátu til að koma sér í mjúkinn hjá Indíánunum, sem þeir hittu þarna. 12. Á Kúbu fann Kólumbus það, sem honum þótti mestu skipta, nefnilega gull. Að vísu voru engar gullnámur á Kúbu, en í musterunum þar var allt fullt af skrautgripum og guðamyndum úr skíru gulli, og þótti hvítu mönnunum hnífur sinn komast í feitt. Annað sá Kólumbus þarna, sem honum þótti skrítið: inn- fædda fólkið reykti þurrkuð blöð af jurt sem óx þarna. Menn Kólumbusar reyndu þetta og þótti gott. Það var tóbakið, sem Evrópumenn kynntust nú í fyrsta skipti. Skrýtlur. — Hvers vegna er póstflutnings- vagninn hafður fremstur í brautar- lestinni? — Til þess að pósturinn komi sem fljótast á áfangastaðinn. 48 iESKKN

x

Æskan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.