Æskan - 01.04.1982, Qupperneq 9
LANG VINSÆLASTA
TÓMSTUNDAIÐJAN
Ekkert tómstundagaman er vinsælla
eöa meir stundaö hér á landi en
íþróttir.
Samkvæmt upplýsingum frá
■þróttasambandi íslands stunda rúm-
leSa sjötíu og þrjú þúsund manns
einhverjar íþróttir á vegum íþrótta- og
Ungmennafélaga innan sambands-
ins- Eru þá varla öll kurl komin til
Srafar í þeim efnum, því margir iðka
'þróttir utan allra félaga.
Samkvæmt áðurnefndri skýrslu er
knattspyrna langvinsælasta íþrótta-
9reinin. Tæplega sautján þúsund
^anns stunda hana. Um tíu þúsund
eru v'ð handknattleik, fjögur þúsund
°9 fimm hundruð í körfuboltanum,
32°0 í fimleikum, 7800 iðka frjálsar
'Þnóttir, rúmlega 4400 badminton,
5400 sund, 2500 blak, 2200 borð-
tennis, tæplega 1900 golf, 350 ís-
lenska glímu, 846 skautahlaup, 130
róður, 582 skotfimi, 590 júdó, 92
kastíþróttir, 862 lyftingar, 407 sigling-
ar og 39 curling og bogfimi.
Nú má telja víst að þarna sé oft og
tíðum um sömu einstaklingana að
ræða, sem taldir séu oftar en einu
sinni í skýrslu íþróttasambandsins.
íþróttir eru þrátt fyrir það tvímæla-
laust vinsælasta tómstundagaman
fólks, einkum yngri kynslóðanna.
Þá höfum við hinsvegar ekki talið
þá með, sem hafa það fyrir tóm-
stundagaman að horfa á keppni í
íþróttum, en sá hópur er býsna stór,
sem sækir kappleiki eða þá horfir á
íþróttir í sjónvarpi. Þessir áhorfendur
verða tæpast taldir iðkendur íþrótta,
en engu að síður eru íþróttirnar þeim
tómstundagaman.
.. j
ser á bak sínu eigin hjóli, en hann
komst ekki langt. Þegar hann ætlaði
ut um hliðió, lokaði Ingvar leiðinni
með hjólinu sínu.
'.Hvað vilt þú?“ hvæsti Ragnar og
reyndi að komast áfram.
”£g sá, hvað þú gerðir við hjólin,"
Sa9ði Ingvar kuldalega.
"Hvað með þaö?“ sagði Ragnar
frekjulega.
■■Viltu fá sannanir?"
>.Flyttu þig, smábarn!"
In9var flautaði fyrirfram ákveðiö
merki, og Björn kom þjótandi út úr
9arðinum. Berta kom líka fram úr
e'ustað sínum. Hún vissi, hvað
^ún átti að gera og hljóp upp tröpp-
Urnar til skólastjórans og gleymdi að
ería að dyrum.
"^ú höfum við hann!“ hrópaði hún,
Sv° aö skólastjórinn hentist til í stóln-
Urri- ..Nú höfum við hann. Komið eins
°9 skot!“
^ún sneri sér við og hljóp á undan
niður tröppurnar. Bergur kennari,
sem hafði verið að tala við skólastjór-
ann, fór á eftir henni og skólastjórinn
kom á hæla hans.
Það var heljarslagur í gangi fyrir
utan skólahlióið. Ingvar hafði fengið
blóðnasir og var úr leik, en Björn
þvældist fyrir Ragnari. Ragnar reyndi
oftar en einu sinni að komast undan á
hjólinu, en Björn hékk í þvíog tókst að
hrista hann af því aftur. Nú slógust
þeir, svo að blóðið lak af andlitum
þeirra. Ragnar var sterkari en Björn
og var að því kominn að fella hann,
þegar tveir sterkir armar gripu hann
aftan frá og lyftu honum upp. Það var
Bergur kennari, sem var kominn á
vettvang.
,,Svo að það náðist í þig núna,“
sagði hann og hélt æstum drengnum
eins og í skrúfstykki.
„Hérna sjáið þið síðustu skemmd-
arverkin," sagði Berta og sýndi hjólin.
,,Og ef þið trúið því ekki núna, að það
sé hann, sem hefur gert það," hélt
Björn áfram og benti á myndavélina,
,,þá hef ég hér tvær myndir af óþokk-
anum, meðan hann var aó því.“
Bergur kennari og skólastjórinn
stönsuðu — með Ragnar vel geymd-
an á milli sín.
,,Eruð það þið, sem eruð . . .?“
byrjaði Bergur kennari og brosti.
,,Nei, ekki lengur," tók Ingfvar fram
í fyrir honum. ,,Við vorum, heitir það
héðan af, því að nú verðum við að
finna upp á einhverju öðru."
,,Þakka ykkur kærlega fyrir," sagði
skólastjórinn og kinkaði kolli til þeirra.
,,Það var gott, að þið gátuð aflað
sannana." — Hann snerist á hæli og
gekk upp tröppurnar að skrifstofunni,
en Bergur kennari kom á eftir með
Ragnar.
Heill hópur hafði safnast saman
kringum þau þrjú, spurningarnar
dundu á þeim og heil halarófa af
krökkum fylgdi þeim heim á leið, og
forvitnar mæður og feður stönsuðu
og spurðu, hvað hefði gerst.
Það var ekki fyrr en þau voru komin
heim í garð til Ingvars, að þau fengu
að vera í friði. Ingvar stundi þungan
og sagði:
,,Nú fór illa. Nú er þetta gaman búið
að vera."
Skátablaðið, H. A. þýddi.
9