Æskan

Ukioqatigiit

Æskan - 01.04.1982, Qupperneq 20

Æskan - 01.04.1982, Qupperneq 20
 LAND FJOLSKYLDUÞMTUR j umsjá Kirkjumálanefndar Bandalags kvenna í Reykjavík. Kæru börn og ungmenni, sem lesið barnablaðið Æskuna, til ykkar langar mig aö beina oröum mín- um, þaö er varðandi umhverfi okkar, en hvað er umhverfi? Það er eflaust landið, loftið, hafið, fólkið og allt lífið er þrífst á hverjum staö. Erindið sem ég á við ykkur, elskulega æskufólk íslands, er að biöja ykkur að hjálpa okkur að fara vel meó íslenska umhverfiö og okkur sjálf, því það hlýtur að fara saman, viö og umhverfið, en góður maður fer græóandi sinn veg, í margvíslegum skilningi. Það er eitt atriði af mörgum, sem ég vil vekja sérstaka athygli á, en það er meðferð okkar á gleri. Mig undrar að sjá allt þaö gler, sem liggur út um allt, brotið mjölinu smærra. Það er hryllilegt aö sjá, og stórhættulegt mönnum og málleysingjum. Þaó er eins og hvergi megi vera heil rúöa í auðu húsi, eöa heil flaska á vegi manns, — allt skal brotið. — Það er sorglegt að vita að slíkt hugarfar skuli búa í nokkrum Islendingi. Hvaö veldur, höfum við ekki næga greind? Það var brýnt fyrir okkur krökkunum þegar ég var barn, aö fara varlega með brothætt gler. Gildi þess var margþætt, t. d. — að fara vel með verðmæti, — aö halda umhverfinu snyrtilegu, — að efla siðferö- iskennd, — aó koma í veg fyrir að menn og dýr yrðu fyrir fjörtjóni. Mig langar að segja ykkur sögu af ungum dreng, nágranna mínum og frænda. Það var í vor er leið, að ég sá Helga litla koma gangandi eftir göngu- stígnum fyrir utan húsiö mitt, meö óbrotna flösku í hendi, ég spurði hann hvað hann ætlaði aó gera við flöskuna, því ég óttaðist aö nú ætti aó brjóta grip- inn. En svar og athugasemd drengsins vakti mikla hrifningu mína, og von um betri heim, hann sagði: ,,Ég var hræddur um aö flaskan yrði brotin, og þá gæti veriö að hundurinn minn skærist á glerbrot- unum“. Mér leið betur á eftir, auðheyrt var aö kær- leikur drengsins og umhyggja fyrir þeim er hann hafði í umsjá sinni, var forsenda gjöröa hans. Er þá HJ Si 7~7

x

Æskan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.