Æskan - 01.04.1982, Side 24
Áki átti afmælisdag, og voru honum
gefnar margar gjafir. Var hann mjög
hugfanginn af þeim. Systkini hans,
Preben sem var yngri en Áki og Minna
systir hans voru ekki eins forviða því
að þau vissu hvað átti að gefa bróður
þeirra. Eða vissu um margar gjafirnar
áður en hann fékk þær.
En svo kom stór askja vafin innan í
silkipappír. Þau vissu ekkert hvað í
öskju þessari var og urðu mjög forvit-
in.
„Taktu upp úr öskjunni, Áki. En
gerðu það með varúð,“ sagði Minna.
Hún fór sjálf að taka bréfið utan af
öskjunni.
,,Nei, sjáið þið,“ mælti Preben.
Hann var svo ákafur að hann var
kominn með höfuðið niður í öskjuna.
„Flugvél! Flugvél sem getur flogið
þegar við kippum í teygjubandið,"
sagði Áki sigri hrósandi, og horfði
aðdáunaraugum á þennan dásam-
lega hlut.
Minna mælti: ,,Þú hefur fengið svo
margar góðar afmælisgjafir." Hún leit
í kringum sig. ,,Þú hefur fengió bíl,
sem hægt er að vinda upp, eimvagn
og flugvél. Þetta þyrfti að vera ekta,
þá gætum við ferðast."
,,Þú gleymir mér sem er þýðingar-
meiri en hitt allt til samans,“ sagði
rödd út í horni. Svo kom hnegg.
Börnin urðu forviða og horfðu út í
hornið. Þar stóð gamli rugguhestur-
inn.
,,Já, það er ég sem tala. Ég sagði að
þú hefðir gleymt mér," sagði hann.
,,Skárra er það nú,“ hvæsti eim-
vagninn með hæðnishreim í röddinni.
,,Hver ríður hestum nú á dögum?
Þegar menn fara í feröalög fara þeir
með járnbrautarlestum."
,,Þér skjátlast, “ mælti bíllinn.
,,Járnbrautarlestir eru orðnar álíka úr-
elt samgöngutæki og hestar. Þær eru
þó enn notaðar til vöruflutninga að
einhverju leyti. Það er allt og sumt. Ef
menn vilja komast fljótt og vel leiðar
sinnar þá nota þeir bíl.“
,,Þið eruð öll jafnheimsk," sagði
flugvélin yfirlætislega.
,,Þið eruð gamli tíminn, en ég, ég er
framtíðarsamgöngutækið. Ég ber
framtíðina á vængjunum. Ég sigra
ykkur öll.“
Börnin sátu orðlaus af undrun og
horfðu hvert á annað. Svo mælti Áki
fyrirvaralaust:
„Eigum við að efna til veðhlaups
eða kapphlaups? Þá getum við séð
hver kemst fyrst leióar sinnar. Það er
ekki fullnægjandi að grobba einungis.
Ég álít aó flugvélin verói hlutskörp-
ust.“
Flugvélin mælti: „Farðu inn í mig,
og viö skulum sýna hinum að ég er
framtíðarsamgöngutækiö.“
Preben sagði: „Ég hefi mesta trú á
bílnum. Ég ætla að aka í honum."
VEÐHLAUPIÐ
Minna sagði: „Gamli rugguhestur-
inn hefur verið okkur trúr og tryggur.
Ég ætla að ríða á honum." Og
rugguhesturinn ruggaði sér af gleði.
Hann mælti:
„Við berum sigur úr býtum. Við er-
um ekki öll þar sem viö erum séð.“
Það hvein í flugvélinni og bílnum er
þau lögðu af staö. En eimvagninn
stundi og hvæsti eins og þegar gufu
er hleypt út.
„Hvert eigum við að fara?“ spurði
flugvélin, og var óþolinmóð.
„Niður veginn, yfir engið, fram hjá
skóginum og vatninu að stóra hóln-
um, og heim aftur," mælti rugguhest-
urinn.
„Það er samþykkt," sögðu hin og
þutu af stað með hvin og hávaða
miklum.
Minna veifaði til Áka, sem sat í
flugvélinni. Hann veifaði líka.
„Hann flýgur svo hátt. Ég vona að
hann falli ekki til jarðar og meiði sig,“
sagði Minna. „Mér líður vel á bakinu á
gamla vini mínum. Hann hefur aldrei
ausið mér af sér.“
Preben var í bílnum, og var kominn
drjúgan spöl áleiðis. En eimvagninn
rann eftir þjóðveginum með töluverðu
yfirlæti.
Minna andvarpaði og mælti:
„Þeir verða allir á undan okkur. En
ég hef mest gaman af að ríða." Svo
klappaði hún rugguhestinum.
Þau voru nú komin yfir engið og
nálguðust skóginn. Þá heyrðu þau
eimvagninn kalla.
„Komið og dragið mig upp. Fjöðrin
er útgengin. Ég kemst ekki lengra."
Eimvagninn hafói stöðvast við skóg-
arjaðarinn og gat ekki mjakast úr
stað.
„Þarna hefur einn gefist upp. Við
verðum þá ekki síðust," sagði ruggu-
hesturinn.
Minna játaði því. Svo sagði hún
vió eimvagninn: „Ég hef ekki tíma til
þess að „trekkja" þig upp. Bíddu
þangað til við komum aftur." Svo reið
hún áfram.
KLUKKNAHLJÓMUR
Ef þú vilt ennþá einu sinni heyra
jólaklukkurnar hljóma getur þú gert
þessa tilraun: Binda skal matskeið á
miðjuna á löngum seglgarnsspotta
eða bómullarþræði. Hnýttu hnúta á
báða enda og haltu þeim með vísi-
fingrunum inni í eyrunum. Svo lætur
þú skeiðina sveiflast fram og aftur þar
til hún slæst í vegg —, og þá skaltu
bara heyra!
24