Æskan - 01.04.1982, Qupperneq 25
SKUGGAMYNDIR HEIMA
.1
Þegar hún kom að vatninu heyrði
hún hósta og stunur í bílnum.
Hann mælti: „Dragðu mig upp. Ég
kemst ekki lengra.“
Preben hristi höfuðið og sagði:
"Ég kann það ekki. Ég er ókunn-
u9ur þessum útbúnaði. Geturðu ekki
hjálpað okkur, Minna?"
Hún svaraði: ,,Þegar ég kem aftur."
Svo veifaði hún.
Það var nú ekki orðið langt að stóra
hólnum, þá heyrðist hvinur og
sprengingar.
Flugvélin sveif til jarðar, og lenti
stutt frá hólnum.
’.Spenntu upp teygjubandið,"
sa9ði flugvélin. ,,Ég get ekki flogið
lengra án þess.“
Áki fór að fást viö það.
Minna hélt alla leið að hólnum.
Þegar hún var komin þangað kallaði
flun: ,,Ég skal nú hjálpa þér.
Hugguhesturinn varð fyrstur hingaó."
Hún fór af baki og hjálpaði Áka til
Þess að koma flugvélinni af stað. Og
innan skamms hafði hún hafið sig til
flu9s. En flugvélin átti eftir spöl til
hólsins. Minna kom svo til bílsins, ríð-
andi á rugguhestinum. Hún hjálpaði
t'1 að koma honum í gang. Bíllinn sneri
V|ð og hélt heimleiðis, það gerði eim-
Va9ninn einnig, eftir að Minna hafði
hjálpað honum.
Ot! börnin komu svo samtímis inn í
stofuna.
"Hugguhesturinn er bestur," mælti
^inna. Hún hélt um hálsinn á gamla
hestinum.
Áki horfði á flugvélina aðdáunar-
augum, en Preben lét eimvagninn og
bílinn þreyta kapphlaup um gólfið.
Oll voru börnin ánægð. Þau höfðu
skemmt sérvel.
En kisi þó! Þetta hlýtur að vera einhver
^'sskilningur.
Flest börn og jafnvel fullorðnir líka, hafa gaman af að framleiða sínar
eigin myndir — skuggamyndir á vegg eða tjaldi. Þessar myndir getið þið
framleitt á vegginn með þvíað hreyfa fingurna á mismunandi hátt. Þið getið
búið til dýramyndir aliskonar, hunda, ketti, fugla, svín o.s.frv., og þið getið
látið þau hreyfast eftir óskum, látið þau hreyfa eyrun, leggja kollhúfur,
opna munninn o.s.frv.
Reynið þið að líkja eftir þessum myndum sem þið sjáið hérna.
Fáið þið reykjarpípuna hans pabba ykkar lánaða og búið þið til nefstóran
karl með barðastóran hatt. Og svo skuluð þið búa til kisur og allskonar
hunda. Þið getið reynt að búa til önnur og fleiri dýr en þið sjáið hérna, eða
búa til myndir af fólki og ýmsum munum. Þetta reynir á hugmyndaauðgi
ykkar, og auk þess getur verið skemmtilegt að sjá skoplegar myndir á
veggnum ykkar, kannski myndir, sem þið hafið aldrei séð áður og sjáið
aldrei framar.
mmmmmm^mm
• I'
25
mmammm