Æskan

Årgang

Æskan - 01.04.1982, Side 32

Æskan - 01.04.1982, Side 32
 Nokkrar grundvallarupplýslngar lyrlr garðyrkluáhugalólk GARÐURINN OG VORIÐ Þeir sem ætla að rækta garðinn sinn í sumar gera það ekki án áhalda. Nauðsynlegt er, að áhöldin séu létt og þannig úr garði gerð, að auðvelt sé að beita þeim. Þau áhöld, sem nauðsynleg teljast við upphaf garðræktunar eru sláttu- vél, stunguskófla og gaffall, garð- Garðáhðlfl hrífa og garðkanna eða slanga, því þó oft sé vætusamt þarf að vökva annað slagið, sérstaklega þegar gróðursett er. Síðar má bæta við verkfærum eins og kantskera, trjá- klippum, limgerðisklippum og svo framvegis, allt eftir stærð garða og þörfum hvers og eins. Undírbúningur jarðvegs Nauðsynlegt er að undir- búa vel þann jarðveg, sem ætlunin er að gróðursetja í. Loft og vatn þurfa að geta leikið um moldina eigi plönt- urnar að ná öruggri rótfestu. Gróðursetning Best er að gróðursetja plöntur sem fyrst eftir að þær hafa verið keyptar. Holan, sem gróðursett er í, á að vera það stór, að rætur plöntunnar kuðlist ekki saman. Gott er að vinna jarðveginn nokkru áður en gróðursett er svo hann nái að jafna sig áður en plantan er sett niður. Að jafnaði ber að vökva jarðveginn, þegar búið er að gróðursetja í röku veðri, að morgni til eóa að kvöldi, og koma þannig í veg fyrir að plönturnar þorni í sól og þurrviðri. Vökvun Best er að vökva rækilega, þegar það er gert, þannig a efstu 20 sm jarðvegsins vökn1 og gott er að hafa vatnið y volgt sé þess kostur. Ákjos anlegast er að vökva kvöl s eða morgna. I Hvenær er besti tíminn til gróð- ursetningar? Limgerðisplöntur og trjáplöntur með berum rótum ætti að gróðursetja um það bil þegar laufið springur út á trjánum og helst ekki síðar en í byrjun júií... Rósum er best að planta eins snemma og unnt er... n Greni og furu á að gróðursetja áður en þær taka að vaxa, því nýi vöxturinn er afar viðkvæmur... þeim má líka planta í lok sumars, þegar þær eru hættar að vaxa, Þ° ekki síðar en í byrjun september... Garðplöntur í pottum og fjölærar jurtir er óhætt að gróðursetja allt sumarið. .. Sumarblóm á að gróðursetja eins fljótt og veður leyfir> miða skal þó við veðurþol hinna ýmsu tegunda.. ■ 98

x

Æskan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.