Æskan - 01.04.1982, Qupperneq 37
'V
Baden-Powell.
Af einstökum merkisatburðum í
sö9u íslensks skátastarfs má nefna,
aö fyrsta landsmót skáta var haldið í
Þrastarskógi árið 1925. Síðan hafa
landsmót verið haldin reglulega, nú
S|öast í Kjaraskógi við Akureyri á sl.
Surnri, og var það eitt fjölmennasta
skátamót, sem haldið hefur verið
hérlendis.
Fyrsta utanferð skátaflokks var til
Un9verjalands árið 1926, en síðan
^afa íslenskir skátar farið fjölmargar
^erðir á erlend skátamót og ráðstefn-
Ur- Tengsl skátahreyfingarinnar ís-
ensku við erlenda skáta hafa ætíð
verið mikil, enda byggir skátastarf í
eiminum á sömu grundvallarkenn-
ln9unum, kenningum Baden-Powells.
Þa má einnig geta merkra tíma-
þegar íslenskir skátar fengu
Skátafiokkurinn.
Deildin.
jörðina Úlfljótsvatn til ábúðar árið
1941. Þar hafa skátar rekið skáta-
skóla og barnaheimili á sumrin, í
fjölda mörg ár. I tilefni af þessum
tímamótum var vígt nýtt skátaheimili
við Snorrabraut í Reykjavík, auk þess
var þessara afmæla minnst með
margvíslegum hætti víða um land, en
þá voru einnig liðin 125 ár frá fæð-
ingu Baden-Powells. Þeir íslendingar
eru ótaldir, sem notið hafa ánægju-
legs félagsstarfs innan skátahreyf-
ingarinnar. Starf hennar miðar að því
að laða hið besta fram í einstaklingn-
um, þroska hann til ábyrgðar og
þjónustu við samfélagið. Æskan flytur
skátahreyfingunni á Islandi heillaósk-
ir á þessum tímamótum.
HNÚTALEIKUR
Nokkrir skátar sitja í röð við borð og
hafa bundið fyrir augun. Sex eða sjö
hnútar ganga á milli skátanna. Á eftir
eiga þeir svo að segja hvað hnútarnir
heita, og í hvaða röð þeir voru.
I hitasumrum heimsækja mill-
jarðar af engisprettum akrana í
Bandaríkjunum, svo þéttir hópar að
sums staðar má telja 300—400 á
hverjum fermetra. Það er ógerningur
að eyða þessum ófögnuði nema með
því að dreifa eitri yfir akrana úr loft-
inu, en af því að hér er um miklar
víðáttur að ræða verður að nota flug-
vélar til þess. Þó að þetta kosti mikið
þá er það samt smáræði móts við
það, sem engispretturnar eyðileggja.
33