Æskan - 01.04.1982, Síða 38
Það hefur áreiðanlega ekki farið framhjá neinum að
vinsaelasta íslenska hljómsveit allra tíma, Utangarðs-
menn, hætti sl. haust. Síðan hefur aðeins ein hljómsveit
komið til greina sem arftaki Utangarðsmanna. Það er
auðvitað ,,detroit"rokkhljómsveitin EGÓ.
Stofnendur Egós voru: Jói „Motorhead", Þorleifur
,,bassi" og bræðurnir Beggi og Bubbi Morthens.
Skömmu fyrir jól fór Egó í sína fyrstu hljómleikaferð um
landið. Með í ferðinni var gestagítarleikarinn Ragnar
Sigurðsson (áður í Tívolí).
Egó vakti gífurlega hrifningu fyrir líflegt bárujárnsrokk
af „detroit" gerðinni. Bar þar mest á stórkostlegum söng
Bubba, athyglisverðum textum, góðum lögum hans og
þéttum trommuleik Jóa. Sumir töluðu um aó Jói stæði
sjálfum Magnúsi Stefánssyni þáverandi trommara
Bodies skammt að baki hvað trommuleikinn varðaði.
Vonlega glottu því ýmsir þegar Magnús leysti Jóa af'
Egó í byrjun febrúar. Áður hafði Ragnar horfið af braut
vegna veikinda. Brotthlaup Ragnars kom þó ekki að sök
þar sem Begga fór ótrúlega hratt fram á gítarnum. Auk
þess er Bubbi lipur gítarleikari ef á þarf að halda.
Magnús hóf starf sitt með Egó á því að drífa hljóm-
sveitina inn í stúdíó. Fyrsta plata Egós ætti þess vegna að
birtast á markaðnum fljótlega. Ef platan verður eitthvað i
líkingu við hljómleika Egós á Lækjartorgi í febrúar þá er
okkur óhætt að hlakka til. Því eins og 3ja ára stelpan sem
sat á háhesti á mömmu sinni á hljómleikunum sagði-
Þetta er sko frábært!
f UMSJÓN JENS GUÐMUNDSSONAR
34