Æskan

Ukioqatigiit

Æskan - 01.04.1982, Qupperneq 46

Æskan - 01.04.1982, Qupperneq 46
 12. Jú, yngsta dóttirin var að vísu dálítið óttaslegin við að heyra þessa sögu, en einnig forvitin og þess vegna fylgdi pabbi hennar henni áleiðis að húsi bjarnarins. 13. Stúlkan virti fyrir sér hið fallega og velupplýsta hús og var fyrst í vafa um hvort hún ætti að voga sér að fara inn í það eða ekki. 14. Að síðustu réði hún það við sig að fara inn. Henni fór eins og föður hennar, að hún undraðist skrautið þarna inni, slíkt hafði hún aldrei séð neitt þvílíkt fyrr. 15. Hún var svöng orðin og þess vegna settist hún niður við mat- borðið og tók að snæða. Það fór sem fyrr, að hljómlistin byrjaði aó heyrast þegar farið var að þorða. 16. Þegar hún hafði étið og drukkið svo mikið að hún var orðin södd, kom björninn labbandi inn og fór að tala við hana. — 17. ,,Þú skalt ekki verða hrædd við mig,“ sagði hann. ,,Þú munt að- eins sjá mig kvölds og morgna og þú mátt vera hér svo lengi sem þú vilt.“ — Stúlkan var þarna um tíma, en þar kom, að hana fór að langa til að fara heim til sín aftur. Jónas gamli var járnsmiður og dvaldist flesta daga í smiðju sinni. Lengi hafði hann notið næðis við vinnu sína, þar til strákar úr þorpinu tóku upp á því að venja komur til hans og skaprauna honum á marga vegu. Stundum köstuðu þeir í hann snjó- kúlum eða þeir klifruðu upþ á þak smiðjunnar og börðust þar um með ópum og óhljóðum. Jónas gamli undi þessu illa og eitt sinn er strákarnir komu, stóð hann í smiðjudyrum og sagði með mikilli áherslu: — Ég er búinn að spyrja sýslu- manninn að því, hvort ég mætti ekki vera friðlaus í minni eigin smiðju, og hann sagði, aó það væri alveg sjálf- sagt. 42

x

Æskan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.