Æskan

Årgang

Æskan - 01.04.1982, Side 47

Æskan - 01.04.1982, Side 47
18- Hún bað björninn að lofa sér heim, bara stuttan tíma. ,,Þú mátt þá ekki svíkja mig,“ sagði björn- inn. — ,,Nei, nei, það kemur ekki til með mig," svaraði stúlk- an. „Hræddur er ég þó um það,“ mælti björninn, ,,en farðu samt.“ 19. Hún fékk leyfi í 3 daga og hún fékk hring á fingur sér, sem hafði þá náttúru, aö hann gat flutt stúlkuna hvert sem var á auga- bragði. Hún hélt því heim og var henni vel fagnað þar, sem vænta mátti. — 20. Systur hennar voru öfundsjúkar og stálu frá henni hringnum góða. — Stúlkan leitaði og leitaði allsstaðar að hringnum og að síðustu fann hún hann, þar sem systur hennar höfðu falið hann. *1- Hún flýtti sér heim þangaó, sem björninn átti heima og fór loft- leiðis með hjálp hringsins. En Þegar hún kom þangað, fann hún hvergi björninn. Hún gekk út í skóginn og þar fann hún björn- inn liggjandi í grasinu og var hann sem dauður. — 22. Stúlkan kastaði sér grátandi ofan á loðinn feld bjarnarins, en þá brá svo við, að hann varð aö hinum fríðasta kóngssyni. ,,Þú komst alveg mátulega til þess að bjarga mér frá dauða," sagði 23. Og hann sagði henni að jötunn einn hefði lagt það á sig, að hann skyldi vera bjarndýr þar til að ung stúlka yrði svo skotin í honum að hún gréti hann úr helju. ,,Og það hefur þú nú gjört," sagði hann að lokum. — Brúókaup þeirra var haldið, og þau urðu langlíf í landinu handan við sól og sunn- an við mána. — hann. — ENDIR Kennslukonan spurði Jónu litlu: ~~ Hvaöa refsingu fékk Adam fyrír aö óhlýðnast guði? ~~ Hann átti að eta brauð þangað lil ^ann svitnaði. Stína: Hvað verður um kettina þeg- ar þeir eru orðnir svo gamlir að þeir geta ekki gengið? Sigga: Þá kemur einhver og selur pabba þá. Gestur var að dást að hárinu á Villu litlu. — En hvað þetta eru fallegir lokk- ar. Þú hefur þá frá mömmu þinni. — Nei, frá pabba, hann hefur misst alla sína lokka. L Skrýtlur. 43

x

Æskan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.