Æskan

Árgangur

Æskan - 01.04.1982, Síða 49

Æskan - 01.04.1982, Síða 49
maðurinn? Það er — taktu nú eftir — það er hún Mjallhvít — hún sem ég hef verið svo góð (læst gráta) og elskað meira en allt í þessum heimi (þögn). Velferð ríkisins krefst þess, að Mjallhvít verði látin hverfa — þú skilur mig, Jóakim! (þögn): Jóakim, ég býð þér, að þú farir með hana út í skóg og gerir þar útaf við hana — og til merkis um að þú hefur gert eins og fyrir þig er lagt, skaltu færa mér hjartað úr henni. — Skilurðu, skræfa? Jóakim (skelfur): En — yðar hátign — Þetta er morð:. . . Drottningin: Lætur þú smámuni fá á þig? Þú átt um tvennt að velja: Annaðhvort gerir þú, eins og ég segi þér — og ég mun launa þér konung- lega — eða þú gerir það ekki — og þá mun ég láta kvelja þig öllum kvölum, sem ég verstar veit (tekur í handlegg hans og hristir hann). Hvorn kostinn tekur þú? Jóakim (titrandi af hræðslu); Ég hlýði yður hátign! (Til áhorfendanna). Ég þori ekki annað. Drottningin: Það var rétt af þér, karlinn! Ég vissi alltaf, að þú ert ekki svo blár! (Opnar dyrnar til vinstri). Mjallhvít! (Mjallhvít kemur inn). Mjall- hvít mín, þú ert eitthvaö svo föl. Ég held að þú hefðir gott af því að anda að þér skógarlofti. Þessvegna hef ég sagt herra Jóakim, konunglegum hirð-veiðimanni vorum, að fara með þér í langa gönguför út um skóginn. Mjallhvít: Eins og þú vilt, stjúpmóðir mín! (Réttir henni höndina og kveður). Vertu sæl! Drottningin: Vertu sæl, væna mín! (Faðmar hana að sér, kyssir hana á kinnina. Mjallhvít og Jóakim fara). Drottningin (ein): Ó, nú er þungu fargi af mér létt! Nú skulum við sjá bráðum, hver fegurst er í mínu ríki! TJALDIÐ cn MÆlHVÍr »„ MJflLLHUlT “tfffAlflSJÓNLElW^ í2 MTTUM Væri ég frjáls og flogið gæti flygi’ ég suð’r í ókunn lönd. Blóm þar læsi’ ég glöð á grundu, græddi sár og leysti bönd. Ó, hve sælt, er sumra tæki sér að lyfta vængjum á! Fljúga ofar fjöllum hæstu — frjáls að svífa um loftin blá. Ég er ekki frjáls — en fangi, fangi’ í minni eigin borg. Harpa mín, við hljóma þína hverfa lát mér beiska sorg! Ó, þið heitu haturslogar, hættið strax að kvelja mig! Ó, þú Ijóta öfund — hverf þú — undirdjúpin taki þig! Á ég lengi enn að bíða, uns að verð ég frjáls og glöð, ég með þér, minn ástvin besti, út í lífið gangi hröð? Ó, hví dvelst þér? Komdu, kæri! Kvöl og þrautum leys mig frá. Veistu: Ég er viðkvæm lilja? Visna brátt sem kalið strá! Herbjartur (kemur inn vinstra- megin): Loksins — loksins fann ég þig, ástkæra Mjallhvít! Þín hef ég leitað hátt og lágt og var nú að verða úrkula vonar um að ég fyndi þig. En þá heyrði ég óm af söng þínum og rann á hljóðið. — En hvað mér sýnist þú vera niðurdregin! Hvað gengur að þér? Mjallhvít (brosir): Ó, það er svo sem ekkert! (Réttir honum höndina). Vel- kominn, Herbjartur konungsson! Herbjartur (heldur í hönd hennar): Mjallhvít konungsdóttir! Áður voru kinnar þínar blómlegar, en nú eru þær bleikar. Og þú hefur grátið — það sé ég. En metnaður þinn bannar þér, ef Leikrit ÆSKUNNAR

x

Æskan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.