Æskan

Årgang

Æskan - 01.06.1989, Side 7

Æskan - 01.06.1989, Side 7
LÁSI MINN! FÁÐU ÞÉR SERÍOS OG BRAUÐ í HÁDEGINU. KAUPTU SVO MJÓLK OG BÓNDABRAUÐ OG FARÐU TIL ÖMMU ÞINNAR AÐ LÆRA FYRIR morgundaginn. ÉG KEM KLUKKAN SEX. MAMMA. Lási settist með seríos ftaman við myndbandið. Hann leit á nokkrar myndir en fannst þær allar fúlar. Svo stóð hann upp Hann fór inn í herbergið sitt °g settist á rúmið. Hann sat lengi °g horfði á draslið. Lf hann ætti bara Étinn bróður Sem hann gæti leikið við. ^Hnn mundi ekki hrekkja, Éara leika við hann °g verja hann fyrir ^ðrum krökkum. Lási kreppti hnefann. ^ann var býsna sterkur . . . Úr einum ruslakassanum dró hann upp mynd. Myndin var af litlum strák með miklar ljósar krullur. Þetta var Árni hálfbróðir hans á Helluvík. Lása fannst hann ekkert vera bróðir sinn. Einu sinni höfðu þeir hist. Pabbi kom í heimsókn með Árna og þeir höfðu allir farið saman í bæinn. Árni var hræðileg frekjuskjóða. Hann öskraði og grenjaði því að hann missti ísinn sinn. Svo mátti Lási ekki segja orð við pabba; þá grenjaði Árni enn hærra. S k r ý t i ð ! Árni sem átti heima hjá pabba og gat talað við hann allt árið. Loksins varð Lási svo leiður að hann stökk upp í strætisvagn og fór heim. Hann nennti ekki að vera með Árna frekjuskjóðu. Pabbi hringdi og sagðist ætla að bjóða Lása í bíó. Þeir skyldu fara bara tveir. Á eftir skyldu þeir kaupa hamborgara, franskar og líka kók. Pabbi ætlaði að hringja þegar hann væri búinn að finna rétta mynd. Lási hlakkaði mikið til að fara einn með pabba. Hann beið og beið en síminn hringdi ekki fyrr en löngu seinna. Þá var pabbi kominn heim til sín á Helluvík. Pabbi sagði að þeir færu bara í bíó næst þegar hann kæmi suður. - Uss, eins og Lása langaði eitthvað með honum í þetta fúla bíó . . . Hann henti myndinni af Árna í ruslakassann og stóð upp. Svo opnaði hann gluggann og hallaði sér út. Hann var svo heitur í framan. Það var gott að kæla sig. Lási fór í úlpuna, tók peningana og miðann frá mömmu og snaraðist út. Hann renndi sér á fullri ferð á handriðinu niður stigann. Kerlingin á fyrstu hæð varð alltaf vitlaus ef hún sá Lása á handriðinu. í dag var hún að vinna. Lási hljóp upp aftur og fór nokkrar bunur. Svo fór hann út og skellti á eftir sér. Framhald. ÆSKAN 7

x

Æskan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.