Æskan

Árgangur

Æskan - 01.06.1989, Blaðsíða 11

Æskan - 01.06.1989, Blaðsíða 11
 "Y^ Elísabet kynntumst haustið 1982. Ég var þá í heimavist á Laugarvatni en varð 'ðföruit til Reykjavíkur um helgar eftir það. . sfingar aftur og ég var vondaufur. Á yrstu mótunum, í mars, kastaði ég 6-68 og 67.08; litlu betur en þegar ég ytjaði fyrir alvöru í spjótkastinu. En Petta kom hægt og bítandi; 72.20, ^•30 og suðausturríkjakeppnina vann e® nteð 73.98 m kasti. Á meistaramóti áskólanna, sem haldið var í Utah, varð e8 annar með 77.70 m, 12 sm á eftir sig- arvegaranum, Patrick Bodan frá Sví- PJ°ð. Þarna voru mörg þúsund áhorf- endur og steinhljóð var á vellinum þeg- ar kastið var mælt. Það er alveg sérstök sternrnning og erfitt að lýsa henni. . Eg var mjög ánægður með þetta kast, e'nkum þar sem Patrick hafði náð 82.28 111 á móti skömmu áður. Daninn Kenn- eth Pedersen varð þriðji og kastaði 75 m s etta. Hann á Danmerkurmetið, 77.86 m. A Flugleiðamótinu kastaði ég 78.10 P° að ég fengi enga keppni. Einar Vil- Jálmsson var erlendis og Sigurður Ein- arsson meiddur. Það var mjög ánægju- ^gt að bæta sig og raunar staðfesting á 80 metrarnir væru skammt undan.“ (Þegar Sigurður kastaði 77.70 m °mst hann í úrvalsflokk samkvæmt °oun Frjálsíþróttasambandsins í styrk- -f'kaflokka. (í spjótkasti er lágmarkið . ‘50) Á þessu ári hafa aðeins tveir aðr- y nað þeim árangri, Einar í spjótkasti, esteinn Hafsteinsson í kringlukasti. eð þessari kastlengd er Sigurður ^ntanlega kominn í hóp 50 bestu Pjótkastara heims. i kki er ólíklegt að fleiri bætist í úr- p sflokk í sumar: Sigurður Einarsson, etur Guðmundsson og Eggert Boga- n' Þeir keppa allir í kastgreinum en yrangur íslendinga í þeim hefur aldrei etlð betri en í ár. Enn fleiri en áður ta kka státað af löngum köstum) - Hvenær geta spjótkastarar, sem hafa æft af krafti, átt von á að vera á há- tindi ferils síns? „Það er misjafnt eftir því hvenær menn snúa sér að greininni. Margir eru hvað bestir um þrítugt. Ég byrjaði svo seint að segja má að ég sé enn á „ungl- ingsaldri“ meðal keppenda í spjótkasti. Ég á að geta bætt mig verulega í ár og á næstu árum - ef ég get forðast meiðsli. Ég set stefnuna á 80 m kast á árinu og síðar á að keppa á Ólympíuleikum. Það er erfitt að komast alveg hjá því að meiðast í keppni og æfingum þegar menn reyna mikið á sig til að verða í fremstu röð. Það er hollt að stunda íþróttir í hófi en æfingar með hámarks- getu í huga verða að vera í nokkru óhófi. Þá segir líkaminn oft „nei“. Því verður að taka og slaka á, gefa honum tíma til að jafna sig. Líkaminn er meist- araverk og menn geta náð sér furðu vel af meiðslum ef þeir haga sér skynsam- lega. Skynsamlegast er auðvitað að fara varlega, mýkja líkamann alltaf vel fyrir átök og gæta þess að skór og annar bún- ingur sé vandaður.“ - Hvað fleira þurfa ungir íþrótta- menn að hafa í huga? „Að hvika ekki frá því marki sem þeir setja sér, gefast ekki upp. Það tek- ur oft langan tíma að ná takmarkinu og alltaf má búast við að óhapp verði. Eng- inn íþróttamaður kemst verulega langt án þess að hafa fyrir því. Góðar svefnvenjur og holl fæða er mikilvæg. Börn og unglingar þurfa til að mynda mjólkurvörur því að þær eru ríkar af eggjahvítuefnum. Þess má til gamans geta að ég drekk mikið af mjólk og hef sérstakt dálæti á kókómjólk. Varast ber líka að skemma líkamann með óhollum og ávanabindandi efn- um.“ Ljós í tilverunni - Hafa afreksmenn í íþróttum tíma til að sinna öðru en æfíngum? Verða áhugamál ekki að sitja á hakanum? „Æfingar og keppnisferðalög taka að sjálfsögðu mikinn tíma. En tíma fyrir fjölskylduna verður maður að hafa og það er aðal-áhugamálið. Við Elísabet eignuðumst annan son 12. janúar 1988 og skírðum hann einnig Matthías Trausta. Hann hefur dafnað vel og er skærasta ljósið í tilverunni. Við eigum von á öðru barni í lok júlí svo að til- hlökkunin er mikil.“ - Önnur áhugamál ykkar hjón- anna. . . „Sameiginlegt áhugamál okkar er að ferðast og kynnast háttum og menningu fólks af ýmsu þjóðerni. Hvort okkar á að auki sitt áhugamál: Ég skotfími, hún málaralist. Hún hefur fengist við mála í nokkur ár og hefur gengið ákaflega vel; tekið þátt í myndlistarsýningum innan Bandaríkjanna og utan.“ - Átt þú systkini - hafa þau stundað íþróttir? „Ég á þrjú systkini. Ásgeir Páll er tvítugur, Agnes að verða 17 ára og Matthías er á 14. ári. Þau hafa æft íþróttir en ekki helgað sig þeim.“ - Er þess að vænta að þið Einar og Sigurður, og aðrir afreksmenn okkar í kastgreinum, keppið við erlendar stór- stjörnur hér í sumar? „Nei, því miður. Ekkert stórmót verður haldið hér í sumar vegna þess að vellir eru svo lélegir. Færeyingar eru komnir framar en við í vallarmálum. Þeir eru að taka í notkun fullkominn frjálsíþróttavöll. Vonandi verður bætt úr þessu. Það verður að kappkosta að gera a.m.k. tvo góða velli, upphitaða, í Reykjavík og Mosfellsbæ. Ekki sakaði að einn væri á Akureyri.“ - Hvenær má næst búast við stórtíð- indum af þér. . . ? „Það er ekki gott að segja. Árangur minn að undanförnu auðveldar mér að komast á mót erlendis og það er mikil- vægt að fá tækifæri til að reyna sig við sterka kastara. Ég stefni að því að taka þátt í mótum í ágúst, m.a. í Finnlandi og vona að mér takist að bæta mig.“ Við látum spjalli lokið. Sigurður kveður. Vörpulegur, bjartur yfírlitum gengur hann á brott, einn ágætra full- trúa íslands á vettvangi íþróttanna vítt um heim. Honum fylgja góðar óskir okkar. ÆSKAN 11
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57

x

Æskan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.