Æskan - 01.08.1989, Page 6
FRÁ ÝMSUM HLIÐUM
Þórir S. Guðbergsson:
Kæri vinur! Gaman væri að heyra
frá þér hvað þér finnst og hver
reynsla þín er. Ég ætla að ljúka
þessu stutta bréfi með orðum aldr-
aðrar móður þar sem hún segir hvað
henni finnst um „besta veganestið í
æsku“.
„Aðaleftirlætisboðorð föður og
Kynslóðir mætast. Ljósm.: Katrín Elvarsdóttir
Kæri vinur!
Það er víst ekki á hverjum degi sem
ég sest niður til þess að skrifa þér fá-
einar hnur. í raun finnst mér það
sorglegt hvað mörg okkar eru löt að
skrifa. Eins og það getur verið
skemmtilegt að fá bréf og kort! Eða
hvað finnst þér?
Ekki meira um það að sinni. Fyr- j
ir fáeinum árum var ég með
fræðlsuþætti í útvarpinu um málefni j
aldraðra. Ég lagði þá eitt sinn fyrir j
hlustendur spurninguna:
Hvað telur þú besta veganestið j
sem þú fékkst í bernsku og æsku? 3
Mér finnst alltaf svo mikils virði j
að heyra um reynslu annarra og öðl- !:
ast þannig nýja reynslu sjálfur.
Hvað fannst svo fólki á efri árum j
um gott veganesti í æsku? Sitt sýnd- t
ist nú hverjum - en hreint ótrúlegt |
hvað margir aldraðir minntust á eft- j
irfarandi fjögur atriði:
1. Trú
2. Umhyggja og hlýja
3. Öryggi
4. Ákveðni og festa.
móður voru þrjú:
1. Vertu ávallt öðrum trúr þá verður
þú einnig trúr sjálfum þér.
2. Reyndu að skilja og fyrirgefa í
stað þess að dæma og ala með þef
reiði.
3. Sýndu heiðarleika í öllum við-
skiptum við menn og málleysingja-
Þú lætur ef til vill heyra frá þér
hvað þér finnst um slík „boðorð“ og
hvort þér finnst nauðsynlegt að hafa
reglur.
Ég held að „æskan“ og „efri árin
eigi alltaf samleið, ekkert síður nú a
tímum en fyrr. Æskunni fylgir
djörfung, þor og framsækni. Ellinm
fylgir festa, virðuleiki, reynsla og
þekking.
Með því að vinna saman og miðla
hvert öðru af reynslu okkar tekst
okkur að auðga mannlífið í kringum
okkur.
Læt þetta nægja að sinni. Vona að
þú sért ekki farin(n) að hrjóta af
leiðindum einum saman.
Gangi þér allt til gæfu.
Þess óskar þinn einlægur,
Þórir S. Guðbergsson
Aldraðir í Viðeyjarferð 1989. Ljósm. Katrín Elvarsdóttir.
6 Æskan