Æskan - 01.10.1990, Blaðsíða 4
Kötturínn
hefur níu //77
Kisa - eigandi Jón P. Kristinsson. Ljósmynd: JPK.
Hafið þið heyrt talað um að kettir
„hafi níu líf"? hannig er stundum tekið
til orða því að þeir hafa undraverðan
hæfileika til að sleppa lifandi þó að
þeir falli úr mikilli hæð eða lendi f
einhverjum öðrum hremmingum. Ef
við lyftum ketti og látum hann detta
getum við gengið að því vísu að hann
lendir á fótunum. (Það er óþarfi að
reyna ...)
í færeyska Barnablaðinu var nýlega
sagt frá athugun tveggja bandarískra
dýralækna á 182 köttum sem komið
hafði verið með á dýrasjúkrahús. Þeir
höfðu fallið af þökum eða svölum í
mikilli hæð - 2-32 metra.
Þeir kettir, sem fallið höfðu af
þriðju eða fjórðu hæö, meiddust lítið
eða ekkert. Meiðslin voru alvarlegrigi
við hverja hæð þar fyrir ofan upp að
áttundu hæð. Þeir sem af henni féllu
létust eða voru aflífaðir vegna þess að
þeir höfðu lemstrast. En kettir sem fall-
ið höfðu úr mikilli hæð, jafnvel 32 ,B
metrum, meiddust lítið!
Hvemig
fara kettir að?
Ketti er ósjálfrátt að beygja sig í öll-
um liðum og lenda mjúklega. Hann er
liðugur og ótrúlega sterkur. Þess vegna
getur hann snúið sér í loftinu og kom-
ið niður á fjóra fætur. Merkilegast er
þó að hann notar líkama sinn sem eins
konar fallhlíf!
Þegar köttur fellur eykst fallhraðinn
í því sem næst 100 km/klst. (Menn
falla hraðast á 200 km/klst.) Þeim
hraða er náð ef hann fellur vegalengd
sem jafngildir fimm hæðum í húsi-
Hraðinn eykst ekki meir; fallhraðinn er
hinn sami þó að hæðirnar verði tíu.
Meðan hraðinn eykst getur kötturinn
ekki einbeitt sér. Hann spennir allar
taugar og vöðva og kemur harkalega
niður. Þess vegna meiðist hann. Þegar
fallhraðinn er hættur að aukast teygir
kötturinn fæturna út og svífur á nokk-
urs konar loftpúða! Það dregur úr ferð-
inni. Þetta er væntanlega arfur fra
þeim tíma í fyrndinni þegar villikettir
stukku grein af grein.
Fer sínar eígin leiðir
Það er hægt að venja hund þannig að
hann hlýði hverri bendingu. En aldrei
kött! Hann verður ekki taminn betur
en hann sjálfur kærir sig um. Hann fer
sínar eigin leiðir. Kötturinn smjaðrar
aldrei. Þegar hann kemur og heiIsar
eiganda sínum við dyrnar skynja allir
að hann er að gera honum greiða.
Kötturinn kemur stökkvandi með
rófuna sperrta þegar lykli er snúið i
skrá. En ætíð virðulegur og sjálfstæður.
Hann lætur sér ekki til hugar koma að
hringsnúast á gólfinu eins og hundur
gerir gjarna.
Nei, kötturinn malar og nýr sér upp
við eigandann. Hreyfingin gefur öllum
Trína 3 mánaða (aftar) og Tommi 3 ára
(síamsköttur) á gangi í garðinum...
4 ÆSKAN