Æskan

Årgang

Æskan - 01.10.1990, Side 18

Æskan - 01.10.1990, Side 18
if erum eins og fjöl- skylda “> Rætt við tónlistarfólkið i Stjorninni Viðtal: II Elísabet Elín 15 ára. Ljósmyndir: Björn Torfi Hauksson (Bonni). Einn milljarður manna horfði á lagið ■ i „Eitt lag enn “ með Stjórninni hafna í fjórða seeti í söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva í maímánuði. 1 Stjórninni eru Eiður Arnarsson bassaleikari, Einar Bragi Bragason saxófónleikari, Þorsteinn Gunnars- 1 ■ son trommuleikari, Jón E. Hafsteins- son gítarleikari, Grétar Örvarsson hljómborðsleikari og Sigríður Bein- teinsdóttir söngkona. 1 * Stjórnin naut mikilla vinsœlda í sum- ar og fór í hringferð um landið þar sem hún kom fram á öllum stœrstu stöðunum. 12. tbl. Æskunnar í mars t ^ birtist viðtal við Siggu og Grétar, söngvara hljómsveitarinnar, en minna hefur farið fyrir hljóðfœraleik- urunum. Lesendur Æskunnar hafa því beðið um viðtal við alla Stjórnina og hér á eftir tala þeir félagar um I sjálfa sig, Evrósjón keppnina, Stjórn- I ina og fleira. ♦ Fyrst voru þau spurö hvenær þau hefðu I fengið áhuga á tónlist: Eiður: Ég fékk fyrst áhuga á tónlist þeg- ar ég var níu ára og var að hlusta á Kiss. t Nei, ég breyti þessu í árið 1976 þegar ég heyrði „Day of the Races" með Queen. Sigga: Ég held ég hafi fengið áhugann sex, sjö ára... Þorsteinn: Þegar ég var sex ára gaf , ■ amma mín mér lítið, grænt snældutæki. Þá fékk ég áhuga á tónlist og byrjaði að taka upp úr útvarpinu. Ég á þetta tæki enn og hlusta oft á það. Jón: Ég man eftir því að lagið, Ég á litla mús; hún heitir Heiða, var mikið spilað á heimili mínu. Og Bítlalögin... Þorsteinn: Fyrsta platan, sem ég eign- aðist, var Bítlaplata. Grétar: Ég hef ekki áhuga á tónlist...! Nei, í alvöru þá hef ég haft áhuga á tónlist frá því ég man eftir mér. Flvenær lærðuð þið fyrst á hljóðfæri? Eiður: Ég byrjaði að glamra á gítar þeg- ar ég var 12 ára. Á bassa fór ég að spila fjórtán ára. Einar Bragi: Ég lærði á klarinett þegat ég var níu ára, hætti snögglega þegar ég var 12 ára og fór að læra á saxófón. Þorsteinn: Ég byrjaði að læra á hljóð- færi þegar ég var sex ára. Þá lærði ég a blokkflautu. Svo lærði ég á trompet í nokk- ur ár, síðan á trommur og svo byrjaði ég að spila á gítar þegar ég var átján ára. Og eg er langbestur á gítarinn!!! Jón: Ég byrjaði að læra á píanó þegar eg var sex ára. Svo tók ég hlé en byrjaði aftur i píanónámi fjórtán ára. Þá nennti ég þessu *1 ekki lengur og fór að læra á gítar fimmtán ára og hef haldið mig við hann síðan. Grétar: Ég byrjaði að læra á blokk- flautu og píanó þegar ég var átta ára. Eiður segist ekki hafa lært á hljóðfæri en það er ! bara út í hött að segja slíkt. Auðvitað hefur hann lært á hljóðfærið þótt hann hafi ekki lært hjá kennara! Hann kenndi sér sjálfur og ég vil að það komi fram. Þorsteinn: Já Eiður er sjálfmenntaður, stórkostlegur listamaður. 18 ÆSKAN

x

Æskan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.