Æskan

Årgang

Æskan - 01.10.1990, Side 57

Æskan - 01.10.1990, Side 57
Útgáfa f 60 ár Bókaútgáfa Æskunnar er 60 ára. Til hennar var stofnað 1930 í því skyni að auka lesefni fyrir börn og unglinga, sem var af skornum skammti á þeim tíma, og styðja útgáfu Barnablaðsins Æskunnar fjárhagslega. Fyrsta útgáfubókin var Sögur Æsk- unnar. Hún hafði aö geyma sögur og Sr. Björn Jónsson stórtemplar flytur ávarp. kvæði úr 1. og 2. árgangi blaðsins - eftir Sigurð Júlíus Jóhannesson, fyrsta ritstjóra Æskunnar. Fyrsta íslenska skáldsagan, sem gefin var út, var Kári litli og Lappi, saga handa börnum eftir Stefán Júlíus- son, þá ungan kennara. Það var 1938. Framhald sögunnar, Kári litli í skólan- um, kom út 1940 og á sama ári Ásta litla lipurtá, einnig eftir Stefán. Kári flaug í fangið á börnunum, varð þeim kær og Ijúfur félagi. Síðan hefur hann átt sæti í fangi íslenskra barna - hverrar kynslóðar af annarri - því aö sögurnar hafa verið endurút- gefnar hvað eftir annað. Stefán Júlíusson varð 75 ára 25. september sl., Kári er nýlega „fimm- tugur", og því var ákveðið að endurút- gefa Kárabækurnar þrjár, þessar sígildu sagnaperlur, í veglegri afmælisútgáfu. haö er einnig framlag Æskunnar á ári laesis því að fáar bækur hafa dugað betur en þær sem „tæki til að létta börnum lestrarnám" - eins og höfund- ur stefndi að. Kári litli og Lappi er nú gefin út í 8. sinn, Kári litli í skólanum í 7. og Kári litli í sveit í 5. sinn. Stefán Júlíusson rithöfundur og Hulda Siguðardóttir kona hans. Stefáni var afhent fyrsta eintak afmætisútgáfu Kárabókanna á samkomunni í Vinabæ. Sígild verk — íslensk og erlend Á þessum 60 árum hefur verið gefinn út fjöldi frumsaminna og þýddra úr- valsbóka. Meðal sígildra sagna, þýddra, eru Ævintýri og sögur eftir H.C. Andersen - ritsafn í þrem bind- um -, Oliver Twist eftir Charles Dic- kens og Ævintýri barnanna. Þær hafa allar verið endurútgefnar nýlega og eru fáanlegar. Af höfundum frumsamins efnis skal telja Margréti Jónsdóttur fyrrum rit- stjóra Æskunnar (8 bækur), Hannes J. Magnússon fyrrum skólastjóra (8 bæk- ur), Jennu og Hreiðar, fyrrum kennara og skólastjóra (10 b.), Ragnheiöi Jóns- dóttur fyrrum kennara (10 b.) og Eð- varð Ingólfsson guðfræðinema en átt- unda unglingabók hans kemur út síðar í haust, á 10 ára rithöfundarafmæli hans. Eðvarð hefur einnig samið barnabók og skráð þrjár viðtalsbækur. Þeir sem þýtt hafa flestar bækur fyr- ir Æskuna eru Sigurður Cunnarsson fyrrverandi skólastjóri (17), Guðjón Guðjónsson fyrrverandi skólastjóri, eiginmaður Ragnheiðar, (15), Jónína Steinþórsdóttir (9), Sigurður Skúlason (7), Eiríkur Sigurðsson fyrrum skóla- stjóri, eiginmaður Jónínu, (5) og Mar- grét Jónsdóttir (5). Framkvæmdastjóri útgáfunnar frá upphafi til 1961 var Jóhann Ögmund- ur Oddsson en tengdasonur hans, Kristján Guðmundsson, annaðist hana 1964 til 1982. Auk Kárabókanna og unglingabók- ar Eðvarðs Ingólfssonar (Haltu mér - slepptu mér) gefur Æskan á þessu af- mælisári út úrval Ijóða Gunnars Dals, skálds og heimspekings, og nefnist Raddir morgunsins. Fjóia Sigmundsdóttir, ekkja Halldórs Péturs- sonar, tekur við öðru eintaki afmæiisútgáfunn- ar. Halldór teiknaði afar skemmtilegar myndir við sögurnar um Kára litla. Pétur, sonur þeirra, litaði myndir sem prýða kápur Kárabókanna. / Myndir: Guðmundur Erlendsson. Afmælinu var fagnað fimmtudag- inn 11. október með samkomu í Vina- bæ (áður Tónabíó), húseign eiganda Æskufyrirtækjanna, Stórstúku íslands. Þar var Stefáni Júlíussyni afhent fyrsta eintak afmælisútgáfu Kárabókanna. Öllum núlifandi höfundum og þýð- endum bóka, sem Æskan hefur gefið út, var boðið á samkomuna, auk ým- issa sem útgáfunni tengjast. ÆSKAN 61

x

Æskan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.