Æskan - 01.10.1990, Side 56
Myndasamkeppni
Rauða krossins
Rauði kross íslands gengst
fyrir myndasamkeppni með-
al barna undir 15 ára aldri.
Samkeppnin er liður í al-
þjóðlegu átaki hreyfingarinn-
ar til hjálpar stríðshrjáðum.
Æskilegt myndefni er:
„Stríðshrjáðir, sem að miklum
hluta eru óbreyttir borgarar -
börn, konur og gamal-
menni.“
Markmið samkeppninnar
er m.a.
- að vekja athygli á þeim
hörmungum sem óbreyttir
borgar þurfa að þola í stríði
og því hlutverki sem Rauði
krossinn/Rauði hálfmáninn
gegnir
- að vekja áhuga barna á
starfi þessara samtaka
- og að virkja listsköpun
barna sem áróðurstæki til
hjálpar stríðshrjáðum.
Heimilt er að nota þá að-
ferð sem hverjum og einum
hentar. Nota má vatnsliti,
vaxliti, olíuliti, tölvur, klippi-
myndir, þrykkmyndir og
raunar allt sem hægt er að
setja á venjulegt blað!
Rauði kross íslands mun
veita verðlaun fyrir 10 mynd-
ir. 1. verðlaun eru ferð til
höfuðstöðva Rauða krossins
í Genf.
250 milljónír félaga
í kynningarefni er minnt á
að níu af hverjum tíu sem
láta lífið eða hljóta örkuml í
stríði eru óbreyttir borgarar.
Réttur þeirra í stríði er ótví-
ræður samkvæmt alþjóðalög-
um um mannréttindi. En
staðreyndin er sú að víða
þekkja hvorki hermenn né
almenningur lögin. Úr því
vill Rauði krossinn bæta.
Rauðakrosshreyfingin
starfar á flestum átakasvæð-
um í heiminum. í hreyfing-
unni eru 250 milljónir félaga
í 149 löndum. Félagar eru af
öllum kynþáttum og trúar-
flokkum. Óháð stjórnmála-
skoðunum sameinast þeir í
því að hjálpa fórnarlömbum
stríðs og átaka.
Alþjóðaráð Rauða kross-
ins hefur á sínum snærum
fjölda fólks sem er tilbúið til
að hefja hjálparstarf um leið
og átök brjótast út. Merki
Rauða krossins er þekkt
verndartákn sem nýtur virð-
ingar stríðandi aðilja.
Fyrir stríðshrjáða er nauð-
synlegt að viðhalda og auka
þá virðingu sem Rauði kross-
inn nýtur. í skjóli merkisins
er hægt að lina þjáningar -
hægt að hjálpa.
Snjór
um
hásumar!
Ef til vill verðið þið farin að leika ykkur í snjó
þegar þlaðið berst ykkur. En ósennilegt er að
mörg ykkar hafi setið í snjó þegar sólargangur
er hvað lengstur hér á landi! Myndin er tekin í
Mývatnssveit í hingeyjarsýslu 25. júní í sumar.
hykk snjóbreiða hafði lagst yfir gras og sóleyjar
- en systkinin Ólöf og Pétur Gunnarsbörn undu
sér dável í kuldaklæðnaði!
60 ÆSKAN